Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Síða 48
4 Brot af því besta KYNNINGARBLAÐ Helgarblað 11. ágúst 2017 Bólstrun er enn það sem allt snýst um hjá okkur. Bólstraðir hlutir eru alls staðar í umhverfinu, til dæmis á líkamsræktarstöðvum, hót- elum og veitingahúsum, og að sjálfsögðu líka á heimilum. Við vinnum mikið fyrir veitinga- hús og hótel og höfum fundið sterklega fyrir uppganginum sem orðið hefur í ferðaþjón- ustunni.“ Þetta segir Hafsteinn Gunnarsson, eigandi Bólstrar- ans, sem er í senn gamalt og síungt fyrirtæki. Faðir Haf- steins, Gunnar V. Kristmanns- son, stofnaði Bólstrarann árið 1944 og var fyrirtækið til húsa að Hverfisgötu 76 allt til ársins 2000, en þá var flutt í stærra húsnæði að Langholtsvegi 82, þar sem það er til húsa núna. Hafsteinn tók hins vegar við rekstrinum upp úr 1980. Auk bólstrunar flytur Bólstrarinn inn og selur efni. „Við flytjum inn áklæði, gluggatjöld og veggfóður og stundum tengist sá innflutn- ingur þeim stóru verkefnum sem við erum í. Arkitektar koma gjarnan í verslunina og velja fyrir sína viðskiptavini. Gluggatjöldin eru sérpöntuð í gegnum okkur, þau eru svo gríðarlega fjölbreytt að það er ekki hægt að halda glugga- tjaldalager. Afgreiðslutíminn er hins vegar mjög stuttur,“ segir Hafsteinn en hann legg- ur áherslu á að flytja eingöngu inn mjög vandaðar vörur: „Við erum með umboð fyrir mjög flott fyrirtæki í Evrópu, t.d. Romo Fabrics sem er orðið stærsta og flottasta fyrirtækið í svona fínum og dýrum textíl í heiminum. Þá má líka nefna Warwick Fabrics sem framleiðir geysi- lega fínt efni. Þetta fer oft saman, þ.e. húsgögn, áklæði, gluggatjöld og veggfóður eru gjarnan valin saman. Hótel þurfa síðan yfirleitt að láta veggfóðra hjá sér því þau fá ekki stjörnur án veggfóðurs.“ Þrátt fyrir umfangsmikil verk- efni fyrir fyrirtæki er rúmlega helmingur viðskipta Bólstr- arans enn við einstaklinga og heimili og er þetta svipuð samsetning starfseminnar og verið hefur frá upphafi hjá þessu gróna fyrirtæki. „Grunnurinn er einstak- lingar og við höfum alltaf lagt mikla áherslu á þá. Sixtís-hús- gögn hafa líka verið mjög vin- sæl síðan um aldamótin,“ segir Hafsteinn en vinsælt er að láta bólstra húsgögn hönnuð á árunum frá 1955–1970, sem eru í hátísku í dag. Það er gaman og gagnlegt fyrir þá sem vilja fegra heimili sín að koma í verslun Bólstr- arans að Langholtsvegi 82 en hún er opin frá kl. 9 til 18 mánudaga til föstudaga. Sím- inn er 568-4545 og netfang er bolstrarinn@islandia.is. Nánari upplýsingar eru síðan á heimasíðunni bolstrarinn.is. Harðfiskurinn má segja að sé hálfgert þjóðar-tákn Íslendinga. Hann er sannkallað ofurfæði því hann er ekki bara meinhollur heldur einnig bragðgóður og stórskemmtilegt að borða hann. Stjörnufiskur er gamal- gróið fyrirtæki og stofnað árið 1988. Ekki alls fyrir löngu, eða í janúar 2016, tóku félagarnir Guðni Már Þorsteinsson og Þorlákur Grímur Halldórsson við rekstri þess. Stjörnufiskur sérhæfir sig annars vegar í framleiðslu á harðfiski og svo bitafiski, sem er harð- fiskur verkaður í handhæg- um bitum. „Harðfiskurinn er frábær í millimál á meðan bitafiskurinn kemur algerlega í staðinn fyrir snakk og annars konar nasl,“ segir Guðni. Báðar vörurnar eru gerðar úr íslenskum þorski sem keypt- ur er af markaði og beint af bátnum sem Þorlákur gerir út á Grindavík. Framleiðslan er sömuleiðis öll staðsett þar. Færeyingar elska harðfisk „Við seljum harðfiskinn okkar í hinar ýmsu matvörubúðir svo sem Bónus og ICELAND matvörukeðjuna. Svo erum við að flytja út vörur á fær- eyskan markað. Færeyingar eru vitlausir í þurrkaðan fisk og kaupa töluvert af okkur,“ segir Guðni. Stjörnufiskur hyggst auka framleiðslu sína og leggja net sín út á fleiri erlenda markaði í framtíðinni, enda með frábæra vöru í höndunum. „Eftir að við fór- um alfarið í að verka þorskinn jókst salan töluvert hjá okkur og það er mín trú að þorsk- urinn henti einfaldlega best í harðfiskinn,“ segir Guðni. Sjá nánar á Facebook-síðu Stjörnufisks. Hægt er að hafa sam- band við Stjörnufisk í síma 8976302 eða með því að senda tölvupóst í stjornufisk- ur@simnet.is. Stjörnufiskur: Þorskurinn er langbestur í harðfiskinn Áklæði og gluggatjöld fyrir heimili og fyrirtæki síðan 1944 BóLStRARINN, LANGHoLtSVEGI 82

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.