Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2017, Qupperneq 61
Helgarblað 14. júlí 2017 KYNNING
Vegna tækniþróunar síðustu ára og með samstarfi við fram-
leiðendur sem eru fremstir
á sínu sviði getur verslunin
Harðviðar val boðið upp á vín-
ylparkett og vínylflísar sem líkir
eftir bestu verkum náttúrunn-
ar. Mikill vöxtur hefur verið í
sölu á þessari tegund gólfefna
síðastliðin ár, þar sem mörg
af helstu hótelum landsins
og ýmis önnur fyrirtæki hafa
séð kosti þess umfram önnur
gólfefni. Þeir kostir sem heilla
við þetta frábæra gólfefni eru
mikið högg- og slitþol auk þess
sem það dempar fótatak.
Einnig er efnið mjög vatnshelt
þannig að það má setja á
baðherbergi, forstofu og eld-
hús án þess að hafa teljandi
áhyggjur.
Sem dæmi um staði sem
hafa lagt hjá sér vínylefni frá
Harðviðarvali eru Würth í
Norðlingaholti, Joe and the
Juice, Laugavegi og Lág-
múla, Skuggi hótel, Íslands-
banki Norðurturn, Domino's á
Selfossi, Tokyo Sushi í Glæsi-
bæ og svo mætti lengi telja.
Gífurleg reynsla er því komin
á vínylparkett og vínylflísar
á svæðum þar sem þarf að
vanda valið og velja öflugt og
endingargott gólfefni vegna
mikils ágangs.
Þetta frábæra gólfefni er
samt ekki bara hentug lausn
fyrir fyrirtæki í almannarými
heldur nýta sífellt fleiri það á
heimilum sínum. Sala vegna
íbúðarhúsnæðis hefur aukist
mjög mikið. Sá misskilningur er
nokkuð útbreiddur að vínylefni
séu nýjung á markaðnum sem
verið sé að prófa sig áfram
með en staðreyndin er sú að
komin er góð reynsla á þetta
efni, bæði hér og í öðrum
löndum.
„Við erum með eitthvert
mesta úrval landsins af há-
gæða vínylparketti og vín-
ylflísum. Við höfum valið að
versla við framleiðendur sem
framleiða öll sín efni í Evrópu,
í fullkomnum verksmiðjum þar
sem gerðar eru miklar gæða-
kröfur. Framleiðendur sem við
kaupum af eru Quick-Step í
Belgíu, sem er þekktur fyrir sitt
hágæða harðparkett, DLW
frá Þýskalandi og Gerflor frá
Frakklandi. Úrvalið er mikið
og bjóðum við upp á yfir 20
tegundir á lager og aðra 85
liti til sýnis í sýningarsal okkar
að Krókhálsi 4. Við hvetjum
fólk til að skoða þetta fram-
úrskarandi gólfefni og eru
sölusérfræðingar okkar meira
en tilbúnir að gefa góð ráð um
val á efni og fleira. Harðviðar-
val hefur, allt frá stofnun árið
1978, sérhæft sig í þjónustu
við arkitekta, fyrirtæki og
stofnanir með sölu á línóleum-
dúkum, teppum, teppaflísum,
parketti og hurðum ásamt
gólf- og veggflísum,“ segir
Einar Andri Einarsson rekstr-
arstjóri hjá Harðviðarvali.
Fyrirtækið er til húsa að
Krókhálsi 4, Reykjavík. Sjá nán-
ar vefsíðuna www.parket.is.
Sími er 567-1010. Opið er virka
daga frá kl. 9–18 og laugar-
daga 11–15.
Vínylparkett verður sífellt vinsælla
HARðVIðARVAL, KRóKHáLSI 4, REYKJAVÍK
Mynd DV ehf / Sigtryggur Ari
Mynd DV ehf / Sigtryggur Ari
Mynd DV ehf / Sigtryggur Ari
Mynd DV ehf / Sigtryggur Ari