Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Síða 72
Helgarblað 11. ágúst 2017
48. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Ef Davíð fer í
borgina
verður
stjörnustríð!
Horft til Davíðs
n Fréttamoli Orðsins á götunni
á Eyjunni í gær um að Davíð
Oddsson væri að velta fyrir sér
framboði í borginni, vakti mikla
athygli. Sjálfstæðismenn leita
dauðaleit að leiðtoga sem geti
rifið fylgi flokksins upp og unnið
sigur á óvinsælum meirihluta.
Síðast þegar Davíð bauð sig fram
í borginni fékk Sjálfstæðisflokk-
urinn meira en 60 prósenta fylgi,
sem er ótrúlegur ár-
angur. Það er því
ekki að undra,
að margir líti
til hans vonar-
augum og láti
sig dreyma um
að komast til
áhrifa
á
ný.
Ósanngjarnt.is
n Snorri Helgason kvartaði yfir
því á Twitter að hafa ekki feng-
ið boðskort í opnunarhóf H&M
á Íslandi síðar í ágúst á meðan
kærasta hans, leikkonan og
grínistinn Saga Garðarsdóttir,
hafi fengið tvö slík kort send
heim. Sænski tískurisinn hefur
sent mörgum af helstu áhrifa-
völdum – eða „trendsetterum“
– landsins boðskort í partíið
þar sem þeir munu geta keypt
föt og varning með 20 pró-
senta afslætti. Snorri birti mynd
af boðskortunum og skrifaði:
„Ósanngjarnt.is. @harmsaga
fékk tvö boðskort á
H&M drulluna en
ég núll. Greini-
legt hver klæð-
ist influencer-
buxunum
á þessu
heim-
ili.“
Endur fyrir löngu á klósetti í fjarlægri vetrarbraut
Star Wars-þema á klósettinu laðar ferðamenn á Café Babalú
Þegar fólk spyr hvar kló-settið sé svara ég yfir-leitt: í fjarlægri vetrar-
braut. Fólk er alltaf svolítið
hissa þangað til að það sér
baðherbergið,“ segir Glenn
Barkin, eigandi kaffihússins
Babalú við Skólavörðustíg
22, en baðherbergi staðar-
ins er líklega eitt það vin-
sælasta í borginni meðal
ferðamanna – enda hannað
í anda Stjörnustríðsmynd-
anna.
Baðherbergið er inn-
réttað með málmplötum,
speglum og ljósum til að
minna á geimskip. Myndir
af persónum úr upphaf-
legu Star Wars-myndunum
eru límdar á veggina í raun-
stærð: Logi Geimgengill,
Han Solo, Lilja prinsessa og
vélmennin R2D2 og C3PO,
og tónlist úr myndunum
ómar um salernið.
„Ég hef alltaf verið mik-
ið Star Wars-nörd og ákvað
að nota það sem þema
þegar við gerðum neðri
hæð hússins upp árið 2013.
Smám saman höfum við
bætt við það. Á þessu ári
settum við til dæmis upp
hátalarann sem spilar stöð-
ugt tónlist úr myndunum,“
segir Glenn.
Hann segir baðher-
bergið ekki bara vera far-
ið að vekja athygli á sam-
félagsmiðlum á borð við
Instagram og Snapchat
heldur hafi verið fjallað um
það í þó nokkrum leiðarvís-
um og leiðsögubókum, oft-
ar en ekki frá Asíu – og
stundum koma ferða-
langar í pílagrímsferð á
klósettið.
„Mér finnst
skemmtilegast þegar
krakkar fara á baðher-
bergið án þess að vita
af þessu, koma svo út
með hökuna í gólfinu,“ seg-
ir Glenn sem segist njóta
þess að nota kaffihúsið sem
tóman striga til að skapa
skemmtilegt andrúmsloft.
„Næst á dagskrá er að
gera upp
klósettið á efri hæðinni.
Ég hugsa að ég geri það í
Dr. Who-þema, setji upp
spegla og ljós og svoleið-
is.“ n
kristjan@dv.is
Hótelbyggingar í bið
n Gífurleg uppbygging hefur
verið í hótelgeiranum undan-
farin ár í takt við mikla fjölgun
ferðamanna. Nú heyrist að bank-
arnir séu orðnir tregari en áður
til að lána fé til hótelbygginga og
vilji sjá hvaða áhrif gengi og verð-
lag hefur á þróun í þessum geira
áður en lengra er haldið. Því
er líklegt að ýmis hótelverkefni
verði annaðhvort slegin af eða
sett á ís á næstunni. Auk þess er
ljóst að tími samruna er runninn
upp í ferðaþjónustunni, þar sem
menn reyna að snúa bökum
saman og standa mögulegt högg
af sér.
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Nettoline fær 5 stjörnur frá
dönskum gagnrýnendum
Þitt er valið
Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum,
eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu
önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang
fyrir þá sem þess óska.
við hönnum og teiknum
Komdu með eða sendu okkur málin af
eldhúsinu, baðinu, þvottahúsinu,
anddyrinu eða svefnherberginu - og
við hönnum, teiknum og gerum þér
hagstætt tilboð í glæsilega danska inn-
réttingu í hæsta gæðaflokki og vönduð
raftæki á vægu verði.
gott skipulag
Það getur verið mikil kúnst að nýta pláss á sem bestan máta.
Með fjölbreyttum skápalausnum frá Fríform á hver hlutur sinn stað.
Gott skipulag léttir þér lífið og sparar bæði tíma og fyrirhöfn.
styrkur - ending - gæði
BaðherBergisinnrÉttingar
hÁgÆða Danskar
opið:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
Föstudaga kl. 09 til 17
Lokað á laugardögum í sumar