Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Qupperneq 20
20 umræða Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Sigurvin Ólafsson ritstjóri dv.is: Kristjón Kormákur Guðjónsson aðstoðarritstjóri dv.is: Einar Þór Sigurðsson umbrot: DV ehf. Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. aðalnúmer: 512 7000 auglýsingar: 512 7050 ritstjórn: 512 7010 fréttaskot 512 70 70 Heimilisfang Kringlan 4-12, 4. hæð 103 Reykjavík Sandkorn Helgarblað 14. júlí 2017 V ið í pólitíkinni fréttum bara af þessu eins og aðrir í fjölmiðlum,“ sagði borgarfulltrúi Pírata, Halldór Auðar Svansson, um mengunarslysið sem varð við Faxaskjól þar sem úrgangur fyllti strendur. Í annað skiptið á skömmum tíma varð svo borg­ arstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, að viðurkenna að hann hefði fyrst frétt af óþægi­ legu máli í fjölmiðlum. Í fyrra skiptið var það vegna vopna­ burðar lögreglu á almennings­ samkomum, sem enginn hafði haft fyrir því að láta vita hann af, og í seinna skiptið var það vegna bilunar neyðarlúgu við dælu­ stöðina í Faxaskjóli með tilheyr­ andi ömurlegum afleiðingum. Nú er í sjálfu sér ágætt að borgar stjórinn sé blíður á manninn, eins og Bastían bæjar­ fógeti, en hann á ekki bara að vera til skrauts. Hann er í ábyrgðar­ starfi sem fulltrúi almennings og á að vera upplýstur um mikilvæg mál sem varða hag borgarbúa – og þá skiptir engu hvort hann er í sumarfríi eður ei. Því verður vart trúað að Dagur B. Eggertsson sé svo værukær að honum þyki best að frétta sem minnst af óþægileg­ um málum, en sé svo getur hann ekki vænst þess að verma lengi stól borgarstjóra. Sem borgar­ stjóri ber hann ábyrgð. Boðleiðir til hans eru greinilega ekki í lagi og hann ætti að leggja sig eftir því að láta kippa þeim í liðinn. Stjórnendur Veitna, dóttur f yrirtækis Orkuveitunnar, áttu samstundis að skýra frá bil un neyðarlúgunnar og upp­ lýsa bæði borgaryfirvöld og al­ menning. Það var ekki gert og erfitt er að fá annað á tilfinn­ inguna en að þar á bæ hafi menn viljað gera fremur lítið úr bilun­ inni, það var látið eins og þarna hafi orðið smávægilegt óhapp. Það er ekkert einkamál Veitna þegar alls kyns viðbjóður fyllir strendur í nágrenni byggðar og engin leið að réttlæta þögn um þetta mál. Það ber hins vegar að virða við forsvarsmenn Veitna að þeir hafa beðist afsökunar á skorti á upplýsingargjöf. Rétt er að gefa sér að þar hafi menn lært af málinu. Stjórnmálamenn ættu einnig að leggja sig eftir því að læra af þessu leiðindamáli. Þeir eru kjörnir fulltrúar almennings og það er lágmark að þeir láti sig al­ mannahagsmuni einhverju varða en þegi ekki eða yppi öxlum og segjast ekki hafa vitað af málinu. Ef þeir hafa ekki ver ið upplýstir um málið hafa orðið alvarleg mis­ tök sem þeir eiga ekki að sætta sig við. Ef þeim er einfaldlega hjartan­ lega sama er best fyrir þá að finna sér aðra vinnu. Borgarstjórinn á svo alveg sérstak lega að leggjast í rannsókn á því af hverju það gerist ítrekað að hann sé ekki látinn vita af mál­ um sem honum koma sannarlega við. Dagur B. Eggertsson vill alveg örugglega vera annað og meira en bara upp á punt á tyllidögum. n Af hverju má ekki segja frá? Mikilvæg sannindi Þingmaður Pírata, Gunnar Hrafn Jónsson, fór fram úr sér á dögunum þegar hann sagði í Facebook­færslu: „Ég myndi ekki hika við að pynta og drepa mann sem myndi brjóta gegn mínu barni.“ Ekki beint það sem á að tíðkast í siðuðu samfélagi. Það má segja Gunnari Hrafni til hróss að hann dró orð sín til baka og baðst afsökunar um leið og hann minnti á þau mikilvægu sannindi að „í réttarríki eru það yfirvöld en ekki einstaklingar sem eiga að framfylgja lögum og rétti og úthluta refsingu,“ svo vísað sé í orð þingmannsins sjálfs. Gunnar Hrafn bætti við: „Óttinn við að eitthvað komi fyrir barnið manns verður stundum rök­ hugsun yfirsterkari þegar maður er að ræða þessi mál á Facebook og þar gerði ég mikil mistök sem ég biðst velvirðingar á.“ Þetta er góð afsökunarbeiðni hjá þing­ manninum, sem virðist gera sér fulla grein fyrir því að í umræðum um viðkvæm mál þarf að stíga varlega til jarðar. Ekkert væl Hátt gengi krónunnar hefur fram­ kallað grát og gnístran tanna hjá aðilum í ferðaþjónustu. Það er farið að teljast til tíðinda ef menn bera sig vel á þeim bæ. Það gerð­ ist þó á dögunum þegar móttöku­ stjóri Hótels Arnarstapa, Hafrún Jóhannesdóttir, sagði í sjónvarps­ fréttum RÚV að gríðarlega mikið væri um bókanir og allt gengi afar vel. Þegar hún var spurð um hugsanlega fækkun ferðamanna sagði hún að þá yrði bara aðlaga sig að því. Ekkert væl á þeim bæ og mjög til eftirbreytni. Breyttir tímar Verslun á Íslandi er í ákveðnu uppnámi með innreið risa á borð við Costco og H&M. Sagt er að fleiri alþjóðlegar keðjur horfi nú áhugasamar til landsins, til dæmis Primark. Reyndir verslunarmenn segjast finna fyrir breyting­ um með ýmsum hætti. Ekki er lengur slegist um verslunarpláss í Kringlunni, svo dæmi sé tek­ ið. Það þykja heilmikil tíðindi í þessum bransa. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir rifar upp gömul ummæli pólitískra andstæðinga. – eyjan.is Oddný G. Harðardóttir – eyjan.is Davíð Oddsson vill hitta Dag B. Eggertsson. – Morgunblaðið Gott ef ég var ekki einhvers staðar kölluð „skólp-Solla“ Konur þurfa kannski bara að vera duglegri? Slíka menn þarf að finna í fjöru sem fyrst. Miðnætursól Íslenskt sumar er nú í algleymingi og jafnvel þótt einhverjum þyki skorta sólarstundir þá koma samt blíðir dagar inn á milli. Þetta vaska fjallafólk lagði leið sína á Snæfellsjökul um miðnæturbil nú í vikunni. MynD SIGtryGGur ArIMyndin „Stjórnmálamenn ættu einnig að leggja sig eftir því að læra af þessu leiðindamáli. M y n D S IG tr y G G u r A r I Leiðari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.