Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Síða 6
6 Helgarblað 14. júlí 2017fréttir
n Alexander, 18 mánaða, slasaðist í rúllustiga n Ókunnug kona kom honum til bjargar
Þ
etta gerðist svo hratt,“ seg
ir Sigríður Júlía Wium
Hjartar dóttir en mánu
daginn 10. júlí síðast
liðinn slasaðist 18 mánaða sonur
henn ar þegar hann datt í rúllu
stiga í Holtagörðum. Sigríður,
sem á þrjá fjöruga drengi, var
stödd í Holtagörðum þar sem
hún ætlaði að kaupa í matinn í
Bónus. Slysið bar að með þeim
hætti að rétt á meðan Sigríður
var að sinna öðrum eldri syni sín
um, sem klemmdi sig á leikkast
ala á ganginum við rúllustigann,
komst Alexand er óséður að
rúllustiganum. Al exander hljóp
um það bil hálfan metra upp
stigann áður en hann hrasaði
og festi fingurna á milli stigans
og handriðsins. „Stiginn stopp
aði ekki heldur færðist Alexander
með honum aftur niður á meðan
puttarnir urðu eftir. Einn puttinn
fór lengra ofan í og festist. Það var
hryllingur að horfa upp á þetta.“
Slysin gera ekki boð á undan sér
Sigríður kveðst seint gleyma
augnablikinu þegar hún sá Al
exander fastan í stiganum.
„Nokkrum sekúndum áður hafði
hann staðið alveg uppi við mig.
Ég hélt að hann stæði enn þar.
Það næsta sem ég heyri er að
hann æpti af sársauka.“ Snör við
brögð ókunnugrar konu, sem var
í rúllustiganum þegar Alexander
datt, og hjálpaði Sigríði að hlúa að
honum, gerðu að verkum að Al
exander komst hratt og örugglega
undir læknishendur. Sigríður náði
fingrum Alexanders upp úr op
inu. Hún sá þó fyrst um sinn ekki
hversu mikið slasaður Alexander
var þar sem það blæddi töluvert
úr sárinu. „Konan tók Alexander í
fangið á með
an ég fór að
sækja serví
ettur til að
stöðva blæð
inguna. Þetta
var alls ekki
huggulegt.“
Leitar að
bjargvættin-
um
Á meðan Sig
ríður sinnti
Alexander sem
var orðinn út
ataður í blóði
hringdi konan
á sjúkrabíl. „Ég
er svo ótrú
lega þakklát
fyrir viðbrögð
þessarar konu.
Ekki aðeins stóð
hún eins og
klettur við hlið
mér á meðan ég
sinnti Alexander
heldur hjálpaði
hún mér með
hina tvo strákana á meðan
sjúkrabíllinn var á leiðinni og
leit eftir þeim þangað til pabbi
þeirra kom að ná í þá á meðan
ég fór í sjúkrabílnum með litla.
Ég veit ekki einu sinni hvað
hún heitir. Ég var í svo miklu
áfalli að ég gleymdi að spyrja
hana. Mig langar svo að þakka
þessari konu almennilega fyr
ir aðstoðina. Ég veit ekki hvað
ég hefði gert ef hún hefði ekki
verið þarna á þessu hörmu
lega augnabliki.“
Heppinn að ekki fór verr
Eftir að Sigríður kom á Barna
spítalann fékk hún að vita að þrátt
fyrir að Alexander hefði misst
framan af fingri, nöglin farið af og
hann fingurbrotnað er mikil mildi
að ekki fór verr. „Sem betur fer
eru puttarnir hans enn svo litlir.
Læknarnir sem við hittum á spít
alanum sögðu mér að hann væri
mjög heppinn að hafa ekki slasast
meira.“ Þau fengu að fara
heim á mánudagskvöldið
en munu vera í reglu
legu eftirliti á spítalanum
næstu vikurnar. Þá segir
Sigríður að Alexander beri
sig vel, miðað við aðstæð
ur, en þurfi að taka verkja
lyf á fjögurra klukkustunda
fresti til að halda sársauk
anum í skefjum. Þá segir
Sigríður að það hefði verið erfitt
að koma í veg fyrir slysið. „Þetta
er svo opið. Kannski væri hægt að
setja eitthvert öryggisplast þarna
eða eitthvað svo börn komi putt
unum ekki þarna ofan í. Ég verð
að minnsta kosti aldrei róleg með
hann nálægt svona stiga aftur.“
Andri Þór Arinbjörnsson, fram
kvæmdastjóri eignaumsýslusviðs
hjá Reitum, segir að rúllustiginn
fari með reglulegu millibili í lög
bundið eftirlit. „Þegar svona gerist
þá látum við okkar þjónustuaðila
gera aukaúttekt á stiganum. Þeir
koma í Holtagarða í vikunni og
ætla að yfirfara hann. Það skiptir
okkur öllu máli að öryggismálin
séu á hreinu.“ n
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Bónusferð endaði
á Barnaspítalanum
Alexander og Sigríður
Þakklát fyrir að ekki fór verr.
Mynd Sigtryggur Ari
nöglin flettist af í slysinu Alexander missti framan af fingri og fingurbrotnaði.
Alexander er enn lítill í sér eftir slysið Sé
rfræðingur
sagði mæðginunum að nöglin muni vaxa a
ftur. Hún verður að
öllum líkindum klofin. Þá mun Alexander fá
stórt ör á fingurinn.
Mynd Úr einKASAfni
Frá 2014 höfum við hjá Dekura
sérhæft okkur í útleigu & umsjón
fasteigna til ferðamanna
Sími: 847 3147 / www.dekura.is / dekura@dekura.is