Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Blaðsíða 53
Helgarblað 14. júlí 2017 KYNNING
MENU veitingar hafa áralanga reynslu í að þjónusta fjölda
fyrirtækja og stofnana á
stórhöfuðborgar svæðinu
og Suðurnesjum með því
að sjá um mötuneyti, eld-
hús og útvega bakkamat á
vinnusvæði. MENU sér um
brúðkaupsveislur, árshátíðir,
afmæli, skírnarveislur, erfi-
drykkjur og alls kyns veislur
og mannfagnaði svo fátt
eitt sé nefnt. „Við fullyrðum
að í veitinga þjónustu erum
við einn besti valkosturinn á
markaðnum í dag. Þegar þú
leitar til okkar færðu góð ráð,
góðan mat og góða þjónustu.
Hjá MENU er valinn maður í
hverju rúmi. Hjá okkur starfa
fjórir faglærðir matreiðslu-
menn, allir með meistara-
réttindi í faginu, auk fjölda
annarra hjálparkokka,“ segir
Ásbjörn Pálsson, matreiðslu-
meistari og eigandi MENU
veitinga.
Áhersla á gæði, útlit og
framsetningu
MENU hefur langa og
farsæla reynslu af veislu-
höldum af öllum stærðum og
gerðum. „Eingöngu er notast
við fyrsta flokks hráefni
sem er sérvalið fyrir hvern
viðskiptavin. Með besta
mögulega hráefni sem fæst
hverju sinni eru gæðin tryggð
fyrir kröfuharða viðskiptavini
okkar. MENU leggur einnig
mikla áherslu á gæði, útlit og
framsetningu veislumatarins.
Við leggjum okkur fram við
að uppfylla óskir viðskipta-
vinarins í einu og öllu, sem
og að fylgja þeim straumum
og stefnum sem vinsælar
eru hverju sinni. Það skiptir
miklu máli að hafa eitthvað
við allra hæfi í veislum, jafnt
fyrir börn sem fullorðna. Það
eru jú ekki allir eins, en allir
vilja auðvitað fá eitthvað gott
í gogginn í veislunni. Fyrir þá
vandfýsnu erum við með alls
kyns rétti sem meira að segja
fullorðna fólkið laumast í
þegar enginn sér til.“
Framreiða líka bakkamat fyrir
svangt vinnandi fólk
Auk þess að bjóða upp
á veisluþjónustu sendir
MENU vinnandi fólki heitan
hádegisverð í bakka, rekur
veitingasölu í Reykjanesbæ
og þjónustar mötuneyti fjöl-
margra fyrirtækja. Matseðil
dagsins má sjá á heimasíðu
MENU; menu4u.is. Ef þú vilt
fá frekari upplýsingar um þá
þjónustu sem MENU býður
upp á hafðu samband í síma
421-4797 eða sendu tölvu-
póst á menu4u@menu4u.is.
Farsæl reynsla af veisluhöldum