Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Blaðsíða 16
16 sport Helgarblað 14. júlí 2017
Í
slenska kvennalandsliðið
í knattspyrnu hefur leik á
Evrópumótinu í Hollandi
næsta þriðjudag þegar liðið
mætir einu sterkasta landsliði
í heimi, Frakklandi. Stelpurnar
halda út í dag, föstudag. Liðið hef-
ur æft saman hér á landi síðustu
daga og vikur til að skerpa á öllum
hlutum fyrir þetta stórmót, liðið
leggur mikinn metnað í mótið og
ætlar sér stóra hluti. Liðið fer ekki
til Hollands til þess eins að vera
með, liðið ætlar sér upp úr riðl-
inum en ásamt Frakklandi eru
Sviss og Austurríki andstæðingar
Íslands.
Freyr Alexandersson, þjálfari
liðsins, hefur breytt hugarfari leik-
manna síðustu ár, liðið stefnir
langt í Hollandi. Ef liðinu tekst
að komast upp úr riðlinum hefur
Freyr talað um að liðið geti stefnt á
það vera á meðal þriggja efstu liða
og komast á pall.
Verið kúnst að setja allt saman:
Freyr fékk leikmennina saman í
byrjun mánaðar og hefur nýtt tí-
mann vel, leikfræði og aðrir hlutir
hafa verið í forgangi en einnig að
passa upp á að allir leikmenn verði
að ná toppnum þegar til Hollands
er komið. „Tíminn hefur nýst mjög
vel, það var smákúnst að setja
þetta saman. Ná að fara yfir leik-
fræði og að halda leikmönnum
ferskum, í byrjun voru leikmenn
nokkuð þreyttar og laskaðar. Það
var ástæða þess að við tókum ekki
neinn leik fyrir mót, þetta hefur
gengið hrikalega vel. Þetta hefur
verið meiðslalaust fyrir utan eitt-
hvað smáræði eins og spark í rist
og þannig hlutir, Rakel Hönnu-
dóttir kom löskuð inn en er á góð-
um batavegi. Það er gríðarlega góð
stemning í hópnum, það er rosaleg
einbeiting í öllum leikmönnum.
Ég held að við séum búin að negla
þetta, þetta hefur verið mjög flott,“
sagði Freyr þegar DV ræddi við
hann um komandi átök.
„Það er klárlega þannig að ekki
neinn leikmaður vill vera meidd-
ur núna og leikmenn eru klárir í
að harka meira af sér, ég hef tekið
þá ákvörðun að taka þá leikmenn
sem hafa fengið högg úr snertingu
daginn eftir. Leikmenn hafa ekki
beðið um það og hafa yfirleitt vælt
yfir því að æfa ekki, það er flott
hugarfar. Það er hins vegar mitt og
sjúkraþjálfaranna að passa að allt
sé í lagi.“
Selfyssingar gerðu allt fyrir
stelpurnar:
Stelpurnar fóru fyrir síðustu helgi
til Selfoss og æfðu þar, einnig var
hópnum þjappað saman með ferð
í Mjölni og þá tók Freyr lagið fyrir
mannskapinn sem þótti heppnast
með ágætum. „Þetta var gaman,
þetta var bæði samvinnuverkefni
og síðan æfðum við vel. Það voru
frábærar aðstæður á Selfossi, frá-
bært æfingasvæði og við fengum
bara að hafa þetta eins og við
ættum svæðið. Þetta voru frábær-
ar móttökur frá þeim, svo tókum
við styrktaræfingu í Mjölni. Það
var gott fyrir hópinn að fara inn í
Mjölni, það býr til hugarfar sem
gerir liðinu gott. Eftir þessa viku
var einn frídagur, leikmenn voru
búnir á því. Núna er ferskleikinn
kominn aftur og leikmenn klárir í
slaginn.“
Verður óvænt útspil í fyrsta
leik?
Freyr veltir því fyrir sér að taka
einn sterkasta miðjumann liðsins,
Dagnýju Brynjarsdóttir, og spila
henni sem framherja í fyrsta leik
gegn Frakklandi. Um væri að
ræða óvænt útspil sem þjálfarinn
hefur lengi velt fyrir sér, vanda-
mál liðsins hefur verið að skora
mörk og Dagný er klók að taka
færin sín. „Ég hef verið að velta
byrjunarliðinu fyrir mér, það er
ekki klárt. Það eru nokkur atriði
sem ég þarf að vega og meta út frá
andstæðingum okkar, ég tek lík-
lega endanlega ákvörðun um allt á
sunnudaginn hvernig liðið verður.
Til að geta farið yfir það á æfingu
á sunnudegi og mánudegi. Ég hef
hugsað um að byrja með Dagnýju
sem fremsta leikmann, hún er
klár í það. Við, samt sem áður, vit-
um að kraftar hennar nýtast mjög
vel á miðjunni, það sem ýtir þó
undir að setja hana fremst á völl-
inn er að Sigríður Lára Garðars-
dóttir hefur spilað frábærlega á
síðustu tveimur leikjum fyrir mót.
Við höfum átt í erfiðleikum með
að skora mörk en skapað okkur
fullt af færum, tölfræðin hennar
Dagnýjar er frábær og það ýtir mér
út í það að nota hana mögulega i
fremstu stöðu. Ég hef ekki tekið
neina ákvörðun um þetta en það
gæti komið fyrir í mótinu að hún
verði fremsti maður.
Dagný heldur boltanum mjög
vel sem fremsti maður, Katrín Ás-
björnsdóttir gerir það líka mjög vel
og Harpa Þorsteinsdóttir einnig.
Við erum því með þrjá mjög öfluga
leikmenn í því að halda boltanum,
eins og við vitum er Harpa aldrei
að fara að spila 90 mínútur. Hún
hefur góða orku í að taka 30 til 40
mínútur á þessu stigi, Dagný gæti
byrjað sem framherji gegn Frakk-
landi. Hún gæti byrjað sem miðju-
maður, ég þarf að velta þessu að-
eins meira fyrir mér.“
Ótrúlegt form Hörpu
Harpa Þorsteinsdóttir, framherji
liðsins, hefur verið ótrúlega öflug
við að koma sér í form, hún eign-
aðist barn í upphafi árs en tölurn-
ar ljúga ekki, Harpa er í mögnuðu
formi. „Ég skal vera alveg heiðar-
legur, við vorum í gær að klára
að fara yfir tölurnar úr GPS-tæk-
inu hennar og styrktarþjálfarinn
sagði að miðað við hvað hefur
verið í gangi hjá henni síðustu níu
mánuði eða svo að þá er ekki hægt
að vera komin lengra í ferlinu en
hún er komin, hún er í frábæru
standi miðað við allt sem á undan
hefur gengið.“
Áskorun að halda spennu
stiginu í lagi
Freyr segir að fyrsta áskorun
við komuna til Hollands sé
að halda spennustigi leik-
manna í lagi. „Það verður áskor-
un, nýjar aðstæður þegar við
komum til Hollands í kvöld og
nýtt æfingasvæði. Við þurfum
að nýta æfingarnar vel, ég þarf
að halda leikmönnum niðri.
Þið fjölmiðlar og fólkið hérna
heima hafið samt hjálpað okkur,
það hefur verið hátt spennustig
hérna heima og í þjóðfélaginu.
Mikið áreiti, þetta verður ekki
nein sprengja úti. Núna er öll
einbeiting á leikinn við Frakk-
land. Sviss og Austurríki eru til
hliðar hjá okkur núna en Heimir
Hallgrímsson og Arnar Bill halda
utan um allar upplýsingar um þá
andstæðinga okkar. Við einbeit-
um okkur bara að Frakklandi
með Davíð Snorra.“ n
Komið að stóra prófinu
n Freyr hefur unnið magnað starf n EM í Hollandi hefst í næstu viku
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Þriðjudagurinn 18. júlí
Frakkland - Ísland
Laugardagurinn 22. júlí
Ísland - Sviss
Miðvikudagurinn 26. júlí
Ísland - Austurríki
Leikir landsliðsins á EM