Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Qupperneq 4
4 Helgarblað 20. október 2017fréttir „Tímaspursmál hvenær banaslys verður“ Verksmiðja Norðuráls á Grundartanga Fyrrverandi starfsmenn saka stjórnendur fyrirtækisins um að hafa breytt verksmiðjunni í „þrælabúðir“ þar sem sjálfstæð hugsun er ekki liðin. MyNd SiGtryGGur Ari Fyrrverandi starfsmenn Norðuráls fordæma starfsmannastefnu fyrirtækisins V erksmiðja Norðuráls á Grundartanga er orðin að þrælabúðum þar sem vaðið er yfir starfsfólk. Á öllum mínum starfsferli hef ég aldrei kynnst öðrum eins óþverra­ skap og þar þrífst innandyra,“ segir Sölvi Arnar Arnórsson í samtali við DV. Sölvi varð, að eigin sögn, fyrir ítrekuðu einelti hjá Norðuráli af hálfu yfirmanns. Hann óskaði ítrekað eftir því að fá úrlausn sinna mála en viðbrögð fyrirtæk­ isins voru þau að segja honum upp. Tveir fyrrverandi trúnaðar­ menn innan fyrirtækisins, Ívar Örn Hauksson og Karl Magnús­ son, stíga einnig fram og greina frá ástandinu innan veggja fyrir­ tækisins sem þeir segja hafa verið óheilbrigt og ógeðfellt á meðan þeir störfuðu þar. Sömu sögu seg­ ir enn einn starfsmaður, Ingi Rafn Svansson, sem að sögn varð fyrir líkamlegu ofbeldi af hálfu verk­ stjóra. Hann sagði síðar upp störf­ um hjá fyrirtækinu. Síðan þá hefur ástandið aðeins versnað að sögn fjórmenninganna og fjölmargir starfsmenn fengið reisupassann fyrir litlar sakir. Starfsandanum hrakaði Sölvi hóf störf hjá Norðuráli þann 28. ágúst 2008 og starfaði þar óslitið þar til honum var sagt upp störfum þann 10. febrúar 2017. Að eigin sögn vegnaði Sölva Arnari vel í starfi allt þar til nýr verkstjóri var ráðinn inn í kerskálann sumarið 2014. „Þá hrakaði starfsandanum mjög enda stjórnaði hinn nýi verk­ stjóri með öskrum og var mjög ógnandi. Fljótlega fór ég að finna fyrir óútskýrðri óvild í minn garð,“ segir Sölvi. Að sögn Sölva hófust vand­ ræðin þegar hann útskrifaðist úr námi í Stóriðjuskóla Norð­ uráls samhliða vinnu. Það nám hafði hann stundað í eitt og hálf ár. Hefð var fyrir því að fyrirtæk­ ið leyfði starfsmönnum sínum að sækja útskriftina á fullum laun­ um en Sölva og tveimur öðrum starfsmönnum var synjað um slíkt leyfi. Öðrum samstarfsmanni þeirra var hins vegar heimilað að sækja útskriftina. Þetta var korn­ ið sem fyllti mælinn í samskiptum vaktstjórans og Sölva. Hann leitaði í kjölfarið til Vilhjálms Birgissonar hjá Verkalýðsfélagi Akraness sem kom kvörtuninni áfram til for­ stjóra fyrir tækisins, Ragnars Guð­ mundssonar. Ragnar var hneyksl­ aður á framgöngu vaktstjórans og hét því að ræða málið við sína undirmenn. „Síðar sagði þessi til­ tekni vaktstjóri við mig að ég hefði ekki átt skilið að mæta í skólann út af áhugaleysi. Þá sakaði hann mig um að hafa sofið í tímum en hvort tveggja var hrakið af kennaranum sem sá um námið. Ég mætti einna best allra starfsmanna og stóð mig með stakri prýði,“ segir Sölvi. Fékk nóg Samskiptavandamál milli Sölva og vaktstjórans fór að sögn Sölva stig­ vaxandi eftir þetta. Vaktstjórinn hafi hætt að yrða á hann, heilsaði honum ekki og fór síðan að setja honum fyrir fáránleg verkefni. „Að lokum fékk ég nóg og óskaði eftir því að verða fluttur yfir á aðra vakt,“ segir Sölvi. Ekki var orðið við því og ítrek­ aði Sölvi síðan beiðni sína við framkvæmdastjóra Kerskála, eft­ ir slæmt starfsmannaviðtal við vaktstjórann. „Framkvæmdastjór­ inn fór þá að spyrja mig út í sam­ skipti mín við vaktstjórann og lýsti síðan yfir vonbrigðum sínum með frammistöðu mína í Stóriðjuskól­ anum. Hann hafði greinilega verið mataður af verkstjóranum og eins og alltaf í þessu fyrirtæki þá standa stjórnendurnir saman gegn al­ mennum starfsmönnum,“ segir Sölvi. uppsagnarbréfi breytt Ekkert varð úr að Sölvi fengi að færa sig um vakt og á þessum tímapunkti var hann kominn á slæman stað í vinnunni. Hann segir að honum hafi liðið eins og hann væri undir smásjá verk­ stjórans sem notaði hvert tæki­ færi sem gafst til þess að setja út á vinnu hans. Hann segir að þann 1. febrúar hafi soðið upp úr þegar verkstjórinn brjálaðist og jós yfir hann fúkyrðum fyrir meint mistök. Taldi verkstjórinn að Sölvi hefði brotið verklagsreglur; hefði aðeins mokað einu sinni við svokölluð skautskipti í stað tvisvar. Að sögn Sölva er um algjört smáatriði að ræða sem á engan hátt verðskuld­ aði harkaleg viðbrögð. Níu dögum síðar, þann 10. febrúar, var Sölvi síðan kallaður inn á skrifstofu. Þar var hann rek­ inn fyrirvaralaust úr starfi. „Ég fékk áfall og skrifaði undir uppsagnar­ bréf sem ég las bara að hluta til,“ segir Sölvi. Þegar hann kom heim til sín las hann bréfið aftur yfir og sá þá að ástæða uppsagnarinnar var sögð vera brot á öryggisreglum. „Það er talsvert alvarlegra að brjóta öryggisreglur en verklags­ reglur. Ég hafði því samband við öryggisstjóra Norður áls en hann kom af fjöllum varðandi meint brot. Þegar það lá fyrir hafði ég samband við nýráðinn starfs­ mannastjóra fyrirtækisins. Hún vísaði þá í þetta atvik varð­ andi skautaskiptin en ég benti henni þá á að það væri brot á verklagsreglum en ekki öryggis­ reglum,“ segir Sölvi. Degi síðar fékk hann síðan þau skilaboð að hann ætti von á öðru afriti af upp­ sagnarbréfi sínu þar sem búið væri að breyta ástæðu uppsagnarinnar. „Ég hafði hugsað mér að ljúka starfsferli mínum hjá Norðuráli. Þetta var mjög góður vinnustaður en er það ekki lengur. Það var ein­ beittur vilji vaktstjóra að koma mér frá og hann naut skjóls frá yfir manni Kerskálans til þess. Saga mín er ekki sú eina og ég veit um fjölmarga aðra frábæra starfs­ menn sem hefur verið sagt upp störfum hjá Norðuráli fyrir litlar sakir,“ segir Sölvi. Ekki vinsælir hjá stjórnendum Fyrrverandi samstarfsmenn Sölva, Karl Magnússon, Ívar Örn Hauks­ son og Ingi Rafn Svansson, hafa sömu sögu að segja. Þeir höfðu all­ ir unnið í fjölmörg ár hjá Norður­ áli þar til stjórnun fyrirtækisins „fór til fjandans“. Karli var sagt upp störfum í október árið 2013 en Ívar Örn og Ingi Rafn hættu af sjálfs­ dáðum nokkru síðar. Karl og Ívar Örn voru báðir trúnaðarmenn á sama tíma og voru harðir í horn að taka sem slík­ ir. Að sögn Karls voru þeir óþægir ljáir í þúfu í augum yfirmanna fyrir tækisins sem hafi reynt að bola þeim út með öllum tiltækum ráðum. „Ég benti ítrekað á hluti sem voru ekki í lagi þegar kom að kjörum og réttindum starfs­ manna fyrir tækisins og það líkaði yfirmönnum illa. Einnig barðist ég eins og ég gat þegar menn voru reknir að ósekju. Einn samstarfs­ maður okkar var til dæmis rekinn fyrir að hafa keyrt of hratt á til­ teknu svæði en fyrir því voru engar haldbærar sannanir. Það voru „Ef maður veiktist þá var maður ein- faldlega rekinn. Álagið og mengunin á vinnustaðn- um gerði að verkum að margir sem við þekkjum veiktust, sumir alvarlega. Þeim var öllum bolað út. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.