Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 29
stofu, þar sem er ekki bara ég. Og þetta nafn kom alltaf upp, ég er alltaf í svörtu, svart er uppáhaldslitur- inn, svart er í prentun, hönnun, öllum litum. Svo er svart bara sterkt og fallegt orð,“ segir Ólöf Erla. Þó að Ólöf Erla hafi byrjað ein, þá sér hún fyrir sér að fleiri muni vinna með henni undir SVART í framtíðinni. Og fyrstu tveir samstarfsmennirnir eru komnir: nemi í Listaháskólanum sem ætlar að starfa með henni í vetur og önnur stúlka í hlutastarfi, sem ætlar að sjá um samfélagsmiðla og vefsíðuna. Verkefnin fjölbreytt, skemmtileg og krefjandi „Ég og Jonathan Duffy hönnuð- um grafík og allt kynningarefni fyrir Gretu Salóme í Eurovision í fyrra. Fimm ár þar á undan vann ég á RÚV við að hanna og setja upp Söngvakeppnina og dreymdi alltaf um að fara út og sjá stærri uppsetningar, alla grafíkina og útsetningarnar. Ég er alltaf búin að hanna, mynda og vinna í myndvinnslunni. Og til viðbótar vann ég sjálfstætt kynningar- pakka fyrir keppendur. Ég hef líka mikinn áhuga á Eurovision,“ segir Ólöf Erla. „Árið 2015 bað ég RÚV um leyfi til að fara á keppn- ina, en ekkert gerðist. Svo sagði ég upp 2016. Og 20 dögum seinna þá stóð ég á sviðinu með Gretu Salóme og við vorum að fara til Stokkhólms. Úti var ég með passa sem gerði mér kleift að fara um allt, baksviðs sem annars staðar, og þessar tvær vikur voru bara alger draumur í dós.“ „Síðustu fimm ár hef ég verið í framleiðsluteymi forstjóra LS Retail. Þeir eru með verslanakerfi fyrir fyrirtæki úti um allan heim og ég sé um að hanna og stjórna opnunar- grafík á ráðstefnu sem þeir eru með á hverju ári erlendis. Ég hannaði opnunina í fyrra, en komst ekki með þar sem ég fór til Stokkhólms á Eurovision, en fyrir tveimur árum þá fór ég með þeim til Dúbaí. Og núna í ár þá fórum við til Madríd. Og það er búið að ráða mig á næsta ári.“ Svarta borðið – allir velkomnir Ein af hugmyndum Ólafar Erlu er svarta borðið, sem allir eru velkomnir að sitja við. „Ég er með risastórt svart borð á skrifstof- unni minni og við það ætlum við öll að sitja. Ég er búin að bjóða skapandi og skemmtilegu fólki til að sitja með mér.“ Bæði vinir og kollegar auk samstarfsmanna í verkefnum hafa komið í heim- sókn, setið við borðið, unnið að eigin verkefnum og verkefnum með Ólöfu Erlu. „Páll Óskar er til dæmis nýbúinn að sitja hérna hjá mér. Við erum að klára plötuna hans. Það er ekki gaman fyrir skapandi persónu að sitja ein inni á skrifstofu og vinna. Ég verð líka alltaf að hafa tónlist á þegar ég vinn. Svo verðum við bara fleiri sem sitjum saman við svarta borðið. Það góða við svarta borðið er að hér getur fólk setið og unnið og síðan kastað hugmyndum á milli og spurt hina álits og ráða. Ég er með fjöldann allan af hugmyndum, sumar er ég búin að vera með í maganum lengi og nú er bara að láta þær verða að veruleika. Ef þú ert með hug- myndir þá geturðu gert þær að veruleika.“ Dimma „Ég hannaði plötuna Eldraunir fyrir Dimmu sem kom út í maí síðastliðnum. Og núna er ég að setja upp stúdíóplöturnar þeirra þrjár sem eru að koma út á vínyl. Ég hannaði Vélráð sem kom út 2015 og hef gert síðustu fimm plötur sem hafa komið út, tvær stúdíóplötur og þrjár tónleikaplötur.“ armbönD Dimmustráka Ólöf Erla hannaði og gaf meðlimum Dimmu þessi ar mbönd þegar útgáfutónleikar þeirra voru í byrjun sumars. Ingi í Sign sá u m að smíða armböndin. svarta borðið Ólöf Erla við svarta borðið, sem allir skapandi og hugmyndaríkir eru velkomnir að sitja við, vinna og kasta á milli hugmyndum. Mynd MuMMi Lú
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.