Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Side 36
4 Allt fyrir bílinn Helgarblað 20. október 2017KYNNINGARBLAÐ Allt á einum stað þegar skipta þarf um rúðu Þegar bílrúða brotnar eða fær í sig sprungu er gott að hringja í Bílrúðu­ meistararann, Dalvegi 18, Kópavogi, í síma 571­1133, og panta tíma. Eftir það er séð um allt sem á að gera á einum stað, hratt og örugglega. „Það fer rafræn sending frá okkur á tryggingafélagið þannig að viðskiptavinurinn þarf aldrei að vera í neinu sambandi við það frekar en hann vill. Það er mikilvægt að þetta sé ekki flókið fyrir viðskiptavininn. Hann geti bara hringt í eitt númer og síðan sé gengið frá öllu á einum stað,“ segir Páll Gunnlaugsson, eigandi Bílrúðumeistarans. Páll er lærður bifreiða­ smíðameistari og það er góð tilfinning fyrir viðskiptavini að vita af rúðuísetningunni í höndum faglærðs og þraut­ reynds manns. Páll hefur starfað við rúðuísetningu allt frá árinu 2001, en hann stofn­ aði Bílrúðumeistarann árið 2011. Mikill vöxtur hefur verið í viðskiptunum vegna góðrar þjónustu að sögn Páls. Upp­ runagæði á ísettu gleri – hægt að nota plástra og sleppa við rúðuskipti við minniháttar skemmdir. „Ég legg áherslu á að nota gler sem er af sömu gæðum og upprunalega glerið í bílnum og því getur bíleigandinn treyst því að fá jafngóða rúðu og var upphaflega,“ segir Páll. En eru rúðubrot í bílum al­ geng? „Það er ótrúlega mikið um rúðubrot. Algengast er að eitthvað komi í rúðuna, steinn sem skemmir hana og ef hún brotnar ekki strax þá klárar frostið og hitabreytingarnar verkið. En ef fólk nýtir sér þessa plástra sem bæði eru í boði hjá mér og trygginga­ félögunum, þá eru þeir settir yfir skemmdina strax, bíl­ eigandinn kemur síðan með bílinn til mín og ég get fyllt upp í skemmdina án þess að það þurfi að skipta um rúðu. Þetta er auðvitað miklu ódýr­ ari kostur og getur gengið ef skemmdin er á lítt áberandi stað á rúðunni, utan sjón­ sviðs ökumanns. Auk minni kostnaðar þarf eigandinn þá ekki að greiða fyrir neina sjálfsáhættu.“ Biðtími frá því hringt er í 571­1133 vegna rúðubrots er vana­ lega 1–2 dagar. Páll segir að rúðubrot vegna skemmdar­ verka séu sjaldgæfari en það sem hann kallar, rúðubrot af eðlilegum ástæðum. Skemmdar­ verk gangi þó oft í bylgjum og stundum verði mörg rúðubrot á stuttum tíma vegna skemmdarverkafar­ aldurs. Þess má geta að Páll er fljótur að leysa þau algengu vandamál þegar hliðarrúður festast í upphölurum. Þá er hægt að koma með bílinn beint í Bílrúðumeistarann þar sem rúðan er losuð og skipt um upp­ halarann. Að sögn Páls eru þessi vandamál algeng þegar byrjar að frysta á veturna. BílrúðUMEiStArinn Myndir Þormar Vignir Gunnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.