Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 42
Migos Mætir í LaugardaLshöLLina Rappa sig upp vinsældalistana Migos, ein heitasta rapphljómsveit heims, mætir í Laugardalshöll- ina í næstu viku, þann 16. ágúst og skemmtir Íslendingum. XXX Rottweiler, Cyber og Joey Christ sjá um að hita og DJ Sura mun þeyta skífum. Hljómsveitin, sem hét upp- haflega Polo Club, var stofnuð í Georgíu-fylki í Bandaríkjunum árið 2009 af frændunum Quavo, Takeoff og Offset. Migos gaf út fyrsta „mix-teipið“, Juug Season, árið 2011. „Mix-teipið“ Y.R.N. (Yung Rich Niggas) kom út árið 2013 og lagið Versace sló rækilega í gegn og birtist á fjölda topplista, þar á meðal hjá Rolling Stone. Rapparinn Drake gaf út „remix“ af laginu og það vakti athygli þegar kanadíska poppstjarnan Justin Bieber birti stutt myndband af sér á samfélagsmiðlum þar sem hann rappar með laginu. Framinn var vís, aðdáendur og gagnrýnendur voru heillaðir og Migos vann með listamönnum á borð við Post Malone (sem er nýlega búinn að halda tónleika í Hörpu), Katy Perry, Drake og 2 Chainz. Í október 2016 fór lag Migos og Lil Uzi Vert, Bad and Boujee, á toppinn á vinsældalistum í Banda- ríkjunum og víðar, og fékk mikla útbreiðslu á samfélagsmiðlum, meðal annars með „meme“. Lagið var tilnefnt til Billboard-tónlist- arverðlaunanna í maí síðastliðn- um, sem besta rapplagið og besta rappsamstarfið. Lagið er fyrsta lag plötunnar Culture, sem kom út í janúar og hefur hún fallið vel í kramið hjá rappaðdáendum. Erpur spEnntur fyrir tón- LEikunuM Erpur Eyvindarson Meðlimur XXX Rottweiler. Mynd Sigtryggur Ari Erpur Eyvindarson, meðlimur XXX Rottweiler, er einn af þeim sem munu kynda upp húsið fyrir bandarísku nýstirn- in. Hann hefur marga fjöruna sopið þegar kem- ur að hipphoppi og hefur lifað tímana tvenna. „Mér finnst Migos mjög skemmtilegir“ segir Erpur þegar blaðamaður náði af honum tali. „Ég hef fylgst með rappi svo lengi. Þetta er með því betra sem er í gangi í þessari nýju bylgju. Þetta eru ungkettir.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.