Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Page 22
22 Helgarblað 14. júlí 2017fréttir
Í viðtali DV við Kristinn Kristmundsson versl-
unareiganda þann 10.
júlí var rakin saga svip-
legs dauða kattarins
Diddu árið áður. Krist-
inn, sem oftar er kallað-
ur Kiddi Vídeofluga, var
þess fullviss að nágranni
hans hefði skotið köttinn
til bana en hinn meinti
banamaður var hins
vegar sýknaður í héraðs-
dómi. Kiddi gaf lítið fyr-
ir þá niðurstöðu og var
enn sannfærður um að
nágranninn hefði skot-
ið Diddu með riffli út um
svefnherbergisgluggann
hjá sér þegar kisi var að
klifra upp í tré hjá honum.
Eða eins og Kiddi orðaði
það við DV: „Ekki skaut
hún sig sjálf“. Söknuður
Kidda var mikill og var
hann ákveðinn
að láta stoppa
Diddu upp. Það
verk hafði þó taf-
ist nokkuð og
þegar viðtalið
var tekið hafði
hann geymt
Diddu inni í ís-
skáp í rúmt ár.
Rúmum tveimur
árum síðar tók
DV aftur viðtal
við Kidda og þá
var Didda enn
á sínum stað,
óuppstopp-
uð, en þá viðr-
aði Kiddi þá
hugmynd sína
að láta klóna
Diddu. Að vísu
meira í gríni en
alvöru.
fyrir 10 árum
n Birgitta mótmælti n Rúnar Þór sýknaður n Didda skotin n Pistorius á Landsmóti UMFÍ
föstudagur 13. júlí 20074
Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
HPI HELLFIRE RTR
3ja hestafla fjarstýrt torfærutæki.
Nethyl 2. Sími 587-0600. www.tomstundahusid.is
Nú á
lækkuðu
verði!
Drekkum meira
Við keyptum 66 prósent meira
af áfengi á fyrri hluta ársins en í
fyrra.
Matarkaup jókust mikið á
sama tíma, eða 16,5 prósent.
Þetta kemur fram í tölum frá
Rannsóknarsetri verslunarinnar.
Þar kemur fram að neysla
landsmanna jókst verulega í
júní miðað við síðasta ár. Þegar
leiðrétt hafði verið með hliðsjón
af árstíma og verðbólgu kom í
ljós að eyðsla landsmanna var
nær 17 prósent meiri í síðasta
mánuði en í fyrra. Þetta gerist
þrátt fyrir að verðlag hafi lækkað
um 2 prósent á sama tíma. Fólk
kaupir því meira en áður.
Skemmdavargar
á mótorhjólum
Mótorhjólum hefur ítrekað
verið ekið um uppgræðsluland í
Selsundi á Rangárvöllum. Sama
gildir raunar um jarðir í nágrenni
Heklu og víða á afréttum. Utan-
vegarakstur getur valdið miklum
skemmdum á landi.
Mótorhjólamennirnir
skemma landbætur sem fólk
leggur í vinnu og fjármuni í að
græða upp en þetta kemur fram
á heimasíðu Landgræðslunnar.
Eldislax er ekki ástæða þess að seiðum í Elliðaám hefur fækkað:
Lax í Elliðaám í lægð
Laxastofn Elliðaáa hefur verið í
lægð á undanförnum árum. Mikið
af eldislaxi gekk í árnar á síðasta ára-
tug og var talið að hnignun stofnsins
mætti að hluta til rekja til blöndun-
ar hans við eldislax. Leó Alexander
Guðmundsson líffræðingur rann-
sakaði erfðabreytileika laxins í Ell-
iðaám og komst að þeirri niðurstöðu
að villti stofninn hefði ekki breyst
að erfðasamsetningu við þetta inn-
streymi.
Elliðaár hafa verið gjöfular lax-
veiðiár en á síðasta áratug minnkaði
laxagangan talsvert. Í meistaraverk-
efni sínu rannsakaði Leó erfðabreyti-
leika lax í Elliðaánum í tíma og rúmi.
„Um tíma var hlutfall eldislax í ánum
orðið um 40 prósent eftir að lax af
hafbeitar- og kvíauppruna úr eld-
isstöðvum við Faxaflóa gekk í þær,“
segir hann. „Menn óttuðust að eld-
islaxinn hefði breytt erfðasamsetn-
ingu stofnsins í Elliðaám en sú virð-
ist ekki raunin.“
Lítil seiðaframleiðsla í efri ám Ell-
iðaáa er áhyggjuefni að sögn Leós.
„Mögulega orsakast það af samspili
margra þátta. Á svipuðum tíma og
innstreymi eldislax varð vart greind-
ist kílaveiki í villta stofninum. Einnig
kom fram nýr þörungur í vatnakerf-
inu og mengun er talin eiga sinn þátt
í þessari fækkun seiða.“
Vatnakerfi Elliðaáa samanstendur
af tveimur efri ám, Hólmsá og Suð-
urá, sem renna í Elliðavatn og koma
saman í Elliðaá sem rennur úr vatn-
inu. „Eitt það merkilegasta sem kom
í ljós var að þarna greindi ég einn
laxastofn en ekki þrjá aðskilda stofna
í ánum þremur,“ segir Leó.
Til að sporna við fækkuninni
hafa verið tekin seiði undan laxi úr
neðri ánni og sleppt í þær efri. „Í
því sambandi er mikilvægt að þetta
hefur verið greint sem sami stofn-
inn. Þannig er vitað að ekki er verið
að blanda stofnum,“ segir Leó. Við
rannsókn sína skoðaði hann hreist-
ursýni af laxi frá 1948 til 2005. „Það
hefur engin rannsókn verið gerð á
Íslandi þetta langt aftur í tímann á
erfðasamsetningu stofns. Rannsókn-
in er því allsérstæð.“ erla@dv.is
Borgarstjóri veiðir lax í Elliðaám
laxaganga í Elliðaám hefur farið
minnkandi síðan á síðasta áratug.
Bíll og grjót
ekki fjarlægt
Héraðsdómur Reykjavíkur
hafnaði því með úrskurði sín-
um í gær að Flugskóla Helga
Jónssonar yrði gert skylt að
rýma lóð á Reykjavíkurflug-
velli svo Fjarðaflug gæti komi
þar upp flugafgreiðslu.
Vildi Fjarðaflug að Flug-
skóla Helga Jónssonar yrði
gert skylt að fjarlægja bíl, stór-
grýti og aðra muni í eigu skól-
ans af lóðinni. Fjarðaflug fékk
leyfi frá borginni og Flugstoð-
um til að nota lóðina án þess
að leyfi til þess hafi fengist frá
eiganda lóðarinnar, íslenska
ríkinu. Þó leyfi hafi fengist
frá fjármálaráðuneytinu eftir
þingfestingu málsins var það
engu talið breyta.
Rúnar Þór Róbertsson var í gær sýkn-
aður af ákæru um að hafa smyglað
3,8 kílóum af kókaíni til landsins í
Mercedes Sprinter bifreið sem flutt
var inn frá Þýskalandi. Jónas Árni
Lúðvíksson var sömuleiðis sýknaður
af því að hafa í félagi við Rúnar fjar-
lægt ætluð fíkniefni úr bílnum og tek-
ið þau í vörslu sína með sölu þeirra í
huga. Sveinn Andri Sveinsson gagn-
rýnir að ódæmdir menn séu settir í
fangelsi.
Í vitnastúku sagði Rúnar að mað-
ur sem hann vildi ekki nafngreina
hefði boðið sér bíl upp í skuld vegna
iðnaðarstarfa sem hann vann fyrir
manninn. Rúnar sá um innflutning
bifreiðarinnar og kom hún til lands-
ins í nóvember. Í febrúarbyrjun leysti
hann bílinn út úr tollinum og flutti
hann í nágrenni Þykkvabæjar til við-
gerðar. Næsta dag hafði ónefndi mað-
urinn samband við Rúnar og spurð-
ist fyrir um bílinn. Þegar Rúnar sagði
honum frá nauðsynlegum viðgerð-
um hafi maðurinn boðist til að útvega
mann til verksins og kom á fundi með
Rúnari og Jónasi sem höfðu ekki hist
áður.
Að sögn lögreglu fundu tollverðir
kókaínið í bílnum í nóvember. Efninu
var skipt út fyrir gerviefni og
sérstakt fingrafaraduft sett
á pakkningarnar. Fylgst var
með bílnum og sími Rúnars
hleraður.
Mikið
fagnaðarefni
Í dómssal sagði Jónas
að hann hafi frá upphafi
vitað af gerviefnunum þar
sem ónefndi maðurinn hafi
sýnt honum grein í DV frá
því 1. desember þar sem kom
fram að um 4 kíló af kókaíni hafi
fundist í bifreið. Jónas sagðist hafa
fjarlægt gerviefnin að beiðni manns-
ins og að Rúnar hafi gert það með
honum. Það vildi Rúnar ekki kannast
við og sagði Jónas hafa verið einan að
verki. Hann sagði sig fyrst hafa grun-
að að um fíkniefnainnflutning væri
að ræða þegar hann var handtekinn
næsta dag.
Hvorki Rúnar né Jónas vildu nafn-
greina óþekkta manninn af ótta um
öryggi sitt og barna sinna.
Sveinn Andri Sveinsson, lög-
maður Jónasar, segir að stöðugleiki
í framburði hans hafi skipt miklu.
„Dómarinn telur að rannsókn máls-
ins hafi ekki nægt til að rengja fram-
burð hans sem gekk út á að hann
hafi alltaf vitað að þarna var ekki um
fíkniefni að ræða. Þessu hélt Jónas
fram frá upphafi.“ Hann er ánægður
með sýknudóminn. „Þetta er mikið
fagnaðarefni og nokkuð rökrétt nið-
urstaða. Mér finnst þetta vel saminn
dómur.“
Sveini finnst það umhugsun-
arefni að sakborningar hafi setið í
fangelsi í marga mánuði án þess að
vera dæmdir. Rúnar sat í gæsluvarð-
haldi í sex mánuði og Jónas í fjóra.
„Það þarf að taka á þessari áráttu
innan réttarkerfisins að setja alla
í gæsluvarðhald. Mér finnst þessi
sýknudómur vera skýr skilaboð um
að það þarf að endurskoða þessi
mál. Ég met frelsið mikils. Menn
eiga ekki að sitja í fangelsi nema
þeir hafi verið dæmdir.“
Saklausir menn í fangelsi
Að mati Sveins á aðeins að
láta menn sitja í gæsluvarð-
haldi í undantekningar-
tilfellum. „Það er talað
um að sakborningar séu
í gæsluvarðhaldi vegna almanna-
hagsmuna. Ég kannast ekki við þann
almenning sem vill að brotið sé á sak-
laustu fólki.“
Þorsteinn Einarsson, lögmað-
ur Rúnars er ánægður með dóminn.
„Ég átti von á þessari niðurstöðu. Það
er í sjálfu sér ekkert sem tengir um-
bjóðanda minn við þennan innflutn-
ing, hvorki hleranir lögreglu né ann-
að. Hann flutti bílinn vissulega inn
en hafði ekki vitneskju um að í hon-
um væru fíkniefni.“ Þorsteinn segir að
það hafi leikið það mikill vafi á tengsl-
um Rúnars við innflutninginn að rök-
rétt hafi verið að sýkna hann.
Saksóknari krafðist sjö til átta ára
fangelsis yfir Rúnari en þriggja til fjög-
urra ára yfir Jónasi. Dómurinn hafn-
aði því að lagt yrði hald á bílinn og fær
Rúnar hann því aftur í hendur.
Sakarkostnaður greiðist úr ríkis-
sjóði, þar á meðal laun verjenda og
aksturskostnaður þeirra. Jónas vildi
ekki tjá sig um málið þegar DV náði
tali af honum. Ekki náðist í Rúnar við
vinnslu fréttarinnar.
Erla hlynSdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Kókaín og
réttindi
sveinn andri sveinsson,
hæstaréttarlögmaður, segir að brotið sé á mannréttindum saklausra manna sem látnir eru sitja í fangelsi
mánuðum saman. algengt er að óskað sé eftir gæsluvarðhaldi á grund-velli
almannahagsmuna en sveinn segist ekki kannast við þann almenning sem kýs að brotið sé á fólki með þessum hætti.
Sýknaður af
kókaínSmygli og
fékk bíl í kaupbæti
Sveinn andri Sveinsson,
hæstaréttarlögmaður,
segir það áráttu hjá
stjórnvöldum að láta
ódæmda menn sitja í
fangelsi á grundvelli
almannahagsmuna.
rúnar Þór róbertsson
Hann var sýknaður af ákæru um
smygl á nærri fjórum kílóum af
kókaíni.
Rúnar Þór Róbertsson var þann 12. júlí sýknaður af
ákæru um að hafa smyglað 3,8
kílóum af kókaíni til landsins í
Mercedes Sprinter-bifreið sem
flutt var inn frá Þýskalandi. Við
meðferð málsins sagði Rúnar
að maður sem hann vildi ekki
nafngreina hefði boðið sér um-
ræddan bíl upp í skuld vegna
iðnaðarstarfa sem hann vann
fyrir manninn. Rúnar sá um
innflutning bílsins en áður
en bíllinn komst í hans hend-
ur fundu tollverðir kókaínið og
skiptu því út fyrir gerviefni. Í
kjölfarið fylgdist lögregla með
bílnum og hleraði síma Rúnars.
Héraðsdómari taldi hins vegar
ekki sannað að Rúnar hefði
gerst brotlegur við lög og var
sú niðurstaða staðfest í Hæsta-
rétti árið 2008. Rúnar krafðist
síðar skaðabóta frá ríkinu fyrir
að hafa haft hann í gæsluvarð-
haldi vegna mál ins n tapaði
því máli fyrir Hæstarétti árið
2010. Sama ár vann hann hins
vegar ærumeiðing rmál gegn
Erlu Hlynsdóttur, vegna um-
fjöllunar hennar um málið í DV,
og fékk dæmdar miskabætur.
Þeirri niðurstöðu sneri Mann-
réttindadómstóll Evrópu að
vísu nýverið. Í millitíðinni, eða
árið 2009, var Rúnar dæmdur
í 10 ára fangelsi fyrir þátt sinn í
hinu svokallaða Papeyjarmáli.
RúnaR ÞóR RóBeRtsson sýknaðUR aF
kókaÍnsMygLi - DV DRegið FyRiR DóMstóLa
Þann 10. júlí stormaði Birgitta Jónsdóttir, núverandi þing-
kona og þáverandi mótmælandi
og Íslandsvinur, ásamt fjöld
mótmælenda inn í Kringlu a
t l að æra b rt illa anda. Að
s gn öryggisvarða Kringlunn-
ar fylgdu mótmælunum gríðar-
leg læti og þurftu þeir að hafa
sig alla við að koma fólkinu út
úr verslunarmiðstöðinni. Líkti
einn þeirra ástandinu við átaka-
svæði í Miðausturlöndum og lét
hafa eftir sér að mótmælendurn-
ir hafðu hagað sér eins og vitleys-
ingar. Þannig klæddi ein mótmæl-
andinn sig upp sem p e t og hóf
mikla ldræðu um stóriðjustefnu
á Íslandi og vildi særa út illa anda
auðvaldsins. Sjálf sagðist Birgitta
hafa hlegið að hamaganginum
enda hafi mótmælendurnir ekki
vilj ð ne num illt, aðeins viljað
vekja thygli á stóriðjustefnu stjórn-
valda. Öryggisverðir, og væntanlega
gestir Kringlunnar líka, vissu ekki
sitt rjúka di ráð enda áttu þeir erfitt
með að sjá hvernig ver lunarmið-
stöðin Kringlan te gdist stóriðju-
stefnu. „Maður varð ansi sveittur
eftir átökin“ lét einn öryggisvarð-
anna hafa eftir sér í spjalli við DV
um atvikið.
Læt Í B R ittU
Varahlutirnir sem Guðmundur
Gísli Viktorsson, tvítugur Reykví
k-
ingur, keypti í bílinn sinn kostuð
u
ein ngis þriðjung þess sem um
-
boðið hafði gefið upp sem verð fyr
ir
varahlutina. Ástæðan var sú að han
n
keypti þá á netinu. Þegar varahlu
t-
irnir voru komnir hingað og búið a
ð
borga af þeim tolla og gjöld kostuð
u
þeir 48 þúsund krónur. Hjá umbo
ð-
inu hefðu þeir hins vegar kostað u
m
160 þúsund krónur.
„Mig vantaði kúplingssett í bílinn
minn, Dodge Stratus árgerð 200
2,
þetta eru þrír hlutir pressa, disk
ur
og lega,“ segir Guðmundur Gísli. „É
g
hringdi upp í Ræsi sem er með um
-
boð fyrir Dodge á Íslandi og spur
ði
þá hvað kúplingssettið kosti. Maðu
r-
inn þar tjáði mér að þeir ættu þet
ta
auðvitað ekki til á lager en þeir bu
ð-
ust til að panta þetta fyrir mig. Þet
ta
er auðvitað umboðið og þeir eiga a
ð
sjá um þetta fyrir mann. Ég var hin
s
vegar ekki ánægður með verðið se
m
þeir nefndu við mig. Þeir vildu fá u
m
70 þúsund fyrir pressuna, um 60 þú
s-
und fyrir diskinn og 30 þúsund fyr
ir
leguna. Þetta var því um 160 þúsun
d
allt í allt,“ segir Guðmundur.
Guðmundi fannst það heldur
mikið og var ekki ánægður með þet
ta
boð Ræsis. „Ég fór bara á netið sjá
lf-
ur og fann þetta sama stykki hjá fyr
ir-
tæki í Bandaríkjunum sem sér um a
ð
breyta svona bílum, gera þá aflme
iri
og fleira. Þeir áttu kúplingsettið
til
og hjá þeim kostaði það 26 þúsun
d
krónur. Ég ákvað því að flytja sett
ið
inn og með öllum innflutningsto
ll-
um og gjöldum kostaði þetta 48 þú
s-
und krónur,“ segir Guðmundur.
Özur Lárusson, framkvæmda-
stjóri Bílgreinasambandsins, seg
ir
að til séu dæmi um að fólk hafi key
pt
varahluti í gegnum netið og þe
ir
hafi verið ófullnægjandi. „Við v
it-
um að fólk hefur keypt hluti í geg
n-
um netið sem ekki passa og kanns
ki
skemma aðra hluti í bílnum. Marg
ar
hliðar eru því á málinu. Það er au
ð-
vitað betra að kaupa varahlutinn f
rá
viðurkenndum framleiðanda,“ seg
ir
Özur.
miðvikudagur 11. júlí 20072
Fréttir DV
InnlendarFréttIrritstjorn@dv.is
Hægt að spara háar fjárhæðir me
ð því að kaupa varahluti erlendis
frá:
Fékk varahlutina á þriðjung af íslensku verði
Guðmundur Gísli Viktorsson Nýtt
kúplingssett vantaði í þennan dodge
Stratus. guðmundur gísli keypti
varahlutina á netinu á aðeins 48
þúsund krónur, innan við þriðjung þe
ss
sem þeir áttu að kosta í umboðinu.
„Það var svo mikil öryggisgæsla að
það var ótrúlegt,“ segir Birgitta Jóns-
dóttir, Íslandsvinur og mótmæl-
andi. Fjöldi mótmælenda mætti í
Kringluna í gær ásamt predikar-
anum Billy og sögðust vilja særa
illa anda út úr Kringlunni. Mót-
mælunum fylgdu gríðarleg læti og
reyndu öryggisverðir að koma fólk-
inu átakalaust út. Yfirmaður örygg-
isgæslunnar í Kringlunni, Magnús
Pálsson, líkir ástandinu við átaka-
stæði í Miðausturlöndum. Hann
sagði einfaldlega: „Þau höguðu sér
eins og vitleysingar.“
Tveir predikarar
„Fólk hélt í fyrstu að þetta væri
einhver ofsatrúarhópur,“ segir
Birgitta hlæjandi um mótmælend-
urna sem mættu í Kringluna í gær
.
Einn mótmælandinn klæddi sig
upp sem prest. Hann heitir Snorri
Páll Úlfhildarson Jónsson og er
tónlistarmaður. Hann leiddi hóp-
inn áfram með eldræðu um stór-
iðjustefnu á Íslandi og vildi særa út
illa anda auðvaldsins. Þá var pred-
ikarinn Billy ókominn en hann er
atvinnumótmælandi.
Ástandið var eldfimt að sögn
Birgittu en öryggisverðir brugðust
ókvæða við uppátækinu að hennar
sögn. Sjálf segist Birgitta hafa hleg-
ið að hamaganginum enda vildu
mótmælendurnir engum illt. Þeir
vilja bara vekja athygli á stóriðju-
stefnu ríkisstjórnarinnar.
Meinað inngöngu vegna
vondrar lyktar
„Einn strákur hnakkreifst við ör-
yggisvörðinn en honum var mein-
að að fara inn í búð því það var svo
vond lykt af honum,“ segir Birgitta
og hlær. Aðspurð hvort lyktin hafi
verið vond segir hún svo ekki vera.
Að lokum kom hinn raunveru-
legi predikari á svæðið. Þá upphófst
mikill hamagangur sem endaði á
því að öryggisverðir komu mót-
mælendum út um dyr Kringlunn-
ar. Í kjölfarið læstu þeir öllum inn-
gönguleiðum.
Óvægin árás
„Ég fæ ekki séð hvernig Kringl-
an tengist stóriðjustefnu, húsið var
byggt fyrir tuttugu árum og þá var
aðeins eitt álver á landinu,“ segir
Magnús Pálsson yfiröryggisvörður
í Kringlunni. Það er ljóst að hon-
um og hans starfsfólki er verulega
brugðið. Hann segir að hamagang-
urinn hafi verið slíkur að hann líkir
því við átakasvæði í Miðausturlönd-
um. Hann segir að mótmælendur
hafi hagað sér hreinlega eins og vitl-
eysingar. En að lokum fór fólkið út
átakalaust. Mótmælendur hótuðu
að koma aftur að hans sögn en hann
svaraði því að þá tækju öryggisverð-
ir bara á móti þeim aftur.
„Maður varð ansi sveittur eft-
ir átökin,“ segir Magnús að lok-
um um þennan óvenjulega dag í
Kringlunni.
TrúaráTök í kringl n i
Valur GreTTisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.
is
Yfir fimmtíu mótmælendur
mættu í Kringluna um hádegisbi
l-
ið í gær og létu mikið fyrir sér
fara. Öryggisverðir áttu í mesta
basli með að koma þeim út. Pred-
ikarinn Billy kom á svæðið og
sagði stóriðjusinnum að iðrast.
„einn strákur hnakk-
reifst við öryggisvörð-
inn en honum var
meinað að fara inn í
búð því það var svo
vond lykt af honum.“
séra Billy klerkurinn kom eins og
stormsveipur inn í kringluna og gerði
allt vitlaust. Honum var að lokum vísa
ð
út ásamt fylgismönnum sínum og
frelsuðum sálum í kringlunni.
Mótmælendur og öryggisvörður
andrúmsloftið var eldfimt á meðan
mótmælendur sögðust reyna að
særa illa anda út úr kringlunni.
Magnús Pálsson Yfiröryggisvörð-
urinn magnús átti erfiðan dag í gær
og sagði að mótmælendur hefðu
hagað sér eins og vitleysingar.
dV Myndir karl
áfram tafir á
Þingvallavegi
Á Þingvallavegi, milli Skálafells
og Gljúfrasteins, verða tafir næstu
daga vegna klæðningar. Þetta er
gert vegna þeirrar blæðingar sem
var í malbikinu í síðustu viku og
olli skemmdum á veginum. Um-
ferðarþjónusta Vegagerðarinnar
hvetur ökumenn til að aka ekki
hraðar en á 50 kílómetra hraða á
vegarkaflanum sem nú er sérlega
varasamur bifhjólamönnum.
Vegna vegaframkvæmda má
búast við töfum og lokunum víðs
vegar um landið.
Sólheimavegur verður lokað-
ur á milli Stærribæjar og Eyvíkur
í dag og á morgun frá klukkan
átta árdegis til sjö að kvöldi, og
13. júlí milli klukkan átta og þrjú
síðdegis.
Lést í
umferðarslysi
Maðurinn sem lét lífið þeg-
ar bifreið hans valt á Öxna-
dalsheiði sunnudaginn 8. júlí
síðastliðinn hét Þorbergur
Gíslason og var til heimilis
að Hveramýri 2, Mosfellsbæ.
Þorbergur var tuttugu og eins
árs gamall, ókvæntur og barn-
laus. Tilkynnt var um slysið
snemma morguns, en ekki er
vitað hvenær það varð. Tildrög
þess eru enn óljós og málið er
í rannsókn hjá lögreglunni á
Akureyri.
Svínað á
unglingum
Starfsgreinafélag Austurlands
hefur lýst yfir áhyggjum sínum
með aðbúnað og réttindi unglinga
á vinnustöðum. Félagið kemst
að því að flestir unglingar vinna
með námi og að vinnutíminn sé
oft í litlu samræmi við upphaf-
legar áætlanir. Þar að auki vinni
fjölmargir unglingar á launatöxt-
um sem eru undir viðurkennd-
um lágmarkslaunum og þeir sæti
jafnvel hótunum um uppsagnir
sætti þeir sig ekki við launakjör
sín. Forsvarsmenn Starfsgreina-
félagsins hvetja foreldra til þess
að vera á varðbergi og fara vel yfir
launaseðla barna sinna.
Annar áfangi í
umhverfismati
Annar áfangi Sundabrautar
er nú í málsmeðferð hjá Skipu-
lagsstofnun samkvæmt lögum
um mat á umhverfisáhrifum.
Mat á umhverfisáhrifum fyrir
annan áfanga hófst sumarið
2006. Þá voru kynnt drög að til-
lögu að matsáætlun og almenn-
ingi gafst tækifæri á að koma
með athugasemdir. Ýmsar
athugasemdir bárust og hefur
verið tekið tillit til þeirra í tillögu
að matsáætlun sem nú hefur
verið send til málsmeðferðar
hjá Skipulagsstofnun, sem mun
væntanlega auglýsa hana til
kynningar á næstu dögum.
Lögbundinn athugasemda-
frestur er 2 vikur, en vegna
sumarleyfa hefur frestur verið
lengdur í rúmar 4 vikur og er
því til 10. ágúst. Athugasemdum
skal skila til Skipulagsstofnunar.
kiddi v deofl ga
með auð kött
í ís káp um
„Ég geymi ennþá skinnið af
Diddu inni í ísskáp,“ segir Kristinn
Kristmundsson verslunareigandi.
Hann sakar nágranna sinn um að
hafa skotið köttinn Diddu með
Winchester-riffli í maí á síðasta ári.
Ástæðan fyrir því að Kristinn geym-
ir dauðan kött í ísskápnum er sú að
hann hyggst stoppa köttinn upp.
Hinn meinti banamaður kattar-
ins, sem er á sjötug aldri, var sýkn-
aður í Héraðsdómi Austurlands
fyrir að verða Diddu að bana með
einu skoti. Hann var þó dæmdur í
gær fyrir vopnalagabrot og brot á
lögreglusamþykkt Fljótsdalshér-
aðs. Þá var Winchester-riffill sem
hann notaði gerður upptækur auk
þess sem honum er gert að greiða
hundrað þúsund krónur í sekt.
Skotið úr svefnherberginu
Maðurinn sem var dæmdur fyr-
ir vopnalagabrot í gær skaut með
rifflinum út um svefnherbergis-
gluggann hjá sér í byrj maí á síð-
asta ári. Skotið reið af um hádeg-
isbil en þá var kötturinn Didda að
klifra upp í tré hjá honum. Maður-
inn er nágranni Kristins.
Þegar Kristinn fann Diddu sá
hann að hún var dauð. Sjálfur seg-
ir hann að skot hafi
farið í gegn-
um hana
en kúlan
aldrei
fundist.
Hann
kærði þá
athæf-
ið en
vegna
vanreifunar á ákæru var málinu
vísað frá. Þá var maðurinn sjötugi
ákærður fyrir brot á vopnalögum
þar sem hann stofnaði fólki í hættu
með því að skjóta út um svefnher-
bergisgluggann samkvæmt dóms-
orði.
Kattardrápið aldrei fyrirgefið
„Ég mun aldrei fyrirgefa hon-
um þ tta,“ segir Kristinn en harmur
hans er mikill. Hann segir Diddu,
sem var af síam kyni, hafa ver-
ið besta skinn. Nú er skinn kattar-
ins aftur á móti í ísskáp Krist ns og
hyggst hann stoppa köttinn upp.
Að hans sögn er maður á Egilsstöð-
um sem kann að stoppa upp dýr en
hann h fur þó ekki rætt við hann
ennþá.
Didda var einstakl g gæfur
köttur segir Kristinn en hú var of-
næmisfrí og sérlega kelin við börn.
Formóðir Diddu kom frá Banda-
ríkjunum en Didda var sú eina
sinnar tegundar á Íslandi - þar til
hún var skotin.
Ætlar í einkamál
Aðspurður hvort Kristinn sé
sáttur við málalyktir segir hann svo
vera. Hann hyggst engu að síður
fara í einkamál við nágranna sinn
skotóða. Kristinn segir að játning
mannsins liggi ljóslega fyrir þar
sem búið er að dæma hann fyrir
að hafa hleypt af rifflinum út um
gluggann. Hann segist handviss
um að kötturinn hafi verið skotinn
en hann bar augljós merki þess að
sögn Kristins.
„Ekki skaut hún sig sjálf,“ segir
hann en Kristinn lætur ekki deigan
síga þrátt fyrir harmfullan söknuð.
valur@dv.is
þriðjudagur 10. júlí 20074
Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Sigurður Hólm Gunnarsson segir óviðeigandi að námsefni innihaldi trúaráróður:Hætta á að brotið sé á trúfrelsi íslenskra barnaMannréttindadómstóll Evrópu í Strasbourg komst nýverið að þeirri
niðurstöðu að börn fimm norskra
foreldra hefðu verið beitt misrétti
vegna fyrirkomulags kennslu í krist-
infræði, trúfræði og lífsskoðunum.
Sigurður Hólm Gunnarsson, vara-
formaður Siðmenntar, segir stöð-
una svipaða í íslenskum skólum og
norskum. „Foreldrar eiga ekki að
þurfa að hafa áhyggjur af því að börn
þeirra fái óviðeigandi kennslu.“
Að mati Mannréttindadómstóls-
ins braut norska ríkið á rétti barn-
anna til að fá tilhlýðilega menntun.
Einnig telur hann að brotið hafi verið
á trúfrelsi foreldra þeirra.
„Eins og staðan er í dag er aukin
hætta á því að mannréttindabrot eigi
sér stað í íslenskum skólum,“ seg-
ir Sigurður. „Í námsskrá grunnskól-
anna er talað um að kennarar eigi að
leggja áherslu á kristilegt siðgæði.
„Félagar í Siðmennt hafa lengi
reynt að benda stjórnvöldum á þessa
mismunun sem á sér í stað í íslenska
skólakerfinu en talað fyrir daufum
eyrum,“ segir hann. „Við vonum að í
kjölfar dómsins verði þessi mál tek-
in til endurskoðunar og hlutlaus
kennsla tryggð.“ Að mati Sigurðar
er óviðeigandi að í skólum sem eiga
að vera fyrir alla séu sett upp trúar-
leg leikrit, farið í kirkju og farið með
bænir. „Námsefni á að vera laust við
trúarlegan áróður. Krafa okkar er að
trúarlegri starfsemi verði úthýst úr
opinberum skólum þar sem hlut-
leysi á að vera í fyrirrúmi.
Hann segir að næsta skref Sið-
menntar sé að senda yfirvöldum bréf
þar sem bent er á niðurstöðu dóms-
ins og spurt hvort megi eiga von á
breytingum á fyrirkomulagi trúar-
bragðakennslu.
Þær upplýsingar fengust hjá
menntamálaráðuneytinu að þetta
mál væri í skoðun og að hvorki
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra né aðrir starfs-
menn ráðuneytisins gætu tjáð sig um
það að svo stöddu.
Sigurður Hólm Gunnarsson Segir að hætta sé á mannréttindabrotum í íslenskum skólum vegna kennslu í kristnum fræðum.
Viðbeinsbrotnaði
á reiðhjóli
Lögreglan á Suðurnesjum
fékk tilkynningu um slasað-
an ferðamann á Suðurstrand-
arvegi við Ísólfsskála laust ef ir
hádegi á sunnudag. Í ljós kom að
ferðamaðurinn hafði fengið sér
reiðhjólatúr en var svo óheppinn
að falla af hjólinu. Ferðamaður-
inn laskaðist nokkuð við fallið
en talið var að hann hefði við-
beinsbrotnað við höggið. Aðrir
ferðamenn, sem leið áttu hjá, að-
stoðuðu manninn við að komast
á sjúkrahúsið í Keflavík. Þar var
gert að meiðslum hans.
Sex teknir fyrir
hraðakstur
Lögreglumenn á Egilsstöð-
um stöðvuðu sex ökumenn
á Hárekstrarleið seinnipart
sunnudags og fram á kvöld
eftir að hafa mælt þá á of
miklum hraða. Sá sem ók
hraðast var á 130 kílómetra
hraða, eða 40 kílómetrum yfir
leyfilegum hámarkshraða. Sá
ökumaður hlýtur 70 þúsund
króna sekt.
Réttindalaus
og dópaður
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu tók karlmann um tví-
tugt í Kópavogi í fyrrinótt sem
var grunaður um að aka bíl undir
áhrifum eiturlyfja.
Maðurinn var stöðvaður
klukkan rúmlega þrjú um nóttina
við reglubundið eftirlit lögregl-
unnar. Þegar lögregla fór að ræða
við manninn kom í ljós að hann
var undir áhrifum eiturlyfja og
var ekki með gilt ökuskírteini.
Smávægilegt magn eiturlyfja
fannst einnig í bílnum.
Ölvaður á bíl á
Reykjanesbraut
Karlmaður á þrítugsaldri var
tekinn undir áhrifum áfengis á
Reykjanesbrautinni aðfaranótt
mánudags. Einnig stöðvaði lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu
fjóra ökumenn sömu nótt vegna
hraðaksturs víðs vegar í Reykja-
vík, meðal annars á Sæbrautinni,
en einnig í Kópavogi.
Kristinn Kristmundsson verslunareigandi ætlar að stoppa upp köttinn sinn, hana Diddu, sem nágranni hans skaut. Mál var höfðað gegn nágrannanum fyrir kattardráp-ið en því vísað frá. Sein a var hann hins vegar fundinn sekur um vopnalagabrot.
MEÐ DAUÐAN
KÖTT Í ÍSSKÁPNUM
Kötturinn Didda Endaði ævi sína á voveiflegan hátt þegar hún var skotin til bana.
„ég mun aldrei fyrir-
gefa honum þetta.“
Ósáttur við nágrannann
Eigandi diddu, Kristinn
Kristmundsson, hyggst höfða
einkamál á hendur meints
banamanns.
o caR PistoRiUs hLjóP
á La DsMóti UMFÍ
suður-Afríski hlauparinn Oscar Pistorius tók þátt í
Landsmóti UMFÍ í Kópavogi
þann 8. júlí. Pistorius, sem
fæddist fótalaus fyrir neðan
hné, átti frækinn feril í hlaupa-
greinum og tók meðal annars
þátt í ólympíuleikum ófatlaðra
í London árið 2012. Í dag situr
hann hins vegar í fangelsi fyr-
ir að hafa skotið kærustu sína
Reevu Steenkamp til bana.
„Um leið og ég las greinina ákvað
ég strax að setja mig í samband við
ana til að sýna stuðning í orði og á
borði. Ég hef oft hugsað um slíkt, þeg-
ar ég les svona greinar, og nú fannst
mér kominn tími til að gera eitthvað.
Þegar ég var yngri með þrjú börn lenti
ég í svipaðri stöðu og veit því hvað
hún er að upplifa,“ segir Emma Hólm,
umhyggjusamur borgari.
Ung þriggja barna einstæð móð-
ir, Helen Ó. Pétursdóttir, er sár út í
ósveigjanleika Fæðingarorlofssjóðs
eftir að mistök voru gerð hjá sjóðnum
og hún hlaut tvöfaldar greiðslur ein
mánaðarmótin. Samkvæmt starfsregl-
um stofnunarinnar var farið rakleiðis í
innheimtuaðgerðir og henni tilkynnt
að næsta greiðsla yrði að fullu felld
niður og hluti tekinn af greiðslunni
sem þar kæmi á eftir.
Helen óskaði eftir
því að þessu fyrirkomulagi yrði snúið
við, þannig að fyrst yrði tekin hluta-
greiðsla og síðan full greiðsla, þar sem
að barnabæturnar kæmu þá til að-
stoðar. Þeirri beiðni var hafnað alfar-
ið og greiðsla síðustu mánaðarmóta
var felld niður. Í svörum frá Fæðing-
arorlofssjóði kom fram að stofnunin
hefði engar heimildir til svigrúms og
gæti ekki sinnt hlutverki lánastofn-
unar. Helen segist horfa fram á veru-
lega erfiðan mánuð þar sem hún eigi
hvorki fyrir þurrmjólk eða bleium fyr-
ir börnin sín.
Emma telur mikilvægt að kerfið
sýni sveigjanleika þar sem hvert tilvik
sé metið fyrir sig. Hún vonast til þess
að fleiri geti sýnt Helen stuðning í
verki. „Ég skil hana svo vel og hef sjálft
lent í ósveigjanleika kerfisins. Það er
svo ómannúðlegt að það mætti halda
að kerfið sé ekki til fyrir okkur held-
ur að við séum til fyrir kerfið,“ segir
Emma. trausti@dv.is
Morðinginn Hákon Eydal, sem var
dæmdur fyrir að myrða sambýlis-
konu sína, var fótbrotinn í átökum
við þrjá samfanga sína á Litla-Hrauni
síðastliðinn miðvikud g. Samkvæmt
áreiðanlegum heimildum var ástæða
áfloganna sú að Hákon stóð fyrir
áfengisbruggi í fangelsinu og vildi ekki
deila með samföngum sínum.
Árásarmennirnir voru að minnsta
kosti þrír. Þeir eru allir í kringum tví-
tugsaldurinn. Ekki er ljóst hversu lengi
barsmíðarnar stóðu yfir. Hákon hlaut
talsverð meiðsl og var lagður inn á
sjúkrahús eftir árásina. Að sögn sam-
fanga Hákons sem rætt var við hefur
hann verið til fyrirmyndar í fangelsinu,
því kom árásin talsvert á óvart.
Bruggað í fangelsi
Svo virðist sem Hákon hafi stund-
að um nokkurt skeið að brugga
áfengi. Það gerði han með því að
sía spritt í gegnum rúgbrauð. Nokkra
lagni þarf til svo úr verði brennivín.
Árásarmennirnir þrír munu hafa
keypt af honum bruggið. Svo kom
að því að Hákon neitaði þeim um
meira brugg. Þeir brugðust þá illa
við með fyrrg eindum afleiðing-
um.
Meiðsli Hákonar eru talsverð
og krefjast skurðaðgerðar bækl-
unarlæknis. Þá aðgerð átti hann
að fara í á föstudaginn
en henni seinkaði
um tvo daga.
Ástæðan
un h fa
ve ið ann r
á spítalan-
um.
Dæmdur morðingi
Hákon var dæmdur í 16 ára fang-
elsi árið 2005 fyrir að myrða sambýl-
iskonu sína, Sri Rhamawati. Morðið
þótti afar óhugnanlegt þar sem hann
barði hana með kúbeini.
Af þeim höggum, sem
voru fjögur talsins,
hlutust lífshættuleg-
ir áverkar en Sri lést
ekki strax. Hákon
vafði þá taubelti um
háls hennar og kyrkti
hana þar til hún lést.
Hákon losaði sig
við lík Sri í
hraun-
inu á
Reykjanesi. Hann var yfirheyrður í
talsverðan tíma og sendi lögregluna
að minnsta kosti einu sinni á rang-
an stað til að leita líkamsleifa Sri. Að
lokum játaði hann sök á sig og benti
á hvar líkið var falið.
Fyrirmyndafangi og
skákmaður
Að sögn samfanga Hákons hefur
farið lítið fyrir honum innan veggja
Litla-Hrauns. Hann hagaði sér vel og
tók þátt í skákmótum Hróksins sem
kemur þangað reglulega til þess að
þjálfa fanga í skák. Hann hlaut fram-
faraverðlaun Hróksins einu sinni.
Hann var afar ósáttur við dóminn á
sínum tíma og sagði morðið hafa verið
ástríðuglæp. Hann kenndi lögfræðingi
sínum um hámarksdóminn sem hann
hlaut.
Hann hefur stundað nám á Litla-
Hrauni en er fyrir menntaður múrari.
má udagur 9. júlí 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
Frét kot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir be ta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur.
Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaða ins.
Er þetta svona heimaiðnaður
í fangelsinu...
DEILDU UM BRUGG OG
FÓTBRUTU MORÐINGJA
Morðinginn Hákon Eydal varð f rir hro talegri árás samfanga sinna á Litla-Hrauni:
sprettharður á gervifótum Suður-Afríkumaðurinn Oscar Pistorius kom mörgum á óvart þegar hann sigraði tvífætta keppi-
nauta sína í kapphlaupi á Landsmóti Ungmennafélags Íslands um helgina. Afrek hans er ekki síður merkilegt fyrir þær sakir að
hann byrjaði 50 metrum á eftir öðrum keppendum. Hann hljóp 400 metra en keppinautarnir 350 metra. DV mynd Stefán
Kemur einstæðri þriggja barna móður í vanda til aðstoðar:
ýnir stuðning í orði og á borði
Tólf líkamsárásir
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu þurfti að hafa afskipti af
tólf líkamsárásum um helgina,
flestar þeirra voru í miðbænum
og e ginn þeirra var alvarleg.
Nítján umferðaróhöpp voru víðs-
vegar um höfuðborgarsvæðið um
helgina en engin slys urðu á fólki.
Þá voru fimmtán þjófnaðarmál
bókuð hjá lögreglunni en það var
allt frá smávægilegu búðarhnupli
upp í stærri þjófnaði á heimil-
um eða í fyrirtækjum. Lögregl-
an á höfuðborgarsvæðinu hafði
afskipti af níu fíkniefnamálum en
ekki var um mikið magn af fíkni-
efnum að ræða í neinu tilvikanna.
Lét lífið í bílveltu
Tvítugur karlmaður lét lífið þeg-
ar bíll hans valt á Öxnadalsheið-
inni í gærmorgun. Jepplingur sem
maðurinn ók fór útaf í beygju rétt
við einbreiða brú sem er á heiðinni.
Maðurinn var einn í bílnum. Þegar
lögreglan kom á vettvang v r hann
látinn. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Akureyri var tilkynnt
um slysið klukkan 06:45 að morgni
sunnudags en ekki er ljóst hvenær
það varð. Tildrög slyssins eru enn
óljós og er málið í rannsókn hjá lög-
reglunni á Akureyri.
valur grEttisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Ósáttir við Fræ
Forsvarsmenn dagskrártíma-
ritanna Dagskrá Vikunnar og
Dagsbirtu hafa leitað til sam-
keppnisyfirvalda vegna tilkomu
dagskrártíma-
ritsins Fræs
sem gefið er út
af Fræðslumið-
stöð í fíknivörn-
um.
Forsvars-
menn fyrr-
nefndu tíma-
ritanna telja
að útgáfa
Fræs kunni að
brjóta gegn
samkeppnis-
lögum. Ástæðan er sú að það er
gefið út af félagasamtökum sem
njóta opinberra styrkja. Að sögn
forsvarsmanna Dagskrárinnar og
Dagsbirtu undirbjóða útgefendur
Fræs auglýsingaverð og hafa óeðli-
lega markaðsstöðu vegna styrkja
frá opinberum aðilum. Málið er til
skoðunar hjá samkeppniseftirlit-
inu og er niðurstöðu að vænta eftir
nokkrar vikur.
DV 6. júlí
FöStUDAgUr 6. júLÍ 20072 Fréttir DV
Helen Ó. Pálsdóttir
leó Örn Þorleifsson
ÓSVEIGJANLEIKI SÆRIR
EINSTÆÐA MÓÐUR
Einstæð þriggja barna móðir, Helen
Ó. Pálsdóttir, er sár yfir ósveigjanleika
Fæðingarorlofssjóðs í sinn garð er
sjóðurinn gerði mistök og kom henni
í vandræði. Jafnframt varð hún fyr-
ir vonbrigðum með viðbrögð Félags-
þjónustu Reykjavíkur er hún óskaði
eftir þeirra aðstoð við að leysa úr vand-
ræðunum.
Málsatvik voru þau að í aprílmán-
uði ofgreiddi Fæðingarorlofssjóður
Helen þannig að hún fékk greitt inn á
reikning tvöfalda greiðslu. Nokkru síð-
ar fékk hún bréf frá sjóðnum þar sem
henni var tilkynnt að næstu greiðslu
fengi hún ekki og dregið yrði jafnframt
af greiðslu þar á eftir til að ná til baka
þeir upphæð sem ofborguð var. Þetta
fyrirkomulag hentaði Helen heldur
illa og leitaði hún með þá ósk til Fæð-
ingarorlofssjóð að snúa þessu við, að
taka hlutagreiðslu fyrst og sleppa síð-
an alfarið seinni greiðslunni. Að henn-
ar sögn var þeirri beiðni alfarið hafnað
og fyrir vikið sér hún fram á að eiga erf-
itt með að lifa af út mánuðinn.
Höfum engar heimildir
Leó Örn Þorleifssson, forstöðu-
maður Fæðingarorlofssjóðs, segist
ekki geta rætt einstök málefni þeirra
sem hljóta greiðslur úr sjóðnum.
Hann segir ofborganir geta átt sér
stað og í þeim tilvikum beri sjóðn-
um að ráðast í endurkröfu við fyrsta
tækifæri. „Mér er algjörlega óheim-
ilt að ræða einstök mál. Almennt er
það hins vegar þannig að í þeim til-
vikum sem ofborganir eiga sér stað,
og það er eitthvað sem getur gerst, þá
ber okkur að innheimta greiðsluna
um hæl. Við höfum engar heimild-
ir í okkar starfsemi til að sveigja það
eða beygja enda erum við að sýsla
með opinbert fé. Ef viðkomandi aðili
á eftir greiðslur hjá okkur er einfald-
ast að draga af þeim,“ segir Leó Örn.
„Menn hljót að fylgjast með banka-
reikningum sínum og taka eftir tvö-
földum greiðslum. Fólki sem fær of-
borgað ber að setja sig í samband við
okkur og endurgreiða. Ef menn kjósa
að nýta féð sjálfir þá förum við strax í
endurkröfu, eðli málsins samkvæmt,
og getum ekki verið að sveigja reglur
eða lána fólki úti í bæ. Í þeim tilvikum
þarf fólk að leita til félagsþjónustu eða
banka. Okkur ber að sækja greiðsluna
við fyrsta mögulega tækifæri enda
erum við ekki lánastofnun.“
reið og sár
Aðspurð segir Helen ósveigjan-
leikann koma sér afar illa á þessum
tímapunkti. Hún ítrekar að vegna
mistaka Fæðingarorlofsjóðs þurfi
hún að leita leiða til að lifa af út mán-
uðinn. „Þetta hitti bara illa á núna.
Ég bað þá einfaldlega að snúa þessu
við, að þeir myndu taka frekar hluta
um síðustu mánaðarmót og næsta
mánuð taka alla greiðsluna því að ég
myndi fá barnabætur þá en þeir neit-
uðu. Sem sagt, síðustu mánaðarmót
fékk ég ekki neitt og í dag get ég ekki
farið með dóttur mína til læknis, get
hvorki keypt þurrmjólk né bleyjur
handa stráknum mínum. Ofan á allt
saman næ ég ekki að klára reikning-
ana þennan mánuðinn,“ segir Helen.
„Ég bað Félagsþjónustuna um hjálp
í þessum vandræðum til að lifa út
mánuðinn en þeir vildu ekki hjálpa
mér. Þeir sögðu mér að ég þyrfti að
passa upp á þetta sjálf en þetta voru
hvorki mín mistök né minn ósveigj-
anleiki. Vegna þessa ósveigjanleika
er ég með allt í eftirdragi og þarf að
reyna að skrimta út mánuðinn. Ég er
bara svo reið og sár yfir þessu.“
trausti HaFstEinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
„Síðustu mánaðarmót
fékk ég ekki neitt og í
dag get ég ekki farið með
dóttur mína til læknis,
get hvorki keypt þurr-
mjólk né bleyjur handa
stráknum mínum.“
Erfiður mánuður Helen
segir að vegna ósveigjan-
leika Fæðingarorlofssjóðs
eigi júlímánuður eftir að
reynast erfiður.
Skrópaði í
héraðsdóm
Fíkniefnasali, sem var ákærð-
ur fyrir að hafa haft undir hönd-
um tæp fimmtán grömm af
amfetamíni, skrópaði ítrekað í
Héraðsdóm Suðurlands. Hann
hafði þó mætt einu sinni og ját-
aði þá brotið á sig.
Fíkniefnin fundust við hefð-
bundna leit í Vestmanneyjum
í ágúst á síðasta ári. Maðurinn
skrópaði ítekað í héraðsdóminn
og að lokum var gefinn út hand-
tökuskipun á hann. Þrátt fyrir allt
lét hann ekki sjá sig. Héraðsdóm-
ur dæmdi hann þá í tæplega 150
þúsund króna sekt ella sæti hann
fangelsi í tíu daga.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Sparkaði í
liggjandi mann
Maður á þrítugsaldri var
dæmdur í 45 daga fangelsi
skilorðsbundið í tvö ár fyrir að
sparka af miklum krafti í höfuð
liggjandi manns. Árásin átti sér
stað á Þjóðhátíð í Vestmannaeyj-
um í ágúst árið 2005.
Dómara við Héraðsdóms
Suðurlands þótti þótti drátt-
ur málsins aðfinnsluverður og
gagnrýndi ákæruvaldið fyrir það.
Engu að síður játaði maður-
inn árásina skýlaust en sagði að
hann hefði ekki sparkað svo fast
í höfuð liggjandi mannsins. Hér-
aðsdómi Suðurlands var nokk
sama um þær útskýringar enda
vitni að atburðinum sem sögðu
annað.
Fatlaðir fá öll
launin greidd
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra hefur ákveðið að
styrkja samstarfsverkefni ÍTR og
Svæðisskrifstofu um málefni fatl-
aðra þannig að fatlaðir fái sömu
laun og ófatlaðir. Gagnrýnt hefur
verið að þeir fái ekki borgað fyrir
alla vinnu sína. Jóhanna vonar
að umræðan verði til að enn fleiri
fyrirtæki og stofnanir bjóði fatlaða
starfsmenn velkomna. Sú skýr-
ing sem gefin var á því að fatlaðir
fengu ekki sömu laun og aðrir
væri að ekki hefði fengist nægilegt
fjármagn til verkefnisins. Þroska-
hjálp gagnrýndi það harðlega.
Náttúruskoðun
á methraða
Ítalskur ferðamaður var
sviptur ökuréttindum þegar
lögreglan á Akureyri mældi
bifreið sem hann ók á 171 kíló-
metra hraða. Hann var með
tvo farþega í bílnum og gáfu
þeir þá útskýringu á hraðakstr-
inum að þeir væru að skoða
náttúruna. Svona mikill hraði
varðar sviptingu ökuleyfis
en að auki þurfti Ítalinn að
borga hundrað og tólf þúsund
krónur í sekt. Sektina þurfti
hann að borga á staðnum og
gat bjargað sér fyrir horn með
Visa kortinu. Ljóst þykir þó að
það er ansi mikið fé á ítölskum
mælikvarða.
Vildi hætta í Fáfni og var misþyrmt
Fáfnismaður sem Sérsveit lög-
reglustjórans í Reykjavík bjargaði úr
félagshúsnæði þeirra á Vatnsstíg í
fyrrinótt vildi hætta í Fáfni samkvæmt
staðfestum heimildum. Ósætti mun
hafa komið upp í félagsheimilinu að
kvöldi miðvikudags þannig að slags-
mál brutust út.
Að sögn lögreglu sýndu tveir Fáfn-
ismenn mótþróa en lögreglumenn
yfirbuguðu þá. Fáfnismaðurinn sem
vildi hætta í klúbbnum hlaut talsverða
áverka og var fluttur á slysadeild Land-
spítalans til aðhlynningar.
Það var seint á miðvikudagskvöld-
inu sem lögreglu barst ábending um
að verið væri að misþyrma manni í fé-
lagshúsnæði Fáfnis. Sérsveitin var köll-
uð til ásamt lögreglumönnum. Þegar
lögreglan ruddist inn á félagsheimilið
blasti við þeim ofbeldið og voru leik-
ar skakkaðir. Ekki er ljóst hversu lengi
ofbeldið viðgekkst en einn heimildar-
maður DV líkti atburðinum við pynt-
ingar.
Þegar haft var samband við með-
lim klúbbsins vildi hann ekki tjá sig
við DV vegna umfjöllunar blaðsins um
meint tengsl þeirra við Vítisenglanna,
eða Hells Angels.
Í sömu umfjöllun kom f am að
meðlimir móthjólagengisins Banditos
hafi verið hér á landi í júní.
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu hefur margsinnis haft afskipti af
félagshúsnæði Fáfnis en einn með-
limur klúbbsins er Jón Trausti Lúth-
ersson. Hann var dæmdur í átján
mánaða fangelsi í síðasta mánuði
fyrir líkamsárás í félagi við annan
mann.
Þau svör fengust hjá lögreglu að
yfirheyra ætti mennina í gær. Þeir
voru alls tíu sem voru handteknir
og því ljóst að yfirheyrslur taki nokk-
urn tíma. Brotaþoli var ekki búinn
að leggja fram formlega kæru vegna
málsins. valur@dv.is
Fáfnis maður handtekinn Fáfnismaðurinn jón trausti Lúthersson var handtekinn
þegar Vítisenglar vildu inn í landið. Ekki er ljóst hvort hann sé einn af þeim hand-
teknu eftir meinta líkamsárás á Fáfnisheimilinu.
Hákon Eydal Var fótbrotinn á Litla-
Hrauni vegna þess að hann vildi ekki
gefa samföngum heimabruggað
brennivín.
Breiðavíkursam-
tökin opna vefsíðu
„Loksins erum við að opna vef-
síðuna okkar eftir erfiða fæðingu.
Síðan verður nauðsynleg viðbót í
starfsemi samtakanna til fræðslu og
stuðnings,“ segir Konráð Ragnars-
son, varaformaður Breiðavíkursam-
takanna.
Í dag opnar Jóhanna Sigurðar-
dóttir félagsmálaráðherra nýja vef-
síðu Breiðavíkursamtakanna undir
slóðinni www.breidavikursamtokin.
is. Samtökin telja síðuna mikilvægan
lið í fræðslu samtakanna ásamt því
að opna fólki leið til að koma fram
með sínar sögur.
Hjálmar er sá
rauðhærðasti
Hjálmar Ingibergsson var valinn
rauðhærðasti Íslendingurinn á Írsk-
um dögum á Akranesi um helgina.
Þetta var í áttunda skipti sem
keppni um rauðhærðasta Íslending-
inn er haldin á Írskum dögum og í
annað sinn sem Hjálmar tók þátt í
keppninni og átti hann ekki von á
því að vinna. Í verðlaun hlaut Hjálm-
ar ferð til borgar rauðhærða fólksins,
Dublin á Írlandi. Sérstök verðlaun
voru veitt fyrir heildarútlit og var
það hinn átta ára gamli Friðfinnur
Sigurðsson sem vann þ u verðlaun.
13. júlí 2007
10. júlí 2007
10. júlí 2007
11. júlí 2007