Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Síða 10
10 fólk Helgarblað 14. júlí 2017 Marpól ehf. • Nýbýlavegur 18, Dalbrekkumegin • 200 Kópavogur Sími: 660 1942 • marpol.is Alvöru kísilhreinsir sem virkAr! Frábær á sturtugler, baðkör, vaska, keramikhelluborð, bakaraofna og margt fleira. Marpól ehf. • Nýbýlavegur 18, Dalbrekkumegin • 200 Kópavogur Sími: 660 1942 • marpol.is Alvöru kísilhreinsir sem virkAr! Frábær á sturtugler, baðkör, vaska, keramikhelluborð, bakaraofna og margt fleira. Marpól ehf. • Nýbýlavegur 18, Dalbrekkumegin • 200 Kópavogur Sími: 660 1942 • marpol.is Alvöru kísilhreinsir sem virkAr! Frábær á sturtugler, baðkör, vaska, keramikhelluborð, bakaraofna og margt fleira. Marpól ehf. • Nýbýlavegur 18, Dalbrekkumegin • 200 Kópavogur • Sími: 660 1942 • marpol.is Marpól ehf. • Nýbýlavegur 18, Dalbrekkumegin • 200 Kópavogur Sími: 660 1942 • marpol.is Alvöru kísilhreinsir sem virkAr! Frábær á sturtugler, baðkör, vaska, keramikhelluborð, bakaraofna og margt fleira. M yndlistarmaðurinn Krist- inn Guðmundsson hefur vakið athygli undanfarna mánuði fyrir matreiðslu- þættina SOÐ. Þættina tekur hann upp einn síns liðs á vinnustofu sinni í miðborg Brussel. Fyrstu þættirnir voru birtir á Youtube og hafði Kristinn að eigin sögn engar væntingar varðandi móttökur. Viðtökurnar hafa hins vegar verið frábærar og verkefnið undið veru- lega upp á sig. Nýlega festi Sjón- varp Símans kaup á fyrstu serí- unni. Galdur þáttanna er sá að þeir fara í þveröfuga átt við aðra íslenska matreiðsluþætti þar sem gerilsneydd fágunin er allsráð- andi og hugað er að hverju atriði við útlit þáttanna. Í Soði er allt á tjá og tundri, pottar og tól bera með sér áralanga notkun, eldað er á sjúskaðri ferðagashellu, upp- skriftirnar eru ekki alltaf alveg réttar enda ekki að undra því oft- ar en ekki er Kristinn að elda þá í fyrsta skipti. Það er ekki síst sviðs- framkoma Kristins og sjarmi sem gerir Soð-þættina að því sem þeir eru enda hafa þessir eiginleikar hans meðal annars landað hon- um hlutverkum í danssýning- um þrátt fyrir að hann hafi aldrei lært dans. Kristinn er staddur hér á landi þessa dagana í fríi ásamt belgískri kærustu sinni og því greip blaðamaður tækifærið og skipulagði viðtal á kaffihúsi í borginni. Eldar heilan lambaskrokk í heitum potti Hið fyrsta sem kemur upp úr dúrnum er að sumarfrí Kristins er ekki meira afslappandi en svo að hann nýtir tímann til þess að taka upp nýja Soð-þætti með íslensku ívafi. Þá mun hann í vikunni bjóða vinum og aðdáendum þátt- arins í Soð-boð, hið fyrsta sinnar tegundar. „Ég ætla að draga út að minnsta kosti þrjá dygga áhorf- endur þáttarins og síðan mun ég bjóða vinum og vandamönnum. Ég elska að halda partí og þannig kom hugmyndin til að halda Soð- boð,“ segir Kristinn. Hann mun beita hinni vinsælu sous-vide matreiðsluaðferð í boðinu en með heldur stórkarlalegum hætti. „Ég ætla að elda heilan skrokk í heita pottinum hjá foreldrum mínum,“ segir Kristinn grafalvar- legur. Hann skellir svo upp úr og segist ætla að vera tilbúinn með hamborgara á hliðarlínunni ef hin metnaðarfulla matseld fer út um þúfur. Fann sig ekki í skóla Kristinn er alinn upp í Keflavík og snemma í samtalinu kemur í ljós að hann ber íslensku skólakerfi ekki vel söguna. „Ég fann mig aldrei í skólanum. Ég hef mestan áhuga á einhvers konar sköpun og fór alveg á mis við það í skóla- kerfinu. Afleiðingin var sú að ég hafði ekki hugmynd um hvað ég ætlaði að verða,“ segir Kristinn. Að loknu grunnskólanámi skráði hann sig í ljósmyndanám í Dan- mörku en segja má að þaðan hafi honum verið ýtt í myndlistar- nám í Hollandi, við Gerrit Riet- veld-akademíuna í Amsterdam. Þaðan útskrifaðist hann með BFA árið 2012 og hélt leið sinni áfram í meistaranám við Dutch Art Institute. „Ég byrjaði í deild sem kenndi listsköpun með mynd og hljóði. Það var gott enda kann ég ekki að teikna,“ segir Kristinn. Hann segir að mikið frelsi hafi einkennt hans deild í skól anum sem hentaði honum afar vel. „Mér finnst gaman að leika mér og prófa sem flest. Ég fékk rými til þess í Hollandi og lærði helling af því,“ segir Kristinn. Strax á fyrsta degi kynntist hann Austurríkismanninum Peter Sattler og náðu þeir vel saman. „Við urðum strax góðir vinir og höfum síðan unnið saman að margs konar listsköp- un eftir að náminu lauk. Vin- áttan hefur einmitt verið okkur mikill innblástur,“ segir Kristinn. Hann og Peter hafa unnið að gjörningum, myndbandaverkum, skúlptúrum, prenti og innsetn- ingum. „Við líkjum oft listsköp- un okkar við tré. Við byrjum í rót- unum, með einhverja tiltekna hugmynd, og vinnum okkur síð- an upp í greinarnar. Þar fer hug- myndavinnan oft í allar áttir eins og greinar trésins. Síðan grisj- um við tréð þannig að það standi „Matreiðslu- þættirnir SOÐ eru ekki síst einstakir vegna þeirrar staðreyndar að mistökin sem eiga sér stað eru ekki klippt burt heldur látin fljóta með. SOÐ-matreiðsluþættir myndlistarmannsins Kristins Guðmundssonar hafa vakið athygli Heldur í kærustuna með matnum Kristinn Guðmundsson Matreiðsluþættirnir SOÐ sem Kristinn tók upp einn síns liðs á vinnustofu sinni í Brussel njóta vaxandi vinsælda. Sjónvarp Símans fjárfesti á dögunum í fyrstu þáttaröðinni. Mynd SiGtryGGur Ari Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.