Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Qupperneq 11
fólk 11Helgarblað 14. júlí 2017
nánast bert eftir og þá getum
við metið hvað eftir stendur og
hvers konar verk við erum með í
höndunum,“ segir Kristinn.
Mjúk líkamsbygging á danssviði
Kristinn er ekki einhamur þegar
kemur að listsköpun því hann á
sinn sess í íslenska danshópn-
um Marble Crowd. Það er athygl-
isvert í ljósi þess að hann hef-
ur aldrei lært dans af neinu viti.
„Það kom þannig til að boðið var
upp á dansnámskeið í skólanum
mínum. Ég fékk leyfi til þess að
sækja það þrátt fyrir að það hafi
verið ætlað nemendum á öðru
ári en ég sótti. Sú sem hélt nám-
skeiðið heitir Alexandra Bechzets-
is. Hún sá eitthvað í mér, fékk mig
í nokkur verk og þannig kynntist
ég Sögu Sigurðardóttir, sem er þó
ekki ljósmyndarinn,“ segir Krist-
inn og kímir. Hann hefur dans-
að í mörgum verkum Sögu auk
þess sem hann fór með hlutverk í
dansýningunni Kviku eftir Katrínu
Gunnarsdóttur.
Rétt er að grípa niður í stór-
kostlegan dóm gagnrýnandans
Sesselju G. Magnúsdóttur um
Kviku sem birtist á Hugrás, vefriti
hugvísindasviðs Háskóla Íslands.
„Kristinn hafði aftur á móti ekki
mjög sterka líkamsbeitingu og
stakk því í stúf hreyfilega séð í
þeim hlutum verksins sem kröfð-
ust líkamlegrar nákvæmni. Lík-
amsbygging hans er líka mýkri en
venjulega sést á danssviðinu sem
einnig vakti athygli,“ sagði Sesselja
en hrósaði þó Kristni fyrir orkuna
sem hann gefur af sér á sviðinu.
Kristinn hlær dátt þegar dómur-
inn er lesinn upp. „Ég hef náttúr-
lega aldrei æft dans og kann því
ekki á talningar eða neitt slíkt. Ég
kann hins vegar alveg að hreyfa
mig, hef það úr körfuboltanum í
Keflavík og er með rýmisskilning.
Ég fer þetta allt á tilfinningunni,“
segir Kristinn.
Hann segist vonast eftir því að
vera hluti af danshópnum um
ókomna tíð: „Ég elska þetta fólk og
að vinna með því. Það er afar krefj-
andi en stórkostlega skemmtilegt.
Það fá allir að varpa hugmyndum
fram, sama hversu vitlausar þær
eru, og svo vinnur hópurinn úr
þeim í sameiningu," segir hann.
Heldur í kærustuna með matn-
um
Hugmyndina að matreiðsluþátt-
unum SOÐ fékk Kristinn fyr-
ir rúmu ári en ákvað að kýla á
nokkra þætti á vinnustofu sinni.
Hann hefur enga menntun sem
matreiðslumaður en hefur þó
unnið sem slíkur á nokkrum
stöðum og segist oft heyra að
hann sé góður kokkur. „Ég byrj-
aði að vinna á Pizza 67 í Keflavík
sem unglingur. Ég réð mig sem
sendil en þegar ég mætti á fyrstu
vakt var ég beðinn um að baka.
Ég lærði mikið á því, ekki síst um
samspil hráefna," segir Kristinn.
Þá hefur hann unnið á
veitingastað í Brussel auk þess
að hann tók að sér að elda tvisvar
í viku í mötuneyti nemenda í
skólanum sínum í Amsterdam.
„Ég heyri reglulega að maturinn
minn sé góður. Ég held til dæm-
is að það sé eina ástæðan fyrir
því að ég held í kærustuna mína,"
segir Kristinn léttur. Hann seg-
ir að hugmyndin að matreiðslu-
þáttunum SOÐ hafi einfald-
lega sprottið upp af áhuga hans
á matreiðslu og reynslu hans af
vinnu við myndavélar í listsköp-
un sinni. „Ég fékk þessa hug-
mynd og leyfði henni að meltast í
rúmt ár þar til ég kýldi á þetta. Ég
ákvað síðan að taka þættina upp
á vinnustofunni minni, bæði af
því að það var svo fótógenískt en
líka af því að þannig gat ég stillt
upp myndavélinni fyrir framan
svæðið sem ég matreiði á en það
hefði ekki verið hægt í eldhúsinu
mínu," segir Kristinn.
Þá hefur vakið athygli að Krist-
inn er ekki alltaf vel búinn öllum
tækjum og tólum en reddar sér
alltaf. Meðal annars notar hann
borvél við að hræra í sósum. „Að
einhverju leyti fannst mér mynd-
rænt og skemmtilegt að fara
óhefðbundnar leiðir en ástæðan
er líka sú að mér finnst skemmti-
legt að elda við frumstæðar að-
stæður, til dæmis í útilegum, og
þurfa að bjarga mér," segir Krist-
inn.
Mistök leið til að læra
Matreiðsluþættirnir SOÐ eru ekki
síst einstakir vegna þeirrar stað-
reyndar að mistökin sem eiga sér
stað eru ekki klippt burt heldur
látin fljóta með. „Þannig lærði ég
að elda. Mistök eru leið til þess að
læra og reynsla mín er sú að það sé
alltaf hægt að bjarga sér. Það sem
kemur út er alltaf matur þótt hann
sé misjafnlega góður," segir Krist-
inn og hlær.
Hann hefur einnig verið spurð-
ur að því hvort hann sé í karekter í
þáttunum eða hvort þetta sé bara
hann sjálfur: „Maður er alltaf í mis-
munandi karakter eftir aðstæðum.
Núna er ég í viðtali við þig og hegða
mér því öðruvísi en ef ég væri með
vinum mínum. Ég er kannski að-
eins ýktari útgáfa af sjálfum mér í
SOÐI en ég held ég sé samt svona.
Ég er klaufi, ég klúðra hlutum en er
óhræddur við að viðurkenna það
og leyfa hlutunum að flæða," seg-
ir Kristinn.
Þáttur í hverri viku
Talsvert álag hefur verið á Kristni
síðan þættirnir hófu göngu sína í
byrjun árs enda koma þeir alltaf
út á fimmtudögum í hverri viku.
„Ég byrjaði á því að taka upp 5-6
þætti í byrjun janúar. Ég var á
leiðinni til Hamborgar til þess
að dansa í verki þar í nokkrar
vikur og á meðan ég var þar þá
dansaði ég á daginn en klippti
á kvöldinn. Ég hef síðan haldið
óslitið áfram að birta þátt í hverri
viku og það er talsvert álag með
fram heimilislífinu og annarri
vinnu. Ég hef aldrei klúðrað því
að gefa út þátt en ég hef af illri
nauðsyn stundum búið til þætti
í beinni útsendingu sem voru að
einhverju leyti skítaredding en
gáfu þáttunum líka aðra vídd.
Það er ný reynsla fyrir mig því
að nánast öll mín listsköpun og
vinna hefur verið með hópum
sem hentar mér afar vel. Ég þrí-
fst í raun og veru á því. Í SOÐI var
ég til að byrja með einn en smátt
og smátt hafa áhorfendur farið
að taka þátt með athugasemdum
og uppástungum. Þetta er því að
þróast út í eins konar hópvinnu
sem mér finnst mjög skemmti-
legt," segir hann.
Hann er afar ánægður og
þakklátur fyrir vinsældir þátt-
arins. „Ég hef fengið mikil við-
brögð við þáttunum. Það var afar
ánægjulegt að Sjónvarp Símans
skyldi kaupa fyrstu þáttaröðina
sem gaf mér aðeins rými til þess
að anda. Í kjölfarið hafa ýmis fyr-
irtæki sett sig í samband við mig
varðandi hugsanlegt samstarf
og það er ýmislegt spennandi í
pípunum," segir Kristinn. Eins
og áður segir þá er hann að taka
upp nýja þætti á Íslandi, úti í
sveit. „Þeir þættir koma inn eft-
ir nokkrar vikur og verða með
íslensku ívafi. Ég held út í sveit,
meðal annars í Þórsmörk, og
þetta er því algjört skítamix,"
segir Kristinn og hlær. Hann seg-
ist spenntur fyrir að elda og út-
færa íslenskan mat með nýj-
um áherslum. „Mig langar til að
prófa mig áfram með íslensk-
an mat eins og svið og slátur. Ég
fór til Írans með mastersnáminu
mínu og prófaði þar írönsku út-
gáfuna af sviðum. Það var ótrú-
lega bragðgott og fékk mig til að
hugsa um það hve íslensk svið,
þó góð séu, eru í raun bragðlaus.
Það sama gildir um slátrið okkar
sem er mjög bragð- og áferðar-
laust í samanburði við skoska
haggisið sem er frábær matur,"
segir Kristinn. n
Einbeittur SOÐ-þættir Kristins eru
teknir upp á vinnustofu hans í Brussel.
Hann segir það heppilegt að lykt finn-
ist ekki í gegnum sjónvarpið því ýmis
efni sem hann notar í sinni listsköpun
kitla ekki beint bragðlaukana.
Óvenjulegur pottur Í vikunni bauð Kristinn í SOÐ-boð og eldaði heilan lambaskrokk með svokallaðri sous-vide aðferð í heitum potti
foreldra sinna.