Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Síða 2
2 Helgarblað 14. júlí 2017fréttir
Spurning vikunnar
„Nei, ég hef ekki mikinn áhuga á íþróttum yfirhöfuð.“
Þorbjörg Anna Gísladóttir
„Algjörlega. Ég held að þeim muni ganga mjög vel. Ég
spái því að þær vinni mótið.“
Hannes Arnarson
„Já og er byrjaður. Ég spái því að þær fari í undanúrslit.“
Hreiðar Stefánsson
„Jú, auðvitað. Þær eru svo duglegar að þær lenda
örugglega ofarlega.“
Guðrún Einarsdóttir
Ætlarðu að fylgjast með stelpunum okkar á EM?
Stóraukinn
lestur DV
Samkvæmt nýbirtum niðurstöð-
um Gallup um lestur prentmiðla
jókst lestur á DV um 36% á milli
mánaðanna maí og júní. Þannig
mældist blaðið með 10,5% lestur
í júní en hafði mælst með 7,7%
lestur í maí. Í könnuninni mæld-
ist Fréttablaðið með mestan
lestur eða 44,6%, Morgunblað-
ið með 25,7% og Viðskiptablað-
ið með 9,6% lestur. Þetta er fyrsta
lestrarmæling Gallup sem birt-
ist eftir að útgáfudögum DV var
fækkað og helgarblaðið stóreflt
með tilkomu fylgiblaðsins Birtu.
Þá hefur netmiðillinn dv.is verið
í mikilli sókn undanfarin misseri
og er þriðji vinsælasti netmið-
ill landsins, að jafnaði með um
90 þúsund daglega notendur og
um 300 þúsund notendur í síð-
ustu viku.
Starfsfólk DV er afar ánægt
með góðar viðtökur og mun
halda áfram að reyna að bæta og
styrkja blaðið með hverri vikunni
sem líður.
Umfangsmikil viðskipti ReykjavíkUR-
boRgaR við kennitölUflakkaRa
Sex fyrirtæki eigandans
hafa farið í þrot frá árinu
2007
v
erktakafyrirtæki sem nú er
starfrækt að minnsta kosti
á fjórðu kennitölunni hef-
ur á árinu landað tveim-
ur stórum verkefnum í útboð-
um Reykjavíkurborgar. Þá hefur
stofnandi fyrirtækisins keyrt sex
félög í þrot frá árinu 2007. Verk-
in sem fyrirtækin lönduðu er
bygging nýrrar stúku við leikvöll
Þróttar í Laugardalnum sem og
rúðuskipti í gjörvöllum Kletta-
skóla. Áætlaður kostnaður við
verkin er um 125 milljónir króna.
Eigandi fyrirtækisins er með slóð
gjaldþrota í sinni viðskiptasögu
og rannsakar skattrannsóknar-
stjóri meint brot í tengslum við
rekstur fyrirtækjanna. Innkaupa-
reglur Reykjavíkurborgar ganga
ekki nógu langt til þess að stöðva
athæfið.
Sex gjaldþrot frá árinu 2007
Verktakafyrirtækið sem um ræð-
ir heitir Viðhald og viðgerðir ehf.
Félagið var stofnað í nóvember
2015 af athafnamanninum Krist-
jáni Ólasyni sem hefur frá árinu
2007 stofnað eða verið í forsvari
fyrir sex önnur verktakafyrir-
tæki sem öll eru orðin gjaldþrota.
Skattrannsóknarstjóri hefur
rannsakað málefni fyrirtækjanna
undanfarin misseri.
Í nóvember 2007 samþykkti
Samband íslenskra sveitarfé-
laga fyrirmynd að innkauparegl-
um sveitarfélaga. Þar var mælst
til þess að sveitarfélögum væri
heimilt að kanna viðskiptasögu
eigenda og ef sú könnun leiddi í
ljós að eigandi eða fyrirtæki hans
hafi lent í greiðslustöðvun eða
gjaldþroti undanfarin fimm ár
bæri að vísa honum frá útboð-
inu, enda ætti í hlut samskon-
ar rekstrareining, með sömu eða
nær sömu eigendur, í sömu eða
nær sömu atvinnustarfsemi, en
nýja kennitölu.
Gildandi innkaupareglur
Reykjavíkurborgar voru sam-
þykktar á borgarráðsfundi þann
8. maí 2014 í borgarstjórnartíð
Jóns Gnarr. Í þeim var ekki gengið
jafnlangt og Samband íslenskra
sveitarfélaga lagði til sjö árum
fyrr. Aðeins er heimilt að kanna
viðskiptasögu stjórnenda fyrir-
tækja ef talið er að fyrirtæki hafi
gefið rangar upplýsingar um fjár-
hagslega og tæknilega getu sína
eða hefur ekki lagt slíkar upplýs-
ingar fram.
Þessi tregða embættismanna
og borgarfulltrúa þess tíma til
að stemma stigu við kennitölu-
flakki hefur gert það að verkum
að erfitt er að koma í veg fyrir að
fyrirtæki, hvers eigendur eru með
sviðna jörð eftir sig í viðskiptalíf-
inu, landi stórum verkefnum hjá
Reykjavíkurborg. DV óskaði eftir
nánari útskýringum frá Reykja-
víkurborg í byrjun vikunnar en
svör höfðu ekki borist áður en
blaðið fór í prentun.
DV gaf Kristjáni Ólasyni færi til
þess að tjá sig um málið en hann
kaus að þiggja það ekki. Hann
vildi einnig bíða þar til dómstól-
ar myndu kveða upp sinn dóm
um rannsókn skattrannsóknar-
stjóra. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
1. Í ágúst 2007 stofnaði Kristján verktakafyrirtækið TS Málun
ehf. ásamt Kjartani Inga Kjartanssyni. Félagið var úrskurðað
gjaldþrota þann 14.september 2009.
2. Í október 2007 stofnaði Kristján verktakafyrirtækið TS Hús
ásamt áðurnefndum Kjartani og Lúðvíki Vilhelmssyni. Félagið
var úrskurðað gjaldþrota þann 17.maí 2010.
3. Í janúar 2008 stofnaði Kristján TS Byggingar ehf. ásamt Jóni
Óskarssyni og Sæmundi Arngrímsson. Félagið var úrskurðað
gjaldþrota þann 19.desember sama ár
4. Í febrúar 2009 stofnaði Kristján, eins síns liðs, fyrirtækið Allt
viðhald ehf. Félagið var úrskurðað gjaldþrota þann 4.mars 2015.
5. Í apríl 2013 stofnaði Kristján félagið Viðhald og múr ehf.
ásamt Hermanni Ragnarssyni og Ingþóri Pétri Þorvaldssyni.
Fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota þann 18.febrúar 2015.
6. Í desember 2014 tók Kristján yfir félagið IÞ Flutningar ehf. og
breytti heiti þess í Viðhald og endurbætur ehf. Hann varð fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins og fór með prókúruumboð. Kristján
lét af framkvæmdastjórastöðunni þann 8.júní 2015. Hann hélt
prókúruumboðinu allt þar til að fyrirtækið var úrskurðað gjald-
þrota þann 16.júní 2016.
7. Í nóvember 2015 stofnaði Kristján Viðhald og viðgerðir ehf.
Félagið er enn í rekstri og tveimur stórum verkefnum í útboði hjá
Reykjavíkurborg á árinu. Samanlagt andvirði verkanna er um
125 milljónir króna
sviðin jörð
brot af viðskiptasögu kristjáns Ólasonar
Klettaskóli Áætlaður kostnaður við gluggaski
ptin var 26 milljónir króna. Viðhald og
viðgerðir ehf. bauð 24,5 milljónir, 94,2% af
kostnaðaráætluninni, og landaði verkinu.
MynD DV Sigtryggur Ari
Stúkan í Laugardalnum
Kostnaðurinn við að endurbyggja stúkuna er um
100 milljónir króna.
MynD DV Sigtryggur Ari