Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 16
16 sport Helgarblað 11. ágúst 2017 E inn stærsti knattspyrnu­ leikurinn á hverju sumri fer fram á laugardag þegar ÍBV og FH eig­ ast við í bikar úrslitum karla en leikurinn fer fram á Laugar­ dalsvelli klukkan 16.00. Mik­ il eftirvænting er fyrir leiknum en FH er sigurstranglegri að­ ilinn þegar gengið verður út á Laugardalsvöll. Saga Eyja­ manna í bikarnum er þó stærri en FH­inga en FH, sem hefur verið besta lið Íslands frá ár­ inu 2004, hefur aðeins unnið bikarinn í tvígang, í Kaplakrika telst það slakur árangur og vilja menn ná í bikarinn í ár. ÍBV fékk síðast bikar í karlaknattspyrnu árið 1998 þegar liðið vann bæði deild og bikar, 19 ára eyði­ merkurgöngu gæti því lokið á laugardag. FH-ingar vilja fá bikarinn í Krikann FH varð síðast bikarmeistari árið 2010 en síðan þá hefur liðið ekki náð merkilegum árangri í bik­ arnum, liðið komst þó í undan­ úrslit í fyrra en ÍBV hafði þar betur áður en Eyjamenn töp­ uðu síðan gegn Val í úrslitum. „Það er hungur í Krikanum, við vorum auðvitað svekktir í fyrra að detta út í undanúrslitum og fá þar með ekki tækifæri til að taka þátt í þessum leik sem er sá stærsti og skemmtilegasti á hverju ári,“ sagði Þórarinn Ingi Valdimarsson, kantmaður FH, um leikinn en þessi öflugi leik­ maður ólst upp í Vestmanna­ eyjum og er því að mæta upp­ eldisfélagi sínu. Býst við að fá að heyra það Eins og fyrr segir ólst Þórarinn upp hjá ÍBV og flestir vinir hans styðja liðið, hann býst við að fá einhverjar pillur fyrir leik. „Bikar leikir eru alltaf mjög erf­ iðir, við höfum ekki náð flugi í bikarnum síðustu ár en núna erum við komnir í úrslitaleik­ inn og ætlum að reyna að taka hann með trompi, okkur finnst vera kominn tími á okkur að klára þennan bikar. Þetta leggst ótrúlega vel í mig, það er gaman að fara inn í svona leik. Ég vona að það verði vel mætt á völlinn, við duttum út gegn ÍBV í undan­ úrslitum í fyrra, en núna viljum við standa í lappirnar og klára verkefnið. Það er alltaf gaman fyrir mig að mæta ÍBV, þarna eru margir sem ég þekki og það verður gaman að mæta þeim á Laugardalsvelli. Ég er ekki byrj­ aður að fá neinar svakalegur pillur frá vinunum en ætli það fari ekki að færast í aukana, þeir geta látið mig heyra það eins og þeir vilja en þeir ná ekki inn í hausinn á mér.“ Pressan í bikarnum Það er þekkt stærð í fótboltanum að bikarleikir eru erfiðir, Eyja­ menn hafa til að mynda ekki náð flugi í deildinni en verið öflugir í bikarnum. FH­ingar eru meðvit­ aðir um þetta og ætla ekki að láta það trufla sig að liðið er líklegra til sigurs og pressan er á þeim. „Það er alltaf pressa á þér þegar þú ert í FH að vinna leikina, í bikarnum er þetta bara öðruvísi og leikirnir þar eru alltaf erfiðir. Það er öðruvísi stemning í bik­ arnum en í deildinni. Lið koma öðruvísi inn í leikina, þú ert með bakið upp við vegg fyrir leik og ef þú tapar þá er partíið ein­ faldlega búið. Leikmenn vita af þessu fyrir leik og því verður oft öðruvísi stemning, það er mikil barátta og ákefð í svona leikj­ um.“ Álag á FH-ingum FH­ingar eru að keppa á þremur stöðvum þessa dagana, liðið vann Val í deildinni í vikunni og kom sér þá aftur í baráttu efstu liða um sigur í Pepsi­deildinni, þá eru FH­ingar einnig í um­ spili um laust sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar þar sem liðið mætir Braga frá Portúgal. Síðan er bikar úrslitaleikurinn fram undan. „Það er búið að vera mikið álag á okkur undan­ farið, þetta er það sem FH hefur unnið að í mörg ár, og gert, að keppa á öllum stöðvum og berj­ ast þar. Við viljum ná að komast lengra í Evrópu og það væri al­ gjör draumur að komast áfram gegn Braga. Núna er hugur okkar bundinn við bikarleikinn og sigur þar gæti vonandi kveikt mikið líf í okkur fyrir lokasprett­ inn. Við erum með fínan hóp til að dreifa álaginu en það vilja allir spila bikarúrslitaleikinn, maður vonast eftir því að vera með frá byrjun en það er undir Heimi Guðjónssyni (þjálfara FH) komið hvort það verði.“ Komnir í baráttuna FH vann topplið Vals á þriðjudag í Pepsi­deildinni og getur nú leyft sér að dreyma um að vinna deildina þriðja árið í röð, sigurinn kemur FH sex stigum á eftir Val og liðin eiga átta leiki eftir. „Þetta var mjög flottur leikur gegn Val, ef við ætluð­ um að eiga einhverja von í deildinni þá urðum við að vinnan þennan leik. Við erum góðir undir pressu og leikirnir sem eru eftir í deildinni eru þannig leikir að við megum ekki misstíga okkur, það kemur okkur inn í þennan pakka sem er á toppn­ um. Við vitum að Valur er með frá­ bært lið og það verður erfitt að ná þeim en við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að veita þeim samkeppni þangað til tímabilið er á enda.“ n Misjöfn leið í úrslitin Þetta er í níunda sinn sem liðin eigast við í bikarkeppninni, en FH hefur hingað til haft yfirhöndina í þessum viðureignum. FH hefur unnið fimm viðureignir, en ÍBV þrjár. Árið 1983 þurftu liðin að mætast tvívegis, en fyrri leikur þeirra hafði þá endað með 2-2 jafntefli og því var leikinn annar leikur. Þess má þó geta að ÍBV sló FH út úr keppninni í fyrra á leið sinni í úrslitaleikinn. Á leið sinni í úrslitin hefur ÍBV slegið út þessi lið: 32 liða úrslit - 4-1 sigur á KH. 16 liða úrslit - 5-0 sigur á Fjölni. 8 liða úrslit - 2-1 sigur á Víkingi Reykjavík. Undanúrslit - 2-1 sigur á Stjörnunni. Á leið sinni í úrslitin hefur FH slegið út þessi lið: 32 liða úrslit - 6-1 sigur á Sindra. 16 liða úrslit - 2-1 sigur á Selfossi. 8 liða úrslit - 1-0 sigur á Fylki. Undanúrslit - 1-0 sigur á Leikni Reykjavík. Bikarmeistarar frá upphafi í karlaflokki KR (14) 1960, 1961, 1962, 1963, 1964, 1966, 1967, 1994, 1995, 1999, 2008, 2011, 2012, 2014 Valur (11) 1965, 1974, 1976, 1977, 1988, 1990, 1991, 1992, 2005, 2015, 2016 ÍA (9) 1978, 1982, 1983, 1984, 1986, 1993, 1996, 2000, 2003 Fram (8) 1970, 1973, 1979, 1980, 1985, 1987, 1989, 2013 ÍBV (4) 1968, 1972, 1981, 1998 Keflavík (4) 1975, 1997, 2004, 2006 FH (2) 2007, 2010 Fylkir (2) 2001, 2002 Breiðablik (1) 2009 ÍBA (1) 1969 Víkingur R. (1) 1971 Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is Pressan á FH-ingum í bikar- úrslitum á laugardag n Eyjamenn vonast eftir óvæntum úrslitum n FH líklegra til sigurs Í hita leiksins Þórarinn Ingi ólst upp hjá ÍBV en mætir nú sínum gömlu félögum í bikarúrslitum. Mynd EPA Mynd ToMASz KolodziEJSKi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.