Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Side 43
1958 Bandaríski Billboard-topplist-
inn, The Hot 100 Singles Chart, hóf
göngu sína. Ricky Nelson var í fyrsta
sæti með lagið Poor Little Fool.
1990 Þrír vopnaðir ræningjar stálu sem sa
msvarar 27 milljónum króna á
tónleikum hljómsveitarinnar New Kids On T
he Block í Montreal í Kanada.
Um var að ræða innkomu vegna sölu á ým
sum varningi merktum sveitinni.
2000 Craig David kom öðru lagi
sínu, 7 days, í fyrsta sæti breska listans.
Aðeins 19 ára að aldri varð hann því
yngsti karlsöngvarinn til að koma tveimur
lögum í fyrsta sæti listans, frá því að
Donny Osmond varð sá fyrsti til þess
árið 1973.
1901 Söngvarinn og trompetleikarinn Louis
Armstrong fæddist í Queens í New York.
Armstrong átti marga smelli, sem eru vel þekktir
í dag, eins og: Hello Dolly!, What A Wonderful
World, When The Saints Go Marching In, Ain't
Misbehavin', og We Have All the Time in the
World. Armstrong lést 6. júlí 1971.
1963 Bítlarnir komu fram í Queen's
Theatre í Blackpool Englandi. Aðdáendur
þeirra þyrptust í kringum leikhúsið og
lokuðu öllum inngöngum. Brugðið var
á það ráð að koma Bítlunum í gegnum
nærliggjandi byggingarsvæði, upp á og
yfir vinnupalla, og þaðan yfir á þak leik-
hússins þar sem þeir voru látnir síga inn í
húsið í gegnum fellihurð á þakinu.
2001 Dave Stewart kvæntist
tískuljósmyndaranum Anouska Fisz á
einkaströnd á Frönsku rivíerunni. Á meðal
gesta voru Elton John, Mick Jagger,
bræðurnir Liam og Noel Gallagher úr
Oasis og Annie Lennox, sem skipaði
hljómsveitina Eurythmics, ásamt Stewart.