Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 52
28 sakamál Helgarblað 11. ágúst 2017
S
unnudagurinn 10. apríl,
2016, hafði verið með hefð-
bundnu sniði hjá Elaine
Danaher. Elaine var þá 45
ára, fráskilin og átti tvo syni; Ryan,
14 ára, og Jacob, 9 ára.
Elaine hafði skilið við föður
drengjanna, Michael, fjórum
árum fyrr, vann í John Lewis-
versluninni í Petersborough í
Bretlandi, hafði fundið nýjan lífs-
förunaut og var allsendis sátt við
lífið og tilveruna.
Eftir að hafa vaskað upp eftir
kvöldmatinn þennan ágæta dag
settist Elaine við tölvuna og skoð-
aði möguleika varðandi sumarfrí-
ið sem nálgaðist óðfluga.
Þá var dyrabjöllunni hringt;
fyrir utan stóðu tveir lögreglu-
þjónar og manneskja frá fjöl-
skyldudeild lögreglunnar.
Þytur í laufi
Í fyrstu óttaðist Elaine að erindið
varðaði yngri bróður hennar, sem
enn var í hernum. „Guð minn góð-
ur, hvað hefur komið fyrir hann,“
hugsaði hún en þær áhyggjur
voru ástæðulausar.
„Við erum hér til að tala við þig
um Michael. Við höfum hand-
tekið hann, grunaðan um morð,“
sagði annar lögregluþjónninn.
Næstu fjóra klukkutíma svar-
aði Elaine öllum þeim spurning-
um sem var beint til hennar. Síðan
vildu þeir ræða við Ryan og skoða
farsímann hans og var það auð-
sótt mál. Þegar Ryan var spurður
hvort hann hefði séð eintak af
bókinni The Wind in the Willows,
Þytur í laufi, þegar hann var hjá
föður sínum síðast fölnaði hann
upp og sagði: „Ég veit um hvað
málið snýst.“
Blóð og óreiða
Síðdegis, þremur dögum fyrr,
hafði líkið af Adrian nokkrum
Greenwood fundist. Greenwood
var ágætlega metinn sagnfræðing-
ur, rithöfundur og listmunasali í
Oxford, en þegar lögregla kom að
heimili hans mætti henni óhugn-
anleg sjón.
Veggirnir í forsalnum voru
blóðugir, myndir á veggjum
héngu skakkar og öll ummerki
báru þess vitni að átök hefðu átt
sér stað. Líkið af Greenwood lá
innan við útidyrnar, alsett hnífs-
stungum.
Rannsóknarlögreglumaðurinn
Stuart Blaik, sem var fyrstur á
staðinn, sagði að svo hefði virst
sem ofsafengin líkamsárás hefði
átt sér stað. Hver var ástæða
morðsins var hins vegar spurn-
ingin sem svara þurfti.
Veski, farsími og ein bók
Greenwood, sem var virtur innan
fræðasamfélagsins í Oxford, var
umsvifamikill í sölu fágætra bóka
á netinu og hafði komist í frétt-
ir þegar fyrstu útgáfu eintaki af
Harry Potter-bók hafði verið stolið
frá honum árið 2010. Þá hafði
einmitt verið haft eftir honum að
afar erfitt væri að koma þýfi af jafn
sjaldgæfu tagi í verð.
Í ágúst árið 2015 hafði
Greenwood bætt einni bók á sölu-
lista sinn á eBay; The Wind in the
Willows eftir Kenneth Grahame,
enn í upprunalegri hlífðarkápu.
Bókin var metin á 50.000 sterl-
ingspund.
Við rannsókn á heimili
Greenwoods komst lögreglan að
því að þrjá hluti, að minnsta kosti,
var ekki að finna; veski og farsíma
Greenwoods og hið dýrmæta ein-
tak af The Wind in the Willows.
Með notkun nútímatækni hafði
lögreglan hendur í hári Michaels.
Áverkar og lygar
Þáttur Ryans, sonar Michaels, í
þessu máli var ekki flókinn. Að
kvöldi morðdagsins hafði faðir
hans hringt í hann og sagt hon-
um uppdiktaða sögu þess efnis að
tveir menn hefðu ráðist á hann og
hann væri allur blár og marinn.
Talið er að Michael hafi með því
viljað forðast spurningar sona
sinna þar að lútandi þegar þeir
hittust næst.
Þegar Ryan og Jacob hittu föður
sinn nokkrum dögum síðar sýndi
hann þeim stoltur eintakið af The
Wind in the Willows og sagði að
hann væri rétt óbúinn að setja það
á sölu á eBay. Það var þess vegna
sem Ryan var fljótur að tengja
þegar lögreglan minntist á bókina
fágætu.
Verkefnalisti
Michael hafði spilað rassinn úr
buxunum í kjölfar skilnaðar hans
og Elaine árið 2012. Hann hafði
hætt í vinnunni, flutt inn í litla íbúð
og fitnað óhóflega. Í árslok 2015
fjárfesti hann 50.000 sterlings-
pund í svikamyllu sem varðaði líf-
eyri og tapaði öllu saman.
Hvað sem þessu öllu leið stóð
hann þó skil á meðlagsgreiðslum
til Elaine og sinnti sonum sínum
óaðfinnanlega.
Listi sem kom upp úr kafinu
við rannsókn lögreglunnar færði
henni þó heim sanninn um að
skóinn kreppti víða í tilveru
Michaels. Á listanum var að finna
nöfn ýmiss frægs fólks sem hann
hugðist beina spjótum sínum að
með fjárhagslegan ávinning að
leiðarljósi.
Áform Michaels
Lögreglan sá nú morðið á
Greenwood í nýju ljósi, fannst
enda sem listi Michaels benti ekki
til þess að þar færi mað-
ur sem sem léti skeika að
sköpuðu heldur kaldrifj-
aður, skipulagður morðingi
sem hikaði ekki við að beita
ofbeldi til að ná sínu fram.
Á listanum var að finna
nöfn á borð við Kate Moss,
Jeffrey Archer og Louise
Redknapp og hugmyndir
Michaels um þá fjármuni
sem hann hefði hugsan-
lega upp úr krafsinu. Einnig
hafði Michael skráð þær að-
ferðir sem hann hugðist
beita, meðal annars þeirri að
fremja mannrán í dulargervi
sendils, vopnaður stuðbyssu.
Fjölskylda í sárum
Morð, eðli málsins sam-
kvæmt, á það til að skilja til-
veru ættingja og vina fórnar-
lambsins eftir sem auðn, en
fjölskylda morðingjans þarf
einnig að horfast í augu við og
reyna að skilja gjörðir ástvin-
ar síns.
Í heimildamynd sem gerð
var um morðið á Adrian
Greenwood kom berlega fram
að endaskipti höfðu orðið á lífi
Elaine og sona hennar. „Þegar
þú giftist einhverjum þá held-
ur þú að þú raunverulega þekk-
ir viðkomandi,“ segir Elaine í
heimildamyndinni.
„Mike fór til Oxford með þá
hugmynd að stela þessari bók og
selja hana. Hann var reiðubúinn
til að verða einhverjum að bana
fyrir fé,“ sagði Elaine. Hún sagð-
ist aldrei, öll þau 15 ár sem þau
bjuggu saman, hafa séð eitthvað
sem gaf til kynna hvað síðar
yrði.
Venjuleg fjölskylda, ekki
illmenni
„Fólk gerir ráð fyrir að við, sem
fjölskylda ódæðismanns, séum
öll illmenni. Það er ekki þannig,“
sagði Elaine og bætti við að
þau væru venjuleg fjölskylda í
hörmulegum aðstæðum.
Enn fremur sagði Elaine að
framfærslugreiðslur hefðu hætt
að berast eftir að Michael var
dæmdur (fékk lífstíðardóm í
október 2016) og því hafi fjár-
hagslegar aðstæður breyst
til hins verra og hún þurfi að
spara í hvívetna.
Í kaldhæðni segir Elaine:
„Það væsir ekki um Mike.
Hann er með þak yfir höfuðið.
Hann fær þrjár máltíðir á dag
og þarf ekki að hafa áhyggjur
af útsvari lengur.“
Skammaðist sín
Elaine er reið Michael fyrir
að hafa ekki játað sig sekan og
þannig komist hjá réttarhöldum
– þannig hefði hann firrt syni sína
miklu hugarangri. Í byrjun fannst
Elaine hún bera ábyrgð á gjörðum
Michaels. Hún baðst í vinnunni sí-
fellt afsökunar á öllu saman og allir
spurðu hana af hverju hún væri að
biðjast afsökunar.
„Ég var gift honum. Ég eignaðist
börn með honum. Ég skammaðist
mín,“ sagði hún í fyrrnefndri heim-
ildamynd.
Þegar málalyktir lágu fyrir, síð-
asta dag réttarhaldanna, gaf Elaine
sig á tal við móður Greenwoods:
„Ég sagði
ekki fyrirgefðu, þótt mig langaði
til. Ég sagði við hana: „Það gleð-
ur mig að þú fékkst réttlæti fyrir
son þinn“. Frú Greenwood sagði:
„Lofaðu mér að hugsa vel um
drengina þína“. Ég stóð þarna og
grét.“ n
„Ég var gift honum.
Ég eignaðist börn
með honum. Ég skamm-
aðist mín.
n Fágætt bókareintak freistaði Michaels n Hugði á fjölda aðgerða
Þytur í laufi
Michael Danaher Í kjölfar skilnaðar fór nánas
t allt í vaskinn hjá honum.
Adrian Greenwood Var vel þekktur innan fræðasviðsins í Oxford.