Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Side 18
18 sport Helgarblað 14. júlí 2017
Yfirheyrslan
Stelpurnar eru klárar
fyrir stóra sviðið
Stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu í knattspyrnu eru að fara á Evrópumótið í Hollandi og hefur liðið leik þann 18. júlí næstkomandi.
Stelpurnar okkar hafa staðið sig vel á síðustu stórmótum og ætla sér stóra hluti í Hollandi. Fram að mótinu höfum við verið að kynnast
leikmönnum liðsins betur, spurt er um allt milli himins og jarðar en þær Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir sitja
fyrir svörum í dag.
hoddi@433.is
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er baráttuhundur á miðjunni
sem gefur ekkert eftir, lék lengi vel með Stjörnunni hér
heima og er mikill leiðtogi innan vallar. Gunnhildur hefur
staðið sig vel á Norðurlöndunum síðustu ár og fer með
landsliðinu á EM í Hollandi.
Uppáhaldsmatur?
Lax.
Besti veitingastaðurinn?
Mathús Garðabæjar.
Hvað færðu þér á pizzuna?
Pepperoni, sveppi, rjómaost, ólífur, hvítlauk og
jalapeno.
Uppáhaldsstaður á Íslandi?
Heima hjá mömmu og pabba.
Twitter eða Facebook?
Facebook.
Draumabíllinn?
Tesla.
Uppáhaldshljómsveit?
Oasis.
Uppáhaldsborg?
London.
Hvaða þrjá aðila í heiminum
tækirðu með þér til Vegas?
Láru Sif, Katrínu Björk og Ólöfu
Sigríði. Ég hef átt mörg ævintýri með
þeim og treysti þeim.
Hvaða leikmaður í landsliðinu er
erfiðastur á æfingum?
Örugglega Sara Björk, hún er svo mikil
keppnismanneskja.
Hvaða leikmaður í landsliðinu tuðar
mest?
Ég verð að nefna herbergisfélagann minn,
Guðbjörgu, samt á fyndinn hátt.
Hvað er leiðinlegast að gera á
æfingum?
Skokka í hringi í upphitun.
Á hvaða velli er skemmtilegast að
spila?
Laugardalsvelli eða Stjörnuvelli.
Hvernig takkaskó notar þú?
Nike Mercurial.
Gras eða gervigras?
Gott gras.
Besta íslenska knattspyrnukona i sögunni?
Margrét Lára Viðasrdóttir.
Hvað er það skemmtilegasta við stórmót í
fótbolta?
Fá að keppa á móti bestu liðunum.
Hvar endar Ísland á EM í Hollandi?
Förum í hvern einasta leik til að vinna!
Sigríður Lára Garðarsdóttir er öflugur leikmaður frá
Vestmannaeyjum sem hefur fest sig í sessi í landsliðinu síðustu
mánuði, er líkt við sláttuvél en ekkert kemst fram hjá þessum
kröftuga miðjumanni. Búist er við að Sigríður Lára spili stórt
hlutverk á EM sem hefst í næstu viku.
Uppáhaldsmatur?
Það er eiginlega allt sem mamma mín eldar.
Besti veitingastaðurinn?
Gott í Vestmannaeyjum.
Hvað færðu þér á pizzuna?
Skinku og ananas.
Uppáhaldsstaður á Íslandi?
Vestmannaeyjar.
Twitter eða Facebook?
Facebook.
Draumabíllinn?
Audi.
Uppáhaldshljóm-
sveit?
Er alæta á tónlist,
erfitt að gera upp
á milli.
Uppáhaldsborg?
New York.
Hvaða þrjá aðila í
heiminum tækirðu með
þér til Vegas?
Ég myndi taka Svövu Töru, Tönju
Rut og Kristínu Ernu með til Vegas. Það
er alltaf gleði og gaman í kringum þær.
Hvaða leikmaður í landsliðinu er erfiðastur
á æfingum?
Sara Björk.
Hvaða leikmaður í landsliðinu tuðar mest?
Hef ekki tekið eftir neinni sem tuðar mikið.
Hverri í landsliðinu er erfiðast að mæta á
æfingu?
Hópurinn samanstendur af frábærum
leikmönnum, erfitt að mæta þeim öllum.
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum?
Skokka hringi.
Á hvaða velli er skemmtilegast að spila?
Hásteinsvelli.
Hvernig takkaskó notar þú?
Nike Magista.
Gras eða gervigras?
Gras.
Besti íslenska knattspyrnukona i sögunni?
Margrét Lára og Sara Björk.
Hvað er það skemmtilegasta við stórmót í
fótbolta?
Á eftir að kynnast þeirri tilfinningu, en
undirbúningurinn lofar góðu.
Hvar endar Ísland á EM í Hollandi?
Ísland endar ofarlega.