Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 50
26 fólk - viðtal Helgarblað 11. ágúst 2017 sem núverandi borgarstjórn hefur lagt áherslu á er að þétta enda­ laust byggð. Fyrir hvern? Þessar eignir eru mög dýrar. Hvernig í veröldinni á að vera hægt að metta markaðinn ef okrað er á lóðum? Þó að ég sé lögblind þá sé ég auðar lóðir hér um alla borg, svo er alltaf verið að segja að það sé lóðaskortur. Það er enginn lóðaskortur, það eina sem vant­ ar er viljann til að bjóða lóðir án þess að okra á þeim. Lífeyrissjóð­ ir ættu að taka þátt í að fjármagna byggingu á félagslegu húsnæði í samvinnu við ríki og sveitarfélög. Meginatriðið er að metta mark­ aðinn svo sjálfgræðgis félög á borð við Gamma og Reiti hætti að græða á ástandinu. Við eigum að stemma stigu við græðgisvæðingu á húsnæðismarkaðnum því þetta er hræðileg þróun. Við viljum endurvekja félags­ lega húsnæðiskerfið og hafa þetta í anda gömlu verkamannabústað­ anna þar sem vextir voru lágir. Það verður að gera fólki kleift að standa í skilum. Það getur ekki einu sinni farið í greiðslumat. Ég er talin fær um að borga 140 þúsund krónur í húsaleigu af mínum rýru örorkubótum en ég myndi ekki fá greiðslumat til að borga 140.000 krónur í mánaðarlegar afborganir af láni til eigin íbúðarkaupa.“ Inga minnir á að á meðan stjórnvöld stæra sig af velmegun í landinu sé um þriðjungur þjóðar­ innar í basli: „Þorsteinn Víglunds­ son velferðarráðherra gefur það út að meðallaun í landinu séu 719.000 krónur. Þetta er móðgun við þjóð­ ina. Þarna er verið að taka inn í jöfn­ una milljónamæringa með margar milljónir og jafnvel milljónatugi í mánaðarlaun. Þeir eru að láta fólk fá 100.000 krónum minna útborg­ að á mánuði en sem nemur yfir­ lýstum viðmiðum velferðarráðu­ neytisins um lágmarksframfærslu. Þeir vinna ekki vinnuna sína. Þeir fara bara í langt sumarfrí.“ Hverju svararðu þeim sem myndu segja að ef lífeyrissjóðirnir fjárfesti of mikið í félagslegu hús- næði þá geti þeir ekki staðið við skuldbindingar sínar? „Það er aðeins eitt sem lífeyris­ sjóðirnir hafa aldrei tapað á, að­ eins eitt þar sem ávöxtunarkrafa þeirra hefur alltaf verið uppfyllt: Það er þegar þeir hafa lánað til eigenda sinna. Hins vegar getur maður spurt sig: Hvernig réttlæta þeir áhættufjárfestingu á borð við þá að stíga inn þegar stjórnendur og innherjar selja bréf sín í Högum vegna titrings á markaði með til­ komu Costco? Kaup þeirra í Hög­ um voru hrein og klár áhættufjár­ festing og hafa bréfin sem þeir keyptu þegar fallið um 32 pró­ sent á þremur mánuðum. Lífeyr­ issjóðirnir hafa nú þegar tapað hátt í 12 milljörðum króna á þess­ um gjörningi. Það má minna á að lífeyrissjóðirnir fjárfestu í fata­ búð í London og töpuðu við það 600 milljónum króna. Þeir hafa og viðurkennt að hafa tapað ríflega 600 milljörðum á hruninu. Hugsið ykkur hvernig okkur hefur verið haldið utan við umræðuna um það hvernig raunverulega er verið að „gambla“ með og misnota líf­ eyrissjóðina. 3.600 milljarðar eru eign okkar í þessu kerfi sem stjórn­ endur þess bera akkúrat enga virðingu fyrir. Tökum til dæmis lögboðaða staðgreiðslu skatta, al­ menna reglan er jú sú að af öllum skuli taka staðgreiðslu, en að sjálf­ sögðu þarf að koma með undan­ þágu fyrir einhverja sérútvalda, því þegar þú greiðir í lífeyrissjóð þá er ekki greidd staðgreiðsla af því, heldur er hún framkvæmd þegar þú færð útborgað úr sjóðn­ um, þ.e.a.s. ef þú lifir það lengi að geta yfirhöfuð nýtt þér þau áunnu réttindi sem þú hefur verið að stofna til í gegnum lífið. Í milli­ tíðinni fær lífeyrissjóðurinn að „gambla“ með staðgreiðsluna af því sem tekið er af okkur. Þannig að ef þú deyrð eftir að hafa borg­ að milljónir inn í lífeyrissjóðinn og aldrei verið greiddur skattur af því inn í okkar sameiginlega sjóð, þá hverfur það í hítina. Tökum til dæmis Framtaks­ sjóðinn sem nýverið var að greiða starfsmanni sínum 20 milljónir í mætingarbónus fyrir að hafa af­ rekað það að mæta í vinnuna í þrjú ár. Þessi sjóður var einungis stofn­ aður á sínum tíma til að halda utan um eignirnar sem lífeyrissjóðirnir voru að safna á brunaútsölu eftir hrun. Í dag heldur sjóðurinn utan um tvær eignir og kostnaður við það er um 200 milljónir króna. Það ætti að vera sjálfsögð krafa lífeyris­ eigenda að þessi sjóður verði lagð­ ur niður á stundinni og eignirnar færðar til. Það er sama hvert litið er, spillingin flæðir út um allt og er svo gífurleg að það er ekki nokkur leið að líta undan.“ Mun hafa mikil áhrif „Við erum ekki inni á þingi í dag en samt erum við að mínu mati öflugasta stjórnarandstaðan. Það er orðið svo lítið um hugsjónir. Þegar fólk er komið í álnir er eins og leggist yfir það einhver hula og það virðist eiga erfitt með að stíga niður til okkar hinna og horfast í augu við raunverulega stöðu al­ mennings í landinu, fólksins sem það á að vera að vinna fyrir,“ segir Inga og segir að Flokkur fólksins muni hafa mikil áhrif hvort sem hann verður í stjórn eða stjórnar­ andstöðu. „Stjórnarsamstarf snýst um málamiðlanir og auðvitað verða allir að gefa eftir. Þetta er eins og í hjónabandinu: maður getur ekki fengið allt sitt fram. En við munum aldrei gefa eftir þær kröfur að ráð­ ist sé gegn fátæktinni í landinu og stungið á spillingarkýlunum. En hvað eru í rauninni margir tilbún­ ir til þess?“ Inga telur það misskilning að þingmenn í stjórnarandstöðu séu áhrifalausir: „Ég ætla ekki bara að sitja í stjórnarandstöðu til að hafa hægt um mig. Ég mun leggja fram þingmál eftir þingmál og ef meirihlutinn bregst við því með því að svæfa mál í nefndum eða stinga þeim undir stól þá mun ég halda öllu slíku til haga. Eftir eitt kjörtímabil koma kosningar að nýju og þá yrði vandlega rifjað upp hvernig fólk tók á málunum á nýloknu kjörtímabili.“ Búum í fjölmenningarsamfélagi Inga vísar á bug ásökunum um að hún sé að etja saman hælisleit­ endum og öryrkjum, en gagnrýni hennar á störf Útlendingastofn­ unar hafa vakið hörð viðbrögð hjá mörgum. „Við búum í fjölmenningar­ samfélagi þar sem 10,6 prósent þjóðarinnar eru af erlendu bergi brotin og þetta frábæra og dug­ lega fólk hefur hjálpað okkur að byggja upp samfélagið eins og við þekkjum það í dag. Það sem ég hef hins vegar gagnrýnt er að hér eru hælisleitendur látnir bíða í eitt, tvö eða jafnvel þrjú ár áður en þeir fá svar við umsókn­ um sínum og þá oftar en ekki er þeim vísað úr landi. Þessi bið er klár mannvonska að mínu mati. Mér blöskrar það þegar fjölskyld­ ur með ung börn sem eru búnar að aðlagast samfélaginu og vinna hér baki brotnu, jafnvel farnar að tala íslensku, eru sendar úr landi.“ Norðmenn hafa hina svo köll­ uðu 48 stunda reglu og telur Inga hana mun manneskjulegri en þá óvissu sem ríkir hér í málaflokkn­ um. Sú regla felur í raun í sér að þeim sem eiga ekki rétt á hæli er vísað tafarlaust úr landi. Þeir sem fá hæli fá hins vegar úrlausn sinna mála fljótt. „Ég á eftir að spyrja þessa háu herra sem eru að kalla mig öll­ um illum nöfnum: Vilja þeir hafa þetta einhvern veginn öðruvísi? Vill Logi Einarsson, minn fyrrver­ andi flokksbróðir, hafa þetta ein­ hvern veginn öðruvísi? Þeir segja að ég sé að etja saman hælisleit­ endum og öryrkjum, það er ósatt, það er einungis þannig sem þeir kjósa að túlka það sem ég segi, spurning hvaða stimpil þeir vilja setja á sjálfa sig. Fólki væri nær að snúa bökum saman um þær hug­ sjónir að útrýma hér fátækt en að reyna að ata okkur auri og snúa út úr málflutningi mínum.“ Með harðan skráp en þó viðkvæm undir niðri Inga Sæland er annáluð baráttu­ kona sem kann að svara fyrir sig. Hún er í senn hörð og mjúk. Hún er þekkt fyrir hjálpsemi og hefur nýtt nýfengna lögfræðiþekkingu sína til að aðstoða fólk sem á um sárt að binda og á erfitt uppdráttar gegn kerfinu. Hún má hvergi aumt sjá og hefur líka eytt ómældri fyrir höfn í að hjúkra lasburða gæludýrum sem örlögin hafa rek­ ið til hennar. En þrátt fyrir baráttuandann og hörkuna er stutt í viðkvæmn­ ina og hún játar fyrir blaðamanni að gagnrýnin sem hún hefur orðið fyrir undanfarið hafi fengið nokk­ uð á hana: „Það er þannig að ég hef orðið fyrir því að missa marga kæra ástvini af slysförum. Bróðir minn drukknaði á Siglufirði árið 1988, ég missti mág minn í slysi nokkru síðar og tengdason minn árið 2010. Þetta er ansi mikil sorg að bera og stundum þegar ég verð fyrir mótlæti eða stend í deilum þá blossar upp þessi sársauki í mér og gerir mig meyra.“ Inga er tilfinningarík kona. Það fer ekki framhjá blaðamanni sem á með henni þessa viðtals­ stund á skrifstofu Flokks fólksins frá hádegi föstudaginn 4. ágúst. Við sitjum saman í eitthvað á ann­ an tíma. Nærvera hennar er allan tímann afskaplega þægileg. Það er stutt í brosið og gamansem­ ina og þó að við höfum aldrei hist áður, eingöngu talað saman í síma, streyma hlýir og afslappað­ ir straumar milli okkar. Við föðm­ umst að lokum og óskum hvort öðru góðrar helgar áður en við kveðjumst, ég til að skrifa grein­ ina á meðan Inga Sæland safnar kröftum og býr sig undir næstu átök í sínu pólitíska starfi. n „ Kaup þeirra í Högum voru hrein og klár áhættufjárfesting og hafa bréfin sem þeir keyptu þegar fallið um 32 prósent á þremur mánuðum. Á vinnustaðnum Inga unir sér vel á flokksskrifstofunni. Mynd Brynja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.