Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Side 36
Justin BieBer Bieber fékk sér
þessa ágætu áminningu; Betri 70
ára og útskýrði flúrið þannig: „Ég lít
til baka á hvað ég hef gert í lífinu,
mistök, óöryggi og þrátt fyrir að
mér finnist ég hafa eytt heilmiklum
tíma í vitleysu, þá langar mig að
verða betri. Ég ætla að vinna að því
hvern dag að verða betri 70 ára.“
Flúrið er mantra undir áhrifum frá
presti Biebers, sem minnir á að hafa
endalokin í huga.
Miley Cyrus Hún fékk sér fyrsta flúrið
aðeins 17 ára, Just Breathe. Það er þó
ekki til að minna hana á að anda inn og
út, heldur til að heiðra minningu beggja
afa hennar og Vanessu, vinkonu
hennar, sem öll létust úr lungnakrabba.
„Flúrið minnir mig á að taka engu sem
sjálfsögðum hlut. Að anda, var eitthvað
sem ekkert þeirra gat gert sjálft, sem er
eitt af grundvallaratriðunum, Og ég setti
flúrið nálægt hjartanu, af því að þar
munu þau alltaf vera.“
Hvað tákna flúrin?
Hollywood-stjörnur og húðflúr
Húðflúr er vinsælt í dag sem aldrei fyrr og það eru flestir með minnsta kosti
eitt. Hollywood-stjörnurnar eru
þar engin undantekning og nýlega
tók Elle saman nokkrar þeirra
og merkinguna á bak við húðflúr
þeirra.
Miley Cyrus Þetta er til að heiðra föður
hennar, söngvarann Billy ray Cyrus.
Vanessa Hudgens Leikkonan fékk sér fiðrildi á hálsinn og segir að viku áður en hún
fæddist hafi fiðrildi sest á maga móður hennar og þannig fékk hún nafnið sitt, því Vanessa
þýðir fiðrildi.
Miley Cyrus Söngkonan er með nokkur flúr og þetta er til að minna hana og aðra á að hún er vegan.
Cara deleVingne Alls konar bók
stafir eru vinsælt flúr og leikkonan og
fyrirsætan er með upphafsstafi sína CJd
á sér.