Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 72

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 72
Helgarblað 11. ágúst 2017 48. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Ef Davíð fer í borgina verður stjörnustríð! Horft til Davíðs n Fréttamoli Orðsins á götunni á Eyjunni í gær um að Davíð Oddsson væri að velta fyrir sér framboði í borginni, vakti mikla athygli. Sjálfstæðismenn leita dauðaleit að leiðtoga sem geti rifið fylgi flokksins upp og unnið sigur á óvinsælum meirihluta. Síðast þegar Davíð bauð sig fram í borginni fékk Sjálfstæðisflokk- urinn meira en 60 prósenta fylgi, sem er ótrúlegur ár- angur. Það er því ekki að undra, að margir líti til hans vonar- augum og láti sig dreyma um að komast til áhrifa á ný. Ósanngjarnt.is n Snorri Helgason kvartaði yfir því á Twitter að hafa ekki feng- ið boðskort í opnunarhóf H&M á Íslandi síðar í ágúst á meðan kærasta hans, leikkonan og grínistinn Saga Garðarsdóttir, hafi fengið tvö slík kort send heim. Sænski tískurisinn hefur sent mörgum af helstu áhrifa- völdum – eða „trendsetterum“ – landsins boðskort í partíið þar sem þeir munu geta keypt föt og varning með 20 pró- senta afslætti. Snorri birti mynd af boðskortunum og skrifaði: „Ósanngjarnt.is. @harmsaga fékk tvö boðskort á H&M drulluna en ég núll. Greini- legt hver klæð- ist influencer- buxunum á þessu heim- ili.“ Endur fyrir löngu á klósetti í fjarlægri vetrarbraut Star Wars-þema á klósettinu laðar ferðamenn á Café Babalú Þegar fólk spyr hvar kló-settið sé svara ég yfir-leitt: í fjarlægri vetrar- braut. Fólk er alltaf svolítið hissa þangað til að það sér baðherbergið,“ segir Glenn Barkin, eigandi kaffihússins Babalú við Skólavörðustíg 22, en baðherbergi staðar- ins er líklega eitt það vin- sælasta í borginni meðal ferðamanna – enda hannað í anda Stjörnustríðsmynd- anna. Baðherbergið er inn- réttað með málmplötum, speglum og ljósum til að minna á geimskip. Myndir af persónum úr upphaf- legu Star Wars-myndunum eru límdar á veggina í raun- stærð: Logi Geimgengill, Han Solo, Lilja prinsessa og vélmennin R2D2 og C3PO, og tónlist úr myndunum ómar um salernið. „Ég hef alltaf verið mik- ið Star Wars-nörd og ákvað að nota það sem þema þegar við gerðum neðri hæð hússins upp árið 2013. Smám saman höfum við bætt við það. Á þessu ári settum við til dæmis upp hátalarann sem spilar stöð- ugt tónlist úr myndunum,“ segir Glenn. Hann segir baðher- bergið ekki bara vera far- ið að vekja athygli á sam- félagsmiðlum á borð við Instagram og Snapchat heldur hafi verið fjallað um það í þó nokkrum leiðarvís- um og leiðsögubókum, oft- ar en ekki frá Asíu – og stundum koma ferða- langar í pílagrímsferð á klósettið. „Mér finnst skemmtilegast þegar krakkar fara á baðher- bergið án þess að vita af þessu, koma svo út með hökuna í gólfinu,“ seg- ir Glenn sem segist njóta þess að nota kaffihúsið sem tóman striga til að skapa skemmtilegt andrúmsloft. „Næst á dagskrá er að gera upp klósettið á efri hæðinni. Ég hugsa að ég geri það í Dr. Who-þema, setji upp spegla og ljós og svoleið- is.“ n kristjan@dv.is Hótelbyggingar í bið n Gífurleg uppbygging hefur verið í hótelgeiranum undan- farin ár í takt við mikla fjölgun ferðamanna. Nú heyrist að bank- arnir séu orðnir tregari en áður til að lána fé til hótelbygginga og vilji sjá hvaða áhrif gengi og verð- lag hefur á þróun í þessum geira áður en lengra er haldið. Því er líklegt að ýmis hótelverkefni verði annaðhvort slegin af eða sett á ís á næstunni. Auk þess er ljóst að tími samruna er runninn upp í ferðaþjónustunni, þar sem menn reyna að snúa bökum saman og standa mögulegt högg af sér. Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is Nettoline fær 5 stjörnur frá dönskum gagnrýnendum Þitt er valið Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum, eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir þá sem þess óska. við hönnum og teiknum Komdu með eða sendu okkur málin af eldhúsinu, baðinu, þvottahúsinu, anddyrinu eða svefnherberginu - og við hönnum, teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska inn- réttingu í hæsta gæðaflokki og vönduð raftæki á vægu verði. gott skipulag Það getur verið mikil kúnst að nýta pláss á sem bestan máta. Með fjölbreyttum skápalausnum frá Fríform á hver hlutur sinn stað. Gott skipulag léttir þér lífið og sparar bæði tíma og fyrirhöfn. styrkur - ending - gæði BaðherBergisinnrÉttingar hÁgÆða Danskar opið: Mán. - fim. kl. 09 til 18 Föstudaga kl. 09 til 17 Lokað á laugardögum í sumar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.