Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2017, Síða 42
Migos Mætir í
LaugardaLshöLLina
Rappa sig upp vinsældalistana
Migos, ein heitasta rapphljómsveit heims, mætir í Laugardalshöll-
ina í næstu viku, þann 16. ágúst
og skemmtir Íslendingum. XXX
Rottweiler, Cyber og Joey Christ sjá
um að hita og DJ Sura mun þeyta
skífum.
Hljómsveitin, sem hét upp-
haflega Polo Club, var stofnuð í
Georgíu-fylki í Bandaríkjunum
árið 2009 af frændunum Quavo,
Takeoff og Offset. Migos gaf út
fyrsta „mix-teipið“, Juug Season,
árið 2011. „Mix-teipið“ Y.R.N.
(Yung Rich Niggas) kom út árið
2013 og lagið Versace sló rækilega
í gegn og birtist á fjölda topplista,
þar á meðal hjá Rolling Stone.
Rapparinn Drake gaf út „remix“ af
laginu og það vakti athygli þegar
kanadíska poppstjarnan Justin
Bieber birti stutt myndband af sér
á samfélagsmiðlum þar sem hann
rappar með laginu.
Framinn var vís, aðdáendur og
gagnrýnendur voru heillaðir og
Migos vann með listamönnum
á borð við Post Malone (sem er
nýlega búinn að halda tónleika í
Hörpu), Katy Perry, Drake og 2
Chainz.
Í október 2016 fór lag Migos
og Lil Uzi Vert, Bad and Boujee, á
toppinn á vinsældalistum í Banda-
ríkjunum og víðar, og fékk mikla
útbreiðslu á samfélagsmiðlum,
meðal annars með „meme“. Lagið
var tilnefnt til Billboard-tónlist-
arverðlaunanna í maí síðastliðn-
um, sem besta rapplagið og besta
rappsamstarfið. Lagið er fyrsta lag
plötunnar Culture, sem kom út
í janúar og hefur hún fallið vel í
kramið hjá rappaðdáendum.
Erpur
spEnntur
fyrir tón-
LEikunuM
Erpur Eyvindarson
Meðlimur XXX Rottweiler.
Mynd Sigtryggur Ari
Erpur Eyvindarson, meðlimur XXX Rottweiler, er einn af þeim sem munu kynda upp húsið fyrir bandarísku nýstirn-
in. Hann hefur marga fjöruna sopið þegar kem-
ur að hipphoppi og hefur lifað tímana tvenna.
„Mér finnst Migos mjög skemmtilegir“ segir
Erpur þegar blaðamaður náði af honum tali.
„Ég hef fylgst með rappi svo lengi. Þetta er með
því betra sem er í gangi í þessari nýju bylgju.
Þetta eru ungkettir.“