Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 38
„Ég er þakklát Vigdísi Finnbogadóttur“ Greta Salóme eltir drauma sína og kemur hlutunum í verk Greta Salóme, söngkona, fiðluleikari, tónskáld og textahöfundur, er með mörg járn í eldinum þessa dagana eins og vanalega. Um verslunarmannahelgina kom hún fram víða um land: Akureyri, Neskaupstað og Flúðum og fyrr í vikunni spilaði hún fyrir Guðna Th. forseta. Næst á dagskrá tekur við kynning í Gung Ho-hlaupinu á morgun, 12. ágúst, tveir túrar með stóra sýningu á skemmtiferðaskipum, hljóðfæraleik- ur með Sinfóníuhljómsveit Íslands og hinir ýmsu tónleikar. Auk þess sér Greta Salóme um æfingar og undirbúning fyrir Halloween Horror Show Rokktónleikasýningu, sem haldin verður í Háskólabíó 28. október næstkomandi og hún er jafnframt einn söngvara sýningarinnar. Greta Salóme svarar spurningum vikunnar. Fædd oG uppalin? Mos- fellsbæ. Mér FinnSt GaMan að … vera til. Enginn dagur eins og alltaf einhverjar áskoranir. SíðaSta kvöldMáltíðin: Nóa Síríus súkkulaði í hvaða formi sem er. Brennd eða GraFin? Brennd. Hvað Gerirðu Milli kl. 17–19? Aldrei það sama! Fer eftir í hvaða landi ég er, haha. SaMFélaGSMiðlar eða daGBlöðin? Samfélagsmiðlar. Hvað ertu Með í vinStri vaSanuM? Laura Mercier gloss. Bjór eða Hvítvín? Hvítvín. Hver Stjórnar FjarStýr- inGunni á þínu HeiMili? Ég man bara ekki hvenær var kveikt á sjónvarpinu síðast heima hjá mér þannig að fjarstýringin er yfirleitt frekar einmana greyið. HverniG var FyrSti koSS- inn? Efni í góða minningu. Hver væri titill æviSöGu þinnar? Í kappi við tímann. Hver er drauMaBíllinn? Ég er á draumabílnum, Toyota CHR! Í mínum lit … svörtum. FyrSta StarFið? Fékk fyrst borgað fyrir að spila þegar ég var 12 ára gömul og hef nú eitthvað getað hækkað verðskrána síðan þá. FalleGaSti Staður á landinu? Laugarvatn! Hvaða oFurkraFt værir þú til í að vera Með? Ef ég kæmi fleiri klukkutímum í sólar- hringinn væri ég í toppmálum. GiSt í FanGakleFa? Nei, en alltaf langað að prófa. Sturta eða Bað? Sturta … hver hefur tíma fyrir bað? HúðFlúr eða ekki? Ekki ennþá, en myndi telja yfirgnæf- andi líkur á einu fljótlega. Hvaða leynda HæFileika HeFur þú? Ég er lygilega góð Shakira-eftirherma þótt ég segi sjálf frá. Hvað Fékk þiG til að táraSt SíðaSt? Það vant- aði Pepsi Max þegar ég kom heim eftir að hafa spilað um allt land um verslunar- mannahelgina. Ekki laust við að ég hafi tárast smá. FyrirMynd í líFinu? Svo margir! Fjölskyldan mín er mín helsta fyrirmynd. Hvaða SöGu SeGja Foreldrar þínir endur- tekið aF þér? Ég á víst að hafa komið grátandi heim eftir fyrsta skóladaginn og sagt: „Ég á minnstu skóna“. Ég á ennþá minnstu skóna en hef lært að lifa með því. ertu Með einHverja FóB- íu? Trúðar! Get þá ekki! Hver er BeSta ákvörðun SeM þú HeFur tekið? Að fylgja minni sannfæringu og standa og falla með ákvörðunum mínum. FurðuleGaSti Matur SeM þú HeFur Borðað? Snákur. Áferðin fór með mig. Hvað er neyðarleGaSta atvik SeM þú HeFur lent í? Þau eru ansi mörg en ég var að túra á skemmtiferðaskipi um daginn og fór út að hlaupa í einni höfn sem ég hélt að væri í Skotlandi. Eftir að hafa hlaupið í hálftíma tók ég af mér heyrnartólin og fannst allt eitthvað skrýtið þangað til ég fattaði að ég var í Noregi en ekki Skotlandi. Það er kannski búið að vera aðeins of mikið um að vera. klukkan Hvað Ferðu á Fætur? Mjög misjafnt. Stundum er ég að vinna langt fram á nætur þannig að það fer eftir því. leiGirðu eða áttu? Ég hef aldrei leigt og keypti mína fyrstu íbúð 2011. Hvaða Bók er á nátt- Borðinu? Ask Gary Vee eftir einn uppáhaldsfrumkvöðulinn minn, Gary Vaynerchuck. Með HverjuM, líFS eða liðnuM, Myndir þú vilja verja einni kvöldStund? Ég hugsa að ég myndi vilja eyða kvöldstund með Walt Disney og fá kennslustund í að elta draumana sína. Hver er FyrSta endur- MinninG þín? Fyrsta minn- ingin mín er frá því þegar pabbi kom heim með fyrstu fiðluna mína. líFSMottó? „Get shit done“. uppáHaldSútvarpSMað- ur/Stöð? Ég er algjör útvarps- flakkari og staldra aldrei lengi við á einni stöð þannig að það er ómögu- legt að gera upp á milli. uppáHaldSMatur/drykk- ur? Pepsi Max eða Pax eins og það er kallað hjá mér. Ég drekk nánast þyngd mína af þessu á dag. uppáHaldStónliStar- Maður/HljóMSveit ? Svo margir. Þessa dagana er það Rag 'n' Bone Man, Max Richter og fleiri. uppáHaldSkvikMynd/ SjónvarpSþættir? Ég held að Game of Thrones hljóti að vera mjög ofarlega á listanum. uppáHaldSBók? Bókin Rich dad poor dad breytti mínum hugsunarhætti að mörgu leyti. Ég les helst bækur um fjárfestingar eða markaðsmál. uppáHaldSStjórnMála- Maður? Í sögulegu samhengi á Íslandi held ég að það sé Vigdís Finnbogadóttir. Hún breytti sögunni og greiddi leiðina fyrir konur og fyrir það er ég þakklát. verSlunarMannaHelGin 2017 G reta Salóme spilaði á nokkrum stöðum um verslunarman nahelgina og það er nóg af verkefnum framundan. Mynd Lin da ÓLafsdÓttir nóG aF verkeFnuM Það eru næg verkefni framundan hjá Gretu Salóme, bæði hér heima og erlendis. HryllinGSSýninG Það er einvala lið s öngvara og listamanna sem stendur að Rokktónleikasýningu í lok októb er í Háskólabíó.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.