Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 36
Við vorum búnir að ganga með þessa hugmynd í maganum í nokkur ár, við feðgarnir,“ segir Jakob Sigurðsson, einn eigenda Harbour View. „Við vorum alltaf með hugann við akkúrat þetta svæði og þessi hug­ mynd kom alltaf aftur og aftur upp og við vorum að ræða hana.“ Jakob segir að síðan hafi einfaldlega verið nóg að gera í öðrum verkefnum, faðir hans var með flutningaþjónustu, þeir reka fyrirtækið Fjórhjólaævintýri og eftir að faðir hans hætti með flutningaþjónustuna, þá opnuðu þeir reiðhjólaverslun og verkstæði þar sem þeir eru með umboð fyrir Örninn. „Árið 2007, þegar við byrj­ uðum í fjórhjólunum, þá taldi fólk okkur vera hálfklikkaða, en þetta gengur mjög vel. Við höfum síðan verið einstak­ lega heppnir með starfsfólk og allt í góðu standi hjá okkur og við farnir að eiga smá frítíma og þá ákváðum við loks að fara í þetta af alvöru. Við ræddum við Grindavíkurbæ og sóttum fyrst um að gerast rekstrar­ aðilar á tjaldsvæði bæjarins og byggja hyttur inni á tjaldsvæðinu, en sú hugmynd var teiknuð þegar tjaldsvæðið var teiknað.“ Vel tekið í smáhýsi „Við fengum líka hugmynd um að teikna upp lúxushýsi á tjaldsvæð­ inu og tók Grindavíkurbær vel í þá hugmynd. Við fengum hins vegar ekki tjaldsvæðið, sóttum tvisvar um og fengum neitun í bæði skiptin,“ segir Jakob. Í kjölfarið ákváðu þeir að útfæra hugmyndina á annan hátt og sóttu um leyfi til að byggja á svæðinu smáhýsi, og fengu það samþykkt. „Við fórum þá á teikni­ borðið og fengum Svövu Björk Jónsdóttur arkitekt með okkur í vinnu. Þegar sú vinna var tilbúin, ákvað bærinn að bjóða verkið út og gefa öllum kost á að byggja, þannig að við ákváðum bara að láta slag standa, buðum í verkið og fengum það og leyfi til að byggja. Þegar við vorum búnir að stúdera og komnir með já við verkefninu þá var orðið frekar mikið að gera hjá okkur þannig að við ákváðum að fá einhvern í þetta með okkur,“ segir Jakob, sem eins og áður segir er einn eigenda. Eigendur Harbour View eru Jakob, bróðir hans Kjartan og faðir þeirra, Sigurður Óli Hilmars­ son, ásamt bróður Sigurðar, Gylfa Arnari Ísleifsssyni, og Þormari Ómarssyni. Tveir síðasttöldu reka einnig veitingastaðinn Papa's pizza í Grindavík. Tilbúin „plug and play“ hús Smáhýsin eru smíðuð í Lettlandi og koma tilbúin til landsins, með innréttingum og tækjum, svokölluð „plug and play“ hús og er fyrir­ tækið Modulus milliliðurinn. „Svava teiknar húsin og hannar allt í samráði við okkur. Síðan koma að verkinu burðarþols­, raflagna­ og pípulagnateiknarar. Ég var nú sæmilega bjartsýnn á að húsin kæmu og yrði ekkert vesen að setja þau niður,“ segir Jakob. „Maður á eftir að sjá það, sagði ég alltaf.“ En húsin voru eins og var lofað var. „Þau komu að kvöldi til Grindavíkur, kraninn var mættur kl. 9.30 morguninn eftir og öll hús komin niður um fimmleytið og búið að tengja fyrsta húsið fyrir kl. 18. Heitt og kalt vatn, rafmagn, sjónvarp, rúm og sófi var komið inn kl. 22,“ segir Jakob og vel hefði náðst að leigja fyrsta hús strax út á miðnætti. Frágangi á að ljúka áður en húsin fara í útleigu. „Við erum að byggja palla og ganga frá og tyrfa og allt ætti að vera klárt í næstu viku. Við komum til með að klára alveg, setja lýsingu í öllum stígum og svo framveg­ is,“ segir Jakob. „Pall­ arnir koma í búnti með teikningu og þeim er svo raðað saman eins og IKEA­innréttingu. Allt sem er hannað og gert, er með miklum íburði, allt endingargott og í flottari kantinum. Við erum búnir að byggja Harbour View, eins og hin fyrirtækin okkar, upp með góðu fólki og það er það sem skiptir máli.“ Það þykir ekki tiltökumál í dag að reisa hús á stuttum tíma og nýlega risu 10 hús á einum degi í Grindavík. Um er að ræða smáhýsi, sem bera nafnið Harbour View og verður boðið upp á lúxusgistingu í smáhýsunum. Einstök hafnarsýn Fjórir Félagar Eigendur Harbour View, Sigurður Óli, Jakob, Þormar og Gylfi Arnar. Kjartan var erlendis þegar myndin var tekin. Mynd Teresa Bangsa Nóg að gera í lokauNdir- búNiNgi Félagarnir vinna hörðum höndum að lokafrágangi. Mynd Teresa Bangsa SmáhýSi með allt til allS Hvert hús er rétt um 28 fermetrar en í þeim er allt sem þarf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.