Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Page 53

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Page 53
Helgarblað 14. júlí 2017 KYNNING MENU veitingar hafa áralanga reynslu í að þjónusta fjölda fyrirtækja og stofnana á stórhöfuðborgar svæðinu og Suðurnesjum með því að sjá um mötuneyti, eld- hús og útvega bakkamat á vinnusvæði. MENU sér um brúðkaupsveislur, árshátíðir, afmæli, skírnarveislur, erfi- drykkjur og alls kyns veislur og mannfagnaði svo fátt eitt sé nefnt. „Við fullyrðum að í veitinga þjónustu erum við einn besti valkosturinn á markaðnum í dag. Þegar þú leitar til okkar færðu góð ráð, góðan mat og góða þjónustu. Hjá MENU er valinn maður í hverju rúmi. Hjá okkur starfa fjórir faglærðir matreiðslu- menn, allir með meistara- réttindi í faginu, auk fjölda annarra hjálparkokka,“ segir Ásbjörn Pálsson, matreiðslu- meistari og eigandi MENU veitinga. Áhersla á gæði, útlit og framsetningu MENU hefur langa og farsæla reynslu af veislu- höldum af öllum stærðum og gerðum. „Eingöngu er notast við fyrsta flokks hráefni sem er sérvalið fyrir hvern viðskiptavin. Með besta mögulega hráefni sem fæst hverju sinni eru gæðin tryggð fyrir kröfuharða viðskiptavini okkar. MENU leggur einnig mikla áherslu á gæði, útlit og framsetningu veislumatarins. Við leggjum okkur fram við að uppfylla óskir viðskipta- vinarins í einu og öllu, sem og að fylgja þeim straumum og stefnum sem vinsælar eru hverju sinni. Það skiptir miklu máli að hafa eitthvað við allra hæfi í veislum, jafnt fyrir börn sem fullorðna. Það eru jú ekki allir eins, en allir vilja auðvitað fá eitthvað gott í gogginn í veislunni. Fyrir þá vandfýsnu erum við með alls kyns rétti sem meira að segja fullorðna fólkið laumast í þegar enginn sér til.“ Framreiða líka bakkamat fyrir svangt vinnandi fólk Auk þess að bjóða upp á veisluþjónustu sendir MENU vinnandi fólki heitan hádegisverð í bakka, rekur veitingasölu í Reykjanesbæ og þjónustar mötuneyti fjöl- margra fyrirtækja. Matseðil dagsins má sjá á heimasíðu MENU; menu4u.is. Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um þá þjónustu sem MENU býður upp á hafðu samband í síma 421-4797 eða sendu tölvu- póst á menu4u@menu4u.is. Farsæl reynsla af veisluhöldum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.