Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Síða 16
16 sport Helgarblað 11. ágúst 2017
E
inn stærsti knattspyrnu
leikurinn á hverju sumri
fer fram á laugardag
þegar ÍBV og FH eig
ast við í bikar úrslitum karla en
leikurinn fer fram á Laugar
dalsvelli klukkan 16.00. Mik
il eftirvænting er fyrir leiknum
en FH er sigurstranglegri að
ilinn þegar gengið verður út
á Laugardalsvöll. Saga Eyja
manna í bikarnum er þó stærri
en FHinga en FH, sem hefur
verið besta lið Íslands frá ár
inu 2004, hefur aðeins unnið
bikarinn í tvígang, í Kaplakrika
telst það slakur árangur og vilja
menn ná í bikarinn í ár. ÍBV fékk
síðast bikar í karlaknattspyrnu
árið 1998 þegar liðið vann bæði
deild og bikar, 19 ára eyði
merkurgöngu gæti því lokið á
laugardag.
FH-ingar vilja fá bikarinn í
Krikann
FH varð síðast bikarmeistari árið
2010 en síðan þá hefur liðið ekki
náð merkilegum árangri í bik
arnum, liðið komst þó í undan
úrslit í fyrra en ÍBV hafði þar
betur áður en Eyjamenn töp
uðu síðan gegn Val í úrslitum.
„Það er hungur í Krikanum, við
vorum auðvitað svekktir í fyrra
að detta út í undanúrslitum og
fá þar með ekki tækifæri til að
taka þátt í þessum leik sem er
sá stærsti og skemmtilegasti á
hverju ári,“ sagði Þórarinn Ingi
Valdimarsson, kantmaður FH,
um leikinn en þessi öflugi leik
maður ólst upp í Vestmanna
eyjum og er því að mæta upp
eldisfélagi sínu.
Býst við að fá að heyra það
Eins og fyrr segir ólst Þórarinn
upp hjá ÍBV og flestir vinir hans
styðja liðið, hann býst við að
fá einhverjar pillur fyrir leik.
„Bikar leikir eru alltaf mjög erf
iðir, við höfum ekki náð flugi í
bikarnum síðustu ár en núna
erum við komnir í úrslitaleik
inn og ætlum að reyna að taka
hann með trompi, okkur finnst
vera kominn tími á okkur að
klára þennan bikar. Þetta leggst
ótrúlega vel í mig, það er gaman
að fara inn í svona leik. Ég vona
að það verði vel mætt á völlinn,
við duttum út gegn ÍBV í undan
úrslitum í fyrra, en núna viljum
við standa í lappirnar og klára
verkefnið. Það er alltaf gaman
fyrir mig að mæta ÍBV, þarna
eru margir sem ég þekki og það
verður gaman að mæta þeim á
Laugardalsvelli. Ég er ekki byrj
aður að fá neinar svakalegur
pillur frá vinunum en ætli það
fari ekki að færast í aukana, þeir
geta látið mig heyra það eins og
þeir vilja en þeir ná ekki inn í
hausinn á mér.“
Pressan í bikarnum
Það er þekkt stærð í fótboltanum
að bikarleikir eru erfiðir, Eyja
menn hafa til að mynda ekki náð
flugi í deildinni en verið öflugir í
bikarnum. FHingar eru meðvit
aðir um þetta og ætla ekki að láta
það trufla sig að liðið er líklegra
til sigurs og pressan er á þeim.
„Það er alltaf pressa á þér þegar
þú ert í FH að vinna leikina, í
bikarnum er þetta bara öðruvísi
og leikirnir þar eru alltaf erfiðir.
Það er öðruvísi stemning í bik
arnum en í deildinni. Lið koma
öðruvísi inn í leikina, þú ert með
bakið upp við vegg fyrir leik og
ef þú tapar þá er partíið ein
faldlega búið. Leikmenn vita af
þessu fyrir leik og því verður oft
öðruvísi stemning, það er mikil
barátta og ákefð í svona leikj
um.“
Álag á FH-ingum
FHingar eru að keppa á þremur
stöðvum þessa dagana, liðið
vann Val í deildinni í vikunni og
kom sér þá aftur í baráttu efstu
liða um sigur í Pepsideildinni,
þá eru FHingar einnig í um
spili um laust sæti í riðlakeppni
Evrópudeildarinnar þar sem
liðið mætir Braga frá Portúgal.
Síðan er bikar úrslitaleikurinn
fram undan. „Það er búið að
vera mikið álag á okkur undan
farið, þetta er það sem FH hefur
unnið að í mörg ár, og gert, að
keppa á öllum stöðvum og berj
ast þar. Við viljum ná að komast
lengra í Evrópu og það væri al
gjör draumur að komast áfram
gegn Braga. Núna er hugur
okkar bundinn við bikarleikinn
og sigur þar gæti vonandi kveikt
mikið líf í okkur fyrir lokasprett
inn. Við erum með fínan hóp til
að dreifa álaginu en það vilja allir
spila bikarúrslitaleikinn, maður
vonast eftir því að vera með frá
byrjun en það er undir Heimi
Guðjónssyni (þjálfara FH) komið
hvort það verði.“
Komnir í baráttuna
FH vann topplið Vals á þriðjudag í
Pepsideildinni og getur nú leyft sér
að dreyma um að vinna deildina
þriðja árið í röð, sigurinn kemur
FH sex stigum á eftir Val og liðin
eiga átta leiki eftir. „Þetta var mjög
flottur leikur gegn Val, ef við ætluð
um að eiga einhverja von í deildinni
þá urðum við að vinnan þennan
leik. Við erum góðir undir pressu
og leikirnir sem eru eftir í deildinni
eru þannig leikir að við megum ekki
misstíga okkur, það kemur okkur
inn í þennan pakka sem er á toppn
um. Við vitum að Valur er með frá
bært lið og það verður erfitt að ná
þeim en við munum gera allt sem í
okkar valdi stendur til að veita þeim
samkeppni þangað til tímabilið er á
enda.“ n
Misjöfn leið í úrslitin Þetta er í níunda sinn sem liðin eigast
við í bikarkeppninni, en FH hefur hingað til haft yfirhöndina
í þessum viðureignum. FH hefur unnið fimm viðureignir, en
ÍBV þrjár. Árið 1983 þurftu liðin að mætast tvívegis, en fyrri
leikur þeirra hafði þá endað með 2-2 jafntefli og því var leikinn
annar leikur. Þess má þó geta að ÍBV sló FH út úr keppninni í
fyrra á leið sinni í úrslitaleikinn.
Á leið sinni í úrslitin hefur ÍBV slegið út þessi lið:
32 liða úrslit - 4-1 sigur á KH.
16 liða úrslit - 5-0 sigur á Fjölni.
8 liða úrslit - 2-1 sigur á Víkingi Reykjavík.
Undanúrslit - 2-1 sigur á Stjörnunni.
Á leið sinni í úrslitin hefur FH slegið út þessi lið:
32 liða úrslit - 6-1 sigur á Sindra.
16 liða úrslit - 2-1 sigur á Selfossi.
8 liða úrslit - 1-0 sigur á Fylki.
Undanúrslit - 1-0 sigur á Leikni Reykjavík.
Bikarmeistarar frá upphafi í karlaflokki
KR (14) 1960, 1961, 1962, 1963, 1964, 1966, 1967, 1994, 1995,
1999, 2008, 2011, 2012, 2014
Valur (11) 1965, 1974, 1976, 1977, 1988, 1990, 1991, 1992, 2005,
2015, 2016
ÍA (9) 1978, 1982, 1983, 1984, 1986, 1993, 1996, 2000, 2003
Fram (8) 1970, 1973, 1979, 1980, 1985, 1987, 1989, 2013
ÍBV (4) 1968, 1972, 1981, 1998
Keflavík (4) 1975, 1997, 2004, 2006
FH (2) 2007, 2010
Fylkir (2) 2001, 2002
Breiðablik (1) 2009
ÍBA (1) 1969
Víkingur R. (1) 1971
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Pressan á FH-ingum í bikar-
úrslitum á laugardag
n Eyjamenn vonast eftir óvæntum úrslitum n FH líklegra til sigurs
Í hita leiksins Þórarinn Ingi ólst upp hjá ÍBV en mætir nú sínum gömlu félögum í
bikarúrslitum. Mynd EPA
Mynd ToMASz KolodziEJSKi