Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Blaðsíða 32
Vikublað 20. október 2017 8 Margrét Valdimars-dóttir hefur verið áberandi sem álitsgjafi og sérfræðingur í fréttatímum síðustu misserin enda sérfróð um mál tengd lögreglu og afbrot- um. Dyggir útvarpshlustendur, sem komnir eru á miðjan aldur, kannast líka margir við hana frá árunum sem hún starfaði sem dagskrárstjóri, lengst af á Léttbylgj- unni og síðar á X-inu. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Margrét vann í því að frelsa landann með sálar- og Motown-tónlist. Nú kennir hún tölfræði og afbrotafræði við Háskóla Íslands og vinnur að rannsóknarstörfum, ásamt því að leggja lokahönd á doktorsnám í afbrotafræði við City University í New York. Hún segist ekki hafa átt sér stóra æskudrauma um verða doktor í afbrotafræðum. Að loknu námi við Fjölbrautaskólann í Breiðholti fór hún beint til Malaga á Spáni þar sem hún vann við að hrista kokteila á kvöldin og lærði spænsku á daginn. „Þegar ég kom heim fór ég í eitthvert útvarpsviðtal á FM 957 og komst að því að það voru engar stelpur að vinna þarna. Mér fannst eins og mér bæri skylda til að laga þetta ástand og bauð fram starfs- krafta mína. Þegar útvarpsstjórinn afþakkaði þá bauðst ég bara til að vinna frítt og var þá hleypt í hljóðnemann. Þetta stóð reyndar ekki lengi því fljótlega var ég ráðin í venjulegt starf,“ segir hún og hlær. Sat fremst í öllum fyrirlestrum Margrét kynntist fyrri barnsföður sínum, Svala Kaldalóns, í vinnunni við útvarpið og átti með honum Maríu Rós, sem fæddist árið 1998. „Já, María er tæknilega séð fyrsta íslenska útvarpsbarnið,“ segir hún og skellir upp úr. Margrét og Svali voru saman í tæplega fjögur ár en skildu þegar María var um það bil tveggja ára. Margrét starfaði áfram við útvarpið en fann fljótt að hana langaði til að mennta sig frekar og því varð úr að hún skráði sig félagsfræði við Háskóla Íslands. „Til að byrja með ætlaði ég að fókusera á fjölmiðlafræði en svo féll ég alveg fyrir félags- og afbrotafræðinni af því kennararnir voru svo frábærlega skemmtilegir. Þegar þarna var komið sögu hafði ég verið í tíu ár á vinnumarkaði og var mjög spennt fyrir náminu. Sat alltaf fremst í öllum fyrirlestrum, mætti vel lesin í alla tíma og las oftast líka efni sem ekki var sett fyrir. Ég hélt að allir gerðu þetta svona, en komst fljótlega að því að það er ekki þannig. Ég var og er hálfgert nörd.“ Með óseðjandi áhuga á afbrotafræði Hún segist fyrst hafa hitt sambæri- leg nörd þegar hún hélt í doktors- nám við City University í New York en þar kepptust nemendur við að lesa ítarefni og láta ljós sitt skína. „Mér fannst stundum að nemendur hér á Íslandi væru að keppast við að hafa sem minnst fyrir því að fá svona ásættanlegar einkunnir, en úti í náminu þótti það ekki fínt,“ segir Margrét sem skráði sig upphaflega í doktors nám við Háskóla Íslands, þá nýbökuð móðir, en sonur hennar Egill, fæddist sumarið 2009. „Verandi tveggja barna móðir, og svona í eldri kantinum, fannst mér eins og það væri viðeigandi en ég fann fljótt að það var ekki nóg fyrir mig. Eftir á að hyggja er ég ótrúlega glöð að hafa farið í nám til Bandaríkjanna. Þetta var stundum erfitt en líka það skemmtilegasta sem ég hef gert. Ég eyddi nánast öllu fyrsta sumrinu á bókasafninu á 34. stræti, á ská á móti Empire „VIÐ fæÐumst meÐ ólík VerkfærI tIl aÐ fóta okkur í þessum heImI“ Margrét H. gústaVsdóttir margret@dv.is afbrotafræðingurinn Margrét Valdimarsdóttir í viðtali um lögregluna, samfélagslega stimpla og það að ala upp einhverfan son í New York
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.