Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Síða 56
32 lífsstíll Helgarblað 14. júlí 2017
B
orðspil hafa fylgt mannin-
um frá upphafi siðmenn-
ingar. Elstu borðspil sem
fundist hafa, eins og Senet
frá Egyptalandi og Backgammon
frá Persíu, eru um 5000 ára gömul.
Frá Indlandi hinu forna komu spil
eins og skák, lúdó og slönguspilið
sem er byggt á hindúískri speki
um karma. Frá Afríku kom
Mancala sem spilað var með
fræjum. Á Norðurlöndum spiluðu
víkingarnir ýmis töfl sem byggja á
herkænsku.
Hin fornu borðspil eru flest
mjög einföld og líkjast sjaldnast
raunverulegum hlutum en eru
ennþá víða spiluð. Í daglegu tali er
talað um abstrakt-spil. Skák hefur
þróast út í að vera talin íþrótt sem
margir hafa orðið heimsfrægir af
að spila. Hin fornu spil eiga það
aftur á móti sameiginlegt að hafa
enga þekkta höfunda.
Fyrsta spilið sem vitað er hver
hannaði er A Journey Through
Europe eftir hinn breska John
Jefferys frá 1759 og merkilegt nokk
þá kemur Ísland þar við sögu. Á
19. öld hófst eiginlegur borðspila-
iðnaður en spil voru þá aðallega
hönnuð fyrir börn. Um miðbik 20.
aldar fóru flóknari spil fyrir full-
orðna að líta dagsins ljós.
Árið 1933 kom Monopoly fyrst
á markað í Bandaríkjunum og
er ennþá eitt vinsælasta spil ver-
aldar. Það var þýtt sem Matador
hér á landi árið 1939 að danskri
fyrirmynd. Í seinni heimsstyrj-
öldinni hannaði breski tónlistar-
maðurinn Anthony E. Pratt spilið
Cluedo til að stytta fólki stundir
í neðanjarðarbyrgjum meðan
sprengjuregn Þjóðverja gekk yfir.
Franski Óskarsverðlauna leik-
stjórinn Albert Lamorisse hann-
aði Risk, heimsins vinsælasta her-
kænskuspil, árið 1957.
Mörg önnur spil sem allir þekkja
eins og Mastermind, Scrabble,
Trivial Pursuit og Yahtzee komu
fram á árunum 1940 til 1980. Stórir
borðspilaframleiðendur eins og
Milton Bradley, Hasbro og Parker
Brothers komu einnig fram á
sjónar sviðið á þessum tíma. Borð-
spil voru nú orðin viðurkennt tóm-
stundargaman fyrir fullorðið fólk.
Byltingin á eyjunni Catan
„Á einhver leir fyrir kind?“ er setn-
ing sem heyrist sjálfsagt á mörgum
heimilum á þessari stundu. Fólk
er að spila Landnemana á Catan,
spil frá árinu 1995 sem breytti öllu.
Hannað af hinum þýska Klaus
Teuber sem vann áður við það að
búa til hluti til tannlækninga en er
orðin goðsögn innan borðspila-
bransans. Spilið snýst um að koma
sér fyrir á eyjunni Catan og byggja
upp veldi sitt hraðar en aðrir leik-
menn með því að safna nauðsynj-
um, skipta við aðra leikmenn og
byggja þorp, borgir og vegi. Að-
spurður um fyrirmynd að eyjunni
Catan segir Teuber:
„Þegar ég hannaði spilið
snemma á tíunda áratugnum,
sá ég fyrst fyrir mér Ísland, sem
var hlýrra á ármiðöldum en það
er nú. Það voru birkiskógar á
þessari norðlægu eyju þegar land-
nemarnir komu fyrst, en á stutt-
um tíma voru skógarnir hoggn-
ir til að byggja hús og skip. Það
var lítið um kornrækt, en sauðfé
og hross þrifust á þessari hrjóstr-
ugu eldfjallaeyju. Þess vegna voru
viðskipti það mikilvægasta fyrir
íslenska landnema til að fá málm-
grýti, korn og timbur.“
Landnemarnir á Catan er í dag
eitt vinsælasta borðspil heims
og hefur selst í tugmilljónatali og
verið þýtt á yfir 30 tungumál, en
mikilvægi þess nær langt út fyrir
sölutölur. Spilið er talið eitt helsta
gáttarspil (gateway-game) heims,
það dregur fólk inn í áhugamálið
sem er spilamennska.
Á seinustu 15-20 árum hefur
orðið alger sprenging í hönnun
og framleiðslu borðspila. Fjöldinn
allur af fyrirtækjum hafa sprottið
upp sem framleiða aðallega borð-
spil fyrir fullorðna. Má þar nefna
Asmodee, Days of Wonder, Z-Man
Games og Fantasy Flight Games.
Hönnunin er orðin betri, sjón-
rænt gildi þeirra hefur aukist til
muna og framboðið hefur stór-
aukist. Viðbætur eru nánast alltaf
framleiddar fyrir vinsælustu spil-
in sem „heldur lífi“ í þeim. Dæmi
eru um viðbætur séu gerðar við
viðbæturnar. Í dag getur fólk valið
sér nákvæmlega hvernig spil það
vill spila.
Áhugamálið
Flestir hafa gaman að því að spila
einhver borðspil þó þeir líti ekki
á sig sem spilara (gamers). En
áhugafólkið er ákaflega sam-
rýmdur hópur sem hreykir sér að
því að kalla sig „lúða“ eða jafnvel
„nörda“. Miðstöðin er vefsíðan Bo-
ardgamegeek.com þar sem fletta
má öllu upp varðandi borðspil,
kortaspil og hlutverkaleiki. Lúðar
eru ótrúlega duglegir að ræða spil-
in út í ystu æsar og allt sem tengist
þeim. Hægt er að komast í kynni
við spilahópa nánast hvar sem er í
heiminum og það er bókað að fólk
tekur manni opnum örmum.
Ráðstefnur eru haldnar víða
um heim eins og GenCon, Origins
og SPIEL í Essen sem er nokkurs
konar Mekka lúðanna. Á ráðstefn-
um kynna framleiðendur nýju-
stu spilin, hægt er að prófa þau og
taka þátt í spilamótum í eldri spil-
um. Jafnvel er í boði að spila við
sjálfa hönnuðina. Fyrirlestrar eru
haldnir og verðlaun veitt í hinum
ýmsu flokkum. Ráðstefnurnar
eru misstórar en áætlað er að um
150.000 manns haldi til Essen á
hverju ári.
Verðlaunaafhendingin Spiel
des Jahres í Þýskalandi er nokkurs
konar Óskars-eða Grammyverð-
launahátíð í heimi áhugamanna
um spil. Tilnefningar og verðlaun
þar koma hönnuðum og fram-
leiðendum á kortið og spil sem
vinna verðlaunin seljast yfirleitt
vel í kjölfarið. Meðal spila sem
unnið hafa hin eftirsóttu Spiel
des Jahres verðlaun má nefna
Scotland Yard (1983), Landnem-
ana á Catan (1995), Carcassonne
(2001), Ticket to Ride (2004) og
Dixit (2010). Þýsku hönnuðirnir
Wolfgang Kramer og Klaus Teuber
hafa unnið verðlaunin samanlagt
níu sinnum.
Iðnaðurinn er ekki drifinn
áfram af græðgi en spilin eru mörg
hver stór og dýr í framleiðslu. Fyr-
irtækin eru ekki risasamsteypur
heldur í smærra lagi og samkeppn-
in er ekki fjandsamleg. Ef eitt fyrir-
tæki framleiðir mjög vinsælt spil
græða hin á því líka því að fleira
fólk ánetjast áhugamálinu. Flest-
ir hönnuðir starfa einnig á öðrum
vettvangi og einungis vinsælustu
spilin má finna í stórmörkuðum
og leikfangaverslunum.
Flest hinna „nýju spila“ má
einungis finna í sérhæfðum versl-
unum sem yfirleitt selja einnig
teiknimyndasögur, vísindaskáld-
skap og fleira í þeim dúr og svo
í vefverslunum. Hér á landi eru
tvær verslanir, Nexus og Spilavin-
ir, sem sérhæfa sig í nýrri borðspil-
um.
Nýta sér tæknina
Sumir héldu að borðspil myndu
hreinlega deyja út þegar töluvleik-
irnir komu fram á sjónarsviðið
á áttunda og níunda áratug 20.
aldarinnar en það reyndist ekki
raunin. Upplifunin af því að spila
borðspil snýst að mestu leyti um
félagsskapinn á meðan tölvuleik-
ir eru oft spilaðir í þögn jafnvel þó
spilað sé við aðra persónu.
Ólíkt mörgum öðrum greinum
í skemmtanaiðnaði hefur borð-
spilaiðnaðurinn fallið vel að tölvu-
og netvæðingunni. Útgefendur
hafa í auknum mæli hannað staf-
rænar útgáfur af borðspilum sem
eiga lítið sameiginlegt með hefð-
bundnum tölvuleikjum. Þessar út-
gáfur eru framleiddar til að auka
við reynsluna af spilinum sjálf-
um og til að auglýsa þau. Þeir sem
eiga spilin eru líklegri til að kaupa
stafrænu útgáfurnar og þeir sem
ramba á stafrænu útgáfurnar eru
líklegri til þess að kaupa áþreifan-
legu spilin.
Spjaldtölvu-formið hentar
iðnaðinum sérstaklega vel. Auð-
velt er að setja upp leik og láta
tölvuna ganga milli manna (pass
´n play). Einnig er hægt að spila
við leikmenn úti í heimi í gegnum
netið eða við gervigreind forrits-
ins. Meðal vinsælustu smáforrita
á vefbúð Apple má finna Ticket to
Ride, Carcassonne og Landnem-
ana á Catan. Stafrænu útgáfurnar
kosta vitaskuld aðeins brot af verði
hinna áþreifanlegu, yfirleitt innan
við 1000 kr. Auk þess hafa ótal
smáforrit verið hönnuð sem að-
stoða við spilun á áþreifanlegum
spilum eins og upplýsingabankar,
stigahald, teningakastarar o.fl.
Útgefendur borðspila njóta
þess einnig að ekki er hægt að
hlaða niður eða „stela“ áþreifan-
legum spilum. Á meðan útgefend-
ur tónlistar, kvikmynda og bóka
hafa átt í vandræðum að selja vöru
sína í netvæddum heimi fara sölu-
tölur borðspila hækkandi með
hverju árinu. Iðnaðurinn er enn-
þá lítill í samanburðinum en sífellt
fleiri eru að átta sig á hversu of-
boðslega gaman það er að spila. n
Saga borðspilanna
n Dægradvöl mannkyns í 5000 ár n „Nýju spilin“ og netvæðingin
„Þegar ég hannaði
Catan snemma á
tíunda áratugnum, sá ég
fyrst fyrir mér Ísland, sem
var hlýrra á ármiðöldum
en það er nú.
10 spil sem allir lúðar ættu að eiga
Settlers of Catan (1995)
Carcassonne (2000)
Ticket to Ride (2004)
Pandemic (2008)
Small World (2009)
The Resistance (2009)
7 Wonders (2010)
King of Tokyo (2011)
Sushi Go (2013)
Deception: Murder in Hong Kong (2014)
Klaus Teuber Hönnuður Catan MyNd EPA
Senet Elsta spil sem fundist hefur
Borðspilamót MyNd EPA
Kristinn Haukur Guðnasson
kristinn@dv.is