Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 48
4 Brot af því besta KYNNINGARBLAÐ Helgarblað 11. ágúst 2017
Bólstrun er enn það sem allt snýst um hjá okkur. Bólstraðir hlutir eru alls
staðar í umhverfinu, til dæmis
á líkamsræktarstöðvum, hót-
elum og veitingahúsum, og að
sjálfsögðu líka á heimilum. Við
vinnum mikið fyrir veitinga-
hús og hótel og höfum fundið
sterklega fyrir uppganginum
sem orðið hefur í ferðaþjón-
ustunni.“
Þetta segir Hafsteinn
Gunnarsson, eigandi Bólstrar-
ans, sem er í senn gamalt og
síungt fyrirtæki. Faðir Haf-
steins, Gunnar V. Kristmanns-
son, stofnaði Bólstrarann árið
1944 og var fyrirtækið til húsa
að Hverfisgötu 76 allt til ársins
2000, en þá var flutt í stærra
húsnæði að Langholtsvegi 82,
þar sem það er til húsa núna.
Hafsteinn tók hins vegar við
rekstrinum upp úr 1980. Auk
bólstrunar flytur Bólstrarinn
inn og selur efni.
„Við flytjum inn áklæði,
gluggatjöld og veggfóður og
stundum tengist sá innflutn-
ingur þeim stóru verkefnum
sem við erum í. Arkitektar
koma gjarnan í verslunina og
velja fyrir sína viðskiptavini.
Gluggatjöldin eru sérpöntuð
í gegnum okkur, þau eru svo
gríðarlega fjölbreytt að það
er ekki hægt að halda glugga-
tjaldalager. Afgreiðslutíminn
er hins vegar mjög stuttur,“
segir Hafsteinn en hann legg-
ur áherslu á að flytja eingöngu
inn mjög vandaðar vörur:
„Við erum með umboð fyrir
mjög flott fyrirtæki í Evrópu,
t.d. Romo Fabrics sem er
orðið stærsta og flottasta
fyrirtækið í svona fínum og
dýrum textíl í heiminum.
Þá má líka nefna Warwick
Fabrics sem framleiðir geysi-
lega fínt efni. Þetta fer oft
saman, þ.e. húsgögn, áklæði,
gluggatjöld og veggfóður eru
gjarnan valin saman. Hótel
þurfa síðan yfirleitt að láta
veggfóðra hjá sér því þau fá
ekki stjörnur án veggfóðurs.“
Þrátt fyrir umfangsmikil verk-
efni fyrir fyrirtæki er rúmlega
helmingur viðskipta Bólstr-
arans enn við einstaklinga
og heimili og er þetta svipuð
samsetning starfseminnar
og verið hefur frá upphafi hjá
þessu gróna fyrirtæki.
„Grunnurinn er einstak-
lingar og við höfum alltaf lagt
mikla áherslu á þá. Sixtís-hús-
gögn hafa líka verið mjög vin-
sæl síðan um aldamótin,“ segir
Hafsteinn en vinsælt er að
láta bólstra húsgögn hönnuð
á árunum frá 1955–1970, sem
eru í hátísku í dag.
Það er gaman og gagnlegt
fyrir þá sem vilja fegra heimili
sín að koma í verslun Bólstr-
arans að Langholtsvegi 82
en hún er opin frá kl. 9 til 18
mánudaga til föstudaga. Sím-
inn er 568-4545 og netfang
er bolstrarinn@islandia.is.
Nánari upplýsingar eru síðan
á heimasíðunni bolstrarinn.is.
Harðfiskurinn má segja að sé hálfgert þjóðar-tákn Íslendinga. Hann
er sannkallað ofurfæði því
hann er ekki bara meinhollur
heldur einnig bragðgóður og
stórskemmtilegt að borða
hann. Stjörnufiskur er gamal-
gróið fyrirtæki og stofnað árið
1988. Ekki alls fyrir löngu, eða
í janúar 2016, tóku félagarnir
Guðni Már Þorsteinsson og
Þorlákur Grímur Halldórsson
við rekstri þess. Stjörnufiskur
sérhæfir sig annars vegar
í framleiðslu á harðfiski og
svo bitafiski, sem er harð-
fiskur verkaður í handhæg-
um bitum. „Harðfiskurinn er
frábær í millimál á meðan
bitafiskurinn kemur algerlega
í staðinn fyrir snakk og annars
konar nasl,“ segir Guðni.
Báðar vörurnar eru gerðar úr
íslenskum þorski sem keypt-
ur er af markaði og beint af
bátnum sem Þorlákur gerir út
á Grindavík. Framleiðslan er
sömuleiðis öll staðsett þar.
Færeyingar elska harðfisk
„Við seljum harðfiskinn okkar
í hinar ýmsu matvörubúðir
svo sem Bónus og ICELAND
matvörukeðjuna. Svo erum
við að flytja út vörur á fær-
eyskan markað. Færeyingar
eru vitlausir í þurrkaðan fisk
og kaupa töluvert af okkur,“
segir Guðni. Stjörnufiskur
hyggst auka framleiðslu sína
og leggja net sín út á fleiri
erlenda markaði í framtíðinni,
enda með frábæra vöru í
höndunum. „Eftir að við fór-
um alfarið í að verka þorskinn
jókst salan töluvert hjá okkur
og það er mín trú að þorsk-
urinn henti einfaldlega best í
harðfiskinn,“ segir Guðni.
Sjá nánar á Facebook-síðu
Stjörnufisks.
Hægt er að hafa sam-
band við Stjörnufisk í síma
8976302 eða með því að
senda tölvupóst í stjornufisk-
ur@simnet.is.
Stjörnufiskur: Þorskurinn er
langbestur í harðfiskinn
Áklæði og gluggatjöld fyrir
heimili og fyrirtæki síðan 1944
BóLStRARINN, LANGHoLtSVEGI 82