Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Side 36
Við vorum búnir að ganga með þessa hugmynd í maganum í nokkur ár, við
feðgarnir,“ segir Jakob Sigurðsson,
einn eigenda Harbour View. „Við
vorum alltaf með hugann við
akkúrat þetta svæði og þessi hug
mynd kom alltaf aftur og aftur upp
og við vorum að ræða hana.“
Jakob segir að síðan hafi
einfaldlega verið nóg að gera í
öðrum verkefnum, faðir hans
var með flutningaþjónustu, þeir
reka fyrirtækið Fjórhjólaævintýri
og eftir að faðir hans hætti með
flutningaþjónustuna, þá opnuðu
þeir reiðhjólaverslun og verkstæði
þar sem þeir eru með umboð fyrir
Örninn. „Árið 2007, þegar við byrj
uðum í fjórhjólunum, þá taldi fólk
okkur vera hálfklikkaða, en þetta
gengur mjög vel.
Við höfum síðan verið einstak
lega heppnir með starfsfólk og allt í
góðu standi hjá okkur og við farnir
að eiga smá frítíma og þá ákváðum
við loks að fara í þetta af alvöru.
Við ræddum við Grindavíkurbæ og
sóttum fyrst um að gerast rekstrar
aðilar á tjaldsvæði bæjarins og
byggja hyttur inni á tjaldsvæðinu,
en sú hugmynd var teiknuð þegar
tjaldsvæðið var teiknað.“
Vel tekið í smáhýsi
„Við fengum líka hugmynd um að
teikna upp lúxushýsi á tjaldsvæð
inu og tók Grindavíkurbær vel í þá
hugmynd. Við fengum hins vegar
ekki tjaldsvæðið, sóttum tvisvar um
og fengum neitun í bæði skiptin,“
segir Jakob. Í kjölfarið ákváðu þeir
að útfæra hugmyndina á annan
hátt og sóttu um leyfi til að byggja
á svæðinu smáhýsi, og fengu það
samþykkt. „Við fórum þá á teikni
borðið og fengum Svövu Björk
Jónsdóttur arkitekt með okkur í
vinnu. Þegar sú vinna var tilbúin,
ákvað bærinn að bjóða verkið út og
gefa öllum kost á að byggja, þannig
að við ákváðum bara að láta slag
standa, buðum í verkið og fengum
það og leyfi til að byggja.
Þegar við vorum búnir að
stúdera og komnir með já við
verkefninu þá var orðið frekar
mikið að gera hjá okkur þannig
að við ákváðum að fá einhvern
í þetta með okkur,“ segir Jakob,
sem eins og áður segir er einn
eigenda. Eigendur Harbour View
eru Jakob, bróðir hans Kjartan og
faðir þeirra, Sigurður Óli Hilmars
son, ásamt bróður Sigurðar, Gylfa
Arnari Ísleifsssyni, og Þormari
Ómarssyni. Tveir síðasttöldu reka
einnig veitingastaðinn Papa's pizza
í Grindavík.
Tilbúin „plug and play“ hús
Smáhýsin eru smíðuð í Lettlandi
og koma tilbúin til landsins, með
innréttingum og tækjum, svokölluð
„plug and play“ hús og er fyrir
tækið Modulus milliliðurinn.
„Svava teiknar húsin og hannar allt
í samráði við okkur. Síðan koma
að verkinu burðarþols, raflagna
og pípulagnateiknarar. Ég var nú
sæmilega bjartsýnn á að húsin
kæmu og yrði ekkert vesen að setja
þau niður,“ segir Jakob. „Maður á
eftir að sjá það, sagði ég alltaf.“
En húsin voru eins og var
lofað var. „Þau komu að kvöldi til
Grindavíkur, kraninn var mættur
kl. 9.30 morguninn eftir og öll hús
komin niður um fimmleytið og
búið að tengja fyrsta húsið fyrir
kl. 18. Heitt og kalt vatn, rafmagn,
sjónvarp, rúm og sófi var komið
inn kl. 22,“ segir Jakob og vel hefði
náðst að leigja fyrsta hús strax út á
miðnætti.
Frágangi á að ljúka áður en
húsin fara í útleigu. „Við erum að
byggja palla og ganga frá og tyrfa
og allt ætti að vera klárt í
næstu viku. Við komum
til með að klára alveg,
setja lýsingu í öllum
stígum og svo framveg
is,“ segir Jakob. „Pall
arnir koma í búnti með
teikningu og þeim er
svo raðað saman eins og
IKEAinnréttingu. Allt
sem er hannað og gert,
er með miklum íburði,
allt endingargott og í
flottari kantinum.
Við erum búnir að
byggja Harbour View,
eins og hin fyrirtækin
okkar, upp með góðu
fólki og það er það sem
skiptir máli.“
Það þykir ekki tiltökumál í dag að reisa hús á stuttum tíma og nýlega risu 10
hús á einum degi í Grindavík. Um er að ræða smáhýsi, sem bera nafnið
Harbour View og verður boðið upp á lúxusgistingu í smáhýsunum.
Einstök hafnarsýn
Fjórir Félagar Eigendur Harbour View, Sigurður Óli, Jakob, Þormar og Gylfi Arnar. Kjartan var erlendis þegar myndin var
tekin. Mynd Teresa Bangsa
Nóg að gera í lokauNdir-
búNiNgi Félagarnir vinna hörðum
höndum að lokafrágangi. Mynd Teresa Bangsa
SmáhýSi með allt til allS Hvert hús er rétt um 28 fermetrar en í þeim er allt sem þarf.