Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 10
10 Helgarblað 11. ágúst 2017fréttir Margar kynslóðir undir sama þaki Í myndum okkur þriggja hæða hús, á miðhæðinni búa hjón, fyrir ofan þau býr sonur þeirra og á jarðhæðinni búa svo amma og afi. Þetta er kynslóðahús, fyrir­ komulag sem þekktist vel fyrr á árum bæði hér á landi og víð­ ar en minna sést af í dag. Það að margar kynslóðir búi í nálægð við hver aðra þarf ekki endilega að einskorðast við hús, það getur líka átt við fjölbýlishús, raðhús, parhús, hæðir og minni hús sem byggð eru á lóðum einbýlishúsa. Fram eftir tuttugustu öldinni var alls ekki sjálfsagt að hver kynslóð ætti sitt eigið húsnæði, hvað þá að hver einstaklingur ætti sitt eig­ ið herbergi. Það hefur hins vegar breyst á síðari árum með öðruvísi viðhorfi samfélagsins til hús næðis í bland við sterkari efnahag. Nú á tímum mikils húsnæðisskorts, sérstaklega á höfuðborgarsvæð­ inu, er fullt tilefni til að velta fyrir sér viðhorfum okkar til húsnæð­ is og hvort það geti verið jákvætt að flytja ekki að heiman. Blaða­ maður ræddi við nokkra aðila um kynslóðahús, Pétur Ármannsson arkitekt um þróunina á húsnæði, Eygló Harðardóttur, þingmann og fyrrverandi ráðherra húsnæðis­ mála, um lagalegu hliðina og mögulegar lausnir og Kolbrúnu Baldursdóttur, sálfræðing og for­ mann Barnaheilla, um áhrif þess á fólk að búa með stórfjölskyldunni. Hús voru kynslóðahús „Hús hér í gamla daga voru meira eða minna kynslóðahús, það var mjög algengt að stórfjölskyldur byggju saman. Í sveitunum bjó stórfjölskyldan saman undir einu þaki og það var oft líka þannig í þéttbýli. Í bæjum var algengt að stórfjölskyldan byggi saman í einu húsi, það var jafnvel at­ vinnurekstur, verkstæði eða versl­ un, á jarðhæðinni,“ segir Pétur H. Ármannsson, arkitekt og sviðs­ stjóri hjá Minjastofnun. „Á þeim tíma þá var það ekki al­ gengt að hver einstaklingur hefði eigið herbergi, það var sofið í hverju herbergi í húsinu og þannig var það lengi fram eftir tuttugustu öldinni. Til dæmis í Norðurmýrinni, sem byggðist á kreppuárunum, þá var sofið í bæði stofu og svefnherbergj­ um í mörgum húsum.“ Það var ekki merki um fátækt heldur um efnahagsstöðu þjóðar­ innar á þeim tíma. Á heimil­ um efnaðra einstaklinga voru þó dæmi um að börn hefðu sitt eigið svefnherbergi. Það varð svo al­ gengara eftir miðja tuttugustu öld þegar farið var að skipta húsum í dagálmu og svefnálmu. „Þá fengu herbergin sér­ hæfðara hlutverk, gerð þeirra og stærð var löguð að ákveðnum notkunarþörfum. Áður fyrr, eins og margir þekkja úr gömlum hús­ um, þá voru herbergin öll mjög svipuð að stærð. Það var byggður ákveðinn sveigjanleiki inn í eldri hús, unnt var að taka hús sem var teiknað sem einbýlishús og skipta því upp í minni íbúðir. Sama átti við um herbergin, það var hægt að nota svefnherbergi sem stofu og öfugt.“ Eftir stríðsárin breyttist gerð húsa, stofurnar stækkuðu og fengu stærri glugga, hús voru byggð með svefnálmum og svefnherbergin urðu minni en fleiri. Svefnher­ bergin hafa síðan stækkað eftir því sem nær dregur nútímanum. „Þetta var viðleitni til að laga hús­ næði að notkunarþörfum og nú­ tíma lífsháttum, en að sama skapi þá dró úr sveigjanleikanum, sem gerir það að verkum að það er ekki eins auðvelt að taka íbúðir eða hús sem verið er að byggja í dag og skipta þeim upp.“ Nefnir Pétur sem dæmi hús sem byggð eru í halla þar sem ein kynslóð gat búið á efri hæðinni með sér inngangi á meðan önnur kynslóð bjó á neðri hæðinni. Dæmi eru um að tekið hafi verið mið af fleiri en einni kynslóð undir sama þaki í skipulagi hverfa: „Í Seljahverfi í Breiðholti var ein hugmynd skipulagshöfunda sú að hluti hverfisins samanstæði af kyn­ slóðahúsum, það var innbyggð­ ur möguleikinn á fleiri en einni íbúð í hverju húsi og að tvær til þrjár kynslóðir gætu búið saman.“ Pétur sjálfur þekkir dæmi um tvílyft raðhús, þar sem afinn á heimilinu, n Kynslóðahús og viðbótarhús geta verið ein lausn á húsnæðisvandanum Ari Brynjólfsson ari@pressan.is Fleiri búa lengur hjá foreldrum Samkvæmt tölum Hagstofunnar hefur hlutfall ungs fólks sem býr hjá foreldrum sínum hækkað á undan- förnum árum, á árunum 2005 til 2015 hækkaði hlutfallið í aldurshópnum 20 til 24 ára úr rúmum 48% í tæplega 59%. Einnig varð tæplega 6 pró- sentustiga hækkun í aldurshópnum 25 til 29 ára á sama tímabili, fór það úr 15,5% í 21,4%. Svipaða þróun má sjá í Bandaríkjunum þar sem hlutfall ungmenna í foreldrahúsum hefur ekki verið jafn hátt í 75 ár. Ekki eru til tölur um margar kynslóðir undir sama þaki en í Bandaríkjunum búa hátt í 60 milljónir manns í húsnæði með fleiri en tveimur kynslóðum. Pétur H. Ármannsson Arkitekt og sviðsstjóri hjá Minjastofnun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.