Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Blaðsíða 47
Brot af því besta 3KYNNINGARBLAÐHelgarblað 11. ágúst 2017 Félagarnir Davíð Karl Wiium og Davíð Vil-mundarson eru brautryðjendur í umsjón og umsýslu eigna í skamm- tímaleigu. Árið 2014 stofn- uðu þeir þjónustufyrirtækið Dekura sem sérhæfir sig í viðhaldi á húsnæði sem leigt er út í gegnum Airbnb og aðra sambærilega vefi, til þess að létta undir með leigusölum. Einnig sér- hæfa þeir sig í umsjón gistiheim- ila af öllum stærðum og gerðum. Það er ótal margt sem þarf að huga að þegar kemur að því að gera leigjandann ánægðan. Fyrir utan það að íbúðin þarf að vera í topp- standi og tandurhrein og allt aðgengi með besta móti þegar nýr leigjandi bankar upp á, þá þarf leigusali að vera til taks til að hitta fólk á öllum tímum sólarhrings og vera reiðubúinn til að leysa úr hinum ýmsu vandamálum sem upp geta komið. Þess vegna sér Dekura einnig um öll samskipti við gesti. Inni- falið í heildarumsjón Dekura er einnig allt lín, handklæði og annað sem þarf að vera til staðar fyrir gesti meðan á dvöl stendur. Rekstur af þessu tagi getur verið ansi tímafrekur og krefst töluverðra fórna og umtalsverðrar skipulagningar af hálfu leigusala. Samhliða fullri vinnu og skipulagningu getur þetta verið ansi þungur baggi fyrir leigusala að takast á við. Með hjálp Dekura getur leigusali tekið á móti töluvert fleiri viðskiptavinum og fengið betri umsagnir, sem eykur samstundis verðgildi íbúðar- innar og leigutekjurnar sem af henni koma. Dekura hefur síðan árið 2014 aðstoðað fjölda fólks við allt sem viðkemur rekstri á eignum í skammtímaleigu. Allt frá þrif- um upp í alhliða umsjón eign- anna. Hjá fyrirtækinu starfa í dag 12 manns sem sjá um hin ýmsu verkefni og státar Dekura sig af einu færasta þrifnaðarteymi í bransanum. Eftir fjögur ár í þessum rekstri vita starfsmenn Dekura hvað til þarf til að hafa eignir til- búnar fyrir ferðamenn. Dekura er í nánu sam- starfi við teymi sérfræðinga í leyfismálum og aðstoðar við- skiptavini sína við að fá þau leyfi sem þarf, viðskiptavininum að kostnaðarlausu, hvort sem um er að ræða 90 daga leyfi eða fullgilt gistileyfi. Vegna aukinna umsvifa hefur bæst í teymið, nýr fram- kvæmdastjóri hefur tekið til starfa auk þess sem Dekura hefur fært sig um set nið- ur á Skólavörðustíg í miðbæ Reykjavíkur. Þar starfrækir fyrirtækið skrifstofu og fullbúið þvottahús. Til þess að panta þjónustu frá Dekura má hafa samband í gegnum vefsíðu fyrirtækisins https://dekura.is eða senda póst á netfangið dekura@ dekura.is. Einstök þjónusta í umsjón leiguhúsnæðis Mynd Sigtryggur Ari Mynd Sigtryggur Ari Hver útför er einstök ÚtFARARStoFA SVAFARS og HERMAnnS, SíðuMÚlA 28 Útfararstofa Svafars og Hermanns, sem einnig gengur undir nafninu Kvedja.is, byggir á 20 ára reynslu og mikilli þekkingu á útfararþjónustu. Stofan veitir þjónustu sem er í senn heildstæð og mjög persónu- leg. „Þetta er lítil útfararstofa og við komum að ferlinu frá upphafi til enda, erum með fólkinu allan tímann því þessi persónulegu samskipti eru mjög mikilvæg,“ segir Hermann Jónasson, annar eigenda stofunnar, en hinn eigandinn er Svafar Magnús- son. Báðir hafa starfað afar lengi í faginu. Þriðji starfsmað- urinn er Ingibjörg Halldórs- dóttir. Á heimasíðu stofunnar, kvedja.is, er að finna mjög gagnlegar upplýsingar, meðal annars gátlista fyrir útför sem bæði er hægt að skoða á síð- unni og prenta út. Útfararstofa Svafars og Hermanns getur séð um alla þætti útfararinnar. „Það er svo misjafnt hvernig fólk er statt gagnvart þessu. Sumir eru búnir að ákveða alla hluti og hafa kannski gert þetta áður. En suma þarf að leiða vel áfram og þá upplýs- um við fólkið um allt sem er í boði og mögulegt er,“ segir Hermann sem leggur áherslu á að laga þjónustuna að þörf- um hvers og eins. „Það hefur færst í vöxt að fólk sé ekki í kirkjunni og ekki eru lengur allir með presta. Það ríkir sá misskilningur að allt sé niður njörvað varðandi hvað má og hvað má ekki við útför. En í rauninni ræður hver hvað hann gerir og hvernig hann hefur þetta,“ segir Her- mann sem leggur áherslu á að þjóna öllum trúarhópum og líka hinum trúlausu. „Við leggjum áherslu á að hver útför sé einstök. Hún er ekki eins og hver önnur. Við mætum fólki á þeim stað þar sem það er og uppfyllum óskir þess. Við förum heim til fólks ef það vill það en það getur líka komið til okkar því við erum með góða aðstöðu að Síðumúla 28,“ segir Hermann en stofan býður upp á alla þjónustu sem til þarf og kemur meðal annars á sambandi við tónlistarfólk þegar þess gerist þörf. „Fyrir suma sjáum við um allt, tölum við prestinn og aðra sem koma að útförinni, en síðan eru aðrir svo sjálfstæðir að þeir vilja gera þetta sjálfir og þá er það bara í góðu lagi. Þetta er nokkuð misjafnt en við þjónum öllum og leggjum alltaf mikið upp úr persónu- legri nálgun,“ segir Hermann að lokum. Nánari upplýsingar eru á heimasíðunni kvedja.is. Símanúmer stofunnar er 571- 8222.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.