Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Qupperneq 52
28 sakamál Helgarblað 11. ágúst 2017 S unnudagurinn 10. apríl, 2016, hafði verið með hefð- bundnu sniði hjá Elaine Danaher. Elaine var þá 45 ára, fráskilin og átti tvo syni; Ryan, 14 ára, og Jacob, 9 ára. Elaine hafði skilið við föður drengjanna, Michael, fjórum árum fyrr, vann í John Lewis- versluninni í Petersborough í Bretlandi, hafði fundið nýjan lífs- förunaut og var allsendis sátt við lífið og tilveruna. Eftir að hafa vaskað upp eftir kvöldmatinn þennan ágæta dag settist Elaine við tölvuna og skoð- aði möguleika varðandi sumarfrí- ið sem nálgaðist óðfluga. Þá var dyrabjöllunni hringt; fyrir utan stóðu tveir lögreglu- þjónar og manneskja frá fjöl- skyldudeild lögreglunnar. Þytur í laufi Í fyrstu óttaðist Elaine að erindið varðaði yngri bróður hennar, sem enn var í hernum. „Guð minn góð- ur, hvað hefur komið fyrir hann,“ hugsaði hún en þær áhyggjur voru ástæðulausar. „Við erum hér til að tala við þig um Michael. Við höfum hand- tekið hann, grunaðan um morð,“ sagði annar lögregluþjónninn. Næstu fjóra klukkutíma svar- aði Elaine öllum þeim spurning- um sem var beint til hennar. Síðan vildu þeir ræða við Ryan og skoða farsímann hans og var það auð- sótt mál. Þegar Ryan var spurður hvort hann hefði séð eintak af bókinni The Wind in the Willows, Þytur í laufi, þegar hann var hjá föður sínum síðast fölnaði hann upp og sagði: „Ég veit um hvað málið snýst.“ Blóð og óreiða Síðdegis, þremur dögum fyrr, hafði líkið af Adrian nokkrum Greenwood fundist. Greenwood var ágætlega metinn sagnfræðing- ur, rithöfundur og listmunasali í Oxford, en þegar lögregla kom að heimili hans mætti henni óhugn- anleg sjón. Veggirnir í forsalnum voru blóðugir, myndir á veggjum héngu skakkar og öll ummerki báru þess vitni að átök hefðu átt sér stað. Líkið af Greenwood lá innan við útidyrnar, alsett hnífs- stungum. Rannsóknarlögreglumaðurinn Stuart Blaik, sem var fyrstur á staðinn, sagði að svo hefði virst sem ofsafengin líkamsárás hefði átt sér stað. Hver var ástæða morðsins var hins vegar spurn- ingin sem svara þurfti. Veski, farsími og ein bók Greenwood, sem var virtur innan fræðasamfélagsins í Oxford, var umsvifamikill í sölu fágætra bóka á netinu og hafði komist í frétt- ir þegar fyrstu útgáfu eintaki af Harry Potter-bók hafði verið stolið frá honum árið 2010. Þá hafði einmitt verið haft eftir honum að afar erfitt væri að koma þýfi af jafn sjaldgæfu tagi í verð. Í ágúst árið 2015 hafði Greenwood bætt einni bók á sölu- lista sinn á eBay; The Wind in the Willows eftir Kenneth Grahame, enn í upprunalegri hlífðarkápu. Bókin var metin á 50.000 sterl- ingspund. Við rannsókn á heimili Greenwoods komst lögreglan að því að þrjá hluti, að minnsta kosti, var ekki að finna; veski og farsíma Greenwoods og hið dýrmæta ein- tak af The Wind in the Willows. Með notkun nútímatækni hafði lögreglan hendur í hári Michaels. Áverkar og lygar Þáttur Ryans, sonar Michaels, í þessu máli var ekki flókinn. Að kvöldi morðdagsins hafði faðir hans hringt í hann og sagt hon- um uppdiktaða sögu þess efnis að tveir menn hefðu ráðist á hann og hann væri allur blár og marinn. Talið er að Michael hafi með því viljað forðast spurningar sona sinna þar að lútandi þegar þeir hittust næst. Þegar Ryan og Jacob hittu föður sinn nokkrum dögum síðar sýndi hann þeim stoltur eintakið af The Wind in the Willows og sagði að hann væri rétt óbúinn að setja það á sölu á eBay. Það var þess vegna sem Ryan var fljótur að tengja þegar lögreglan minntist á bókina fágætu. Verkefnalisti Michael hafði spilað rassinn úr buxunum í kjölfar skilnaðar hans og Elaine árið 2012. Hann hafði hætt í vinnunni, flutt inn í litla íbúð og fitnað óhóflega. Í árslok 2015 fjárfesti hann 50.000 sterlings- pund í svikamyllu sem varðaði líf- eyri og tapaði öllu saman. Hvað sem þessu öllu leið stóð hann þó skil á meðlagsgreiðslum til Elaine og sinnti sonum sínum óaðfinnanlega. Listi sem kom upp úr kafinu við rannsókn lögreglunnar færði henni þó heim sanninn um að skóinn kreppti víða í tilveru Michaels. Á listanum var að finna nöfn ýmiss frægs fólks sem hann hugðist beina spjótum sínum að með fjárhagslegan ávinning að leiðarljósi. Áform Michaels Lögreglan sá nú morðið á Greenwood í nýju ljósi, fannst enda sem listi Michaels benti ekki til þess að þar færi mað- ur sem sem léti skeika að sköpuðu heldur kaldrifj- aður, skipulagður morðingi sem hikaði ekki við að beita ofbeldi til að ná sínu fram. Á listanum var að finna nöfn á borð við Kate Moss, Jeffrey Archer og Louise Redknapp og hugmyndir Michaels um þá fjármuni sem hann hefði hugsan- lega upp úr krafsinu. Einnig hafði Michael skráð þær að- ferðir sem hann hugðist beita, meðal annars þeirri að fremja mannrán í dulargervi sendils, vopnaður stuðbyssu. Fjölskylda í sárum Morð, eðli málsins sam- kvæmt, á það til að skilja til- veru ættingja og vina fórnar- lambsins eftir sem auðn, en fjölskylda morðingjans þarf einnig að horfast í augu við og reyna að skilja gjörðir ástvin- ar síns. Í heimildamynd sem gerð var um morðið á Adrian Greenwood kom berlega fram að endaskipti höfðu orðið á lífi Elaine og sona hennar. „Þegar þú giftist einhverjum þá held- ur þú að þú raunverulega þekk- ir viðkomandi,“ segir Elaine í heimildamyndinni. „Mike fór til Oxford með þá hugmynd að stela þessari bók og selja hana. Hann var reiðubúinn til að verða einhverjum að bana fyrir fé,“ sagði Elaine. Hún sagð- ist aldrei, öll þau 15 ár sem þau bjuggu saman, hafa séð eitthvað sem gaf til kynna hvað síðar yrði. Venjuleg fjölskylda, ekki illmenni „Fólk gerir ráð fyrir að við, sem fjölskylda ódæðismanns, séum öll illmenni. Það er ekki þannig,“ sagði Elaine og bætti við að þau væru venjuleg fjölskylda í hörmulegum aðstæðum. Enn fremur sagði Elaine að framfærslugreiðslur hefðu hætt að berast eftir að Michael var dæmdur (fékk lífstíðardóm í október 2016) og því hafi fjár- hagslegar aðstæður breyst til hins verra og hún þurfi að spara í hvívetna. Í kaldhæðni segir Elaine: „Það væsir ekki um Mike. Hann er með þak yfir höfuðið. Hann fær þrjár máltíðir á dag og þarf ekki að hafa áhyggjur af útsvari lengur.“ Skammaðist sín Elaine er reið Michael fyrir að hafa ekki játað sig sekan og þannig komist hjá réttarhöldum – þannig hefði hann firrt syni sína miklu hugarangri. Í byrjun fannst Elaine hún bera ábyrgð á gjörðum Michaels. Hún baðst í vinnunni sí- fellt afsökunar á öllu saman og allir spurðu hana af hverju hún væri að biðjast afsökunar. „Ég var gift honum. Ég eignaðist börn með honum. Ég skammaðist mín,“ sagði hún í fyrrnefndri heim- ildamynd. Þegar málalyktir lágu fyrir, síð- asta dag réttarhaldanna, gaf Elaine sig á tal við móður Greenwoods: „Ég sagði ekki fyrirgefðu, þótt mig langaði til. Ég sagði við hana: „Það gleð- ur mig að þú fékkst réttlæti fyrir son þinn“. Frú Greenwood sagði: „Lofaðu mér að hugsa vel um drengina þína“. Ég stóð þarna og grét.“ n „Ég var gift honum. Ég eignaðist börn með honum. Ég skamm- aðist mín. n Fágætt bókareintak freistaði Michaels n Hugði á fjölda aðgerða Þytur í laufi Michael Danaher Í kjölfar skilnaðar fór nánas t allt í vaskinn hjá honum. Adrian Greenwood Var vel þekktur innan fræðasviðsins í Oxford.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.