Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Page 47

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Page 47
Vikublað 20. október 2017 19 He lgar ma tur inn Seðjandi Spaghetti VeganeSe fyrir fjóra yndiSauki n Yndisauki var stofnað árið 2004 af Kristínu og Guðbjörgu Halldórsdóttur. n Fyrirtækið sérhæfir sig í veislu- þjónustu, heimsendum hádegis- mat til fyrirtækja og fleiru sem viðkemur sælkeramatargerð. n Sælkeravörurnar frá Yndisauka fást víða á höfuborgarsvæðinu og einnig á nokkrum stöðum úti á landi. n Bitabarinn í Vatnagörðum 6 er opinn frá kl. 07.30 til 16.00 virka daga. n Á heimasíðu Yndisauka, www.yndisauki.is, er úrval góðra uppskrifta sem óhætt er að prófa. Eggaldin er vanmetið græn­meti og það eru margir mjög hræddir við að prófa að matreiða úr því, en eftir að maður kemst upp á lagið með þetta getur bragðið verið algjörlega ómissandi. Það er samt mjög mikilvægt að baka það aðeins með ólífuolíu og salti áður en því er blandað saman við annað hráefni því þá fer beiskjan úr því og það verður milt og ljúffengt á bragðið,“ segir Kristín Ásgeirsdóttir matreiðslumaður. „Þetta er svona eins og þegar sveppir eru eldaðir rétt þá getur bragðið af þeim orðið þungamiðjan í matnum. Ef fólk er hins vegar skíthrætt við eggaldin þá má sleppa því að hafa það með í réttinum en ég mæli samt með því að fólk prófi.“ Kristín segir sitt eigið mataræði að mestu byggt á grænmetisfæðu, eða um áttatíu prósent. „Ég prófaði samt að vera alveg vegan í heilan mánuð í sumar, hélt það yrði rosalega erfitt en svo reyndist þetta mikið auðveldara en ég hafði ímyndað mér. Ég er reyndar ekki mikið fyrir mjólkur­ vörur en kann þó að meta góða osta og svo er ég mikill smjör­ aðdáandi eins og flestir kokkar. Manni líður vel af þessu mataræði en fólk þarf samt að gæta sín á hvað það er að borða. Matur verður ekki sjálfkrafa hollur af því hann er stimplaður vegan. Það er mikið framboð af vegan­vöru sem hefur svo langar innihaldslýsingar að þær ná til tunglsins. Þá er kannski alveg eins gott að fá sér bara erfðabreytt beikon,“ segir hún og bætir við að umhverfissjónarmið komi einnig inn í þetta. „Ef maturinn er fluttur inn frá landi sem er hinum megin á hnettinum þá fylgir því auðvitað mengun og útblástur. Þess vegna er um að gera að reyna að velja sem oftast hreinan mat úr nærumhverf­ inu til að umhverfissjónarmiðin fjúki ekki bara út um gluggann.“ Kristín segir að vinnunnar vegna gæti hún tæpast alfarið snúið sér að vegan­fæðunni en Yndisauki býður þó alltaf einn vegan­rétt á dag sem valkost fyrir þá viðskipta­ vini sem vilja sneiða hjá dýra­ afurðum. „Sú mýta að verði ekki saddur af því að borða grænmeti er alls ekki rétt. Til að upplifa mjög seðjandi tilfinningu þarf maður bara að huga að því að borða nóg. Þá er gott að hafa baunir í réttunum eða annað prótein, og svo er ekki verra að vera líka sólginn í hnetur.“ margret@dv.is Kristín Ásgeirsdóttir, matreiðslumaður og eigandi veitingaþjónustunnar yndisauka leggur til að við prófum að nota eggaldin við matargerð. „Matur verður ekki sjálfkrafa hollur af því hann er stimplaður vegan. Það er mikið fram- boð af vegan-vöru sem hefur svo langar innihaldslýsingar að þær ná til tunglsins. uppSkrift Fyrir fjóra n 2 msk. ólífuolía n 1 stk. lítið eggaldin n 1 lítill rauðlaukur, saxaður smátt n 1 stk. marið hvítlauksrif n 1 tsk. timjan n 1 tsk. oreganó n 1 tsk. basil n ¼ tsk. cayenne-pipar n 700 g gulrætur, helst lífrænar, snyrtar og skornar í sneiðar ca 1 cm að þykkt n 2 dl rauðar linsur, klofnar lagðar í 2 dl af vatni n 900 g maukaðir tómatar n 1 msk. balsamedik n 1 tsk. grænmetiskraftur Aðferð n Hitið ofn í 190°C n Skerið eggaldin í teninga, setjið í eldfast mót og hellið 2 msk. ólífuolíu yfir og saltið, veltið þessu aðeins saman og setjið inn í ofninn og bakið í 15 mínútur. n Hellið smá ólífuolíu í frekar víðan pott á miðlungs hita og svissið rauðlaukinn og hvítlaukinn í smá stund, bætið kryddinu út í og svissið aðeins lengur, þar til laukurinn er orðin mjúkur og þetta fer að ilma. Bætið gulrótunum út í og linsunum með vatninu, hrærið í smá stund áður en tómat, balsamediki og grænmetiskrafti er bætt út í. n Þegar eggaldinið er búið í ofninum er sósunni hellt í eldfast mót og þessu tvennu blandað saman. n Bakið svo sósuna í 15–20 mínútur eða þar til gulræturnar eru orðnar mjúkar. n Með því að baka sósuna verður hún aðeins sætari. n Berið fram með pasta, sætum kartöflum eða bara hverju sem er. Kristín Ásgeirsdóttir „Matur verður ekki sjálfkrafa hollur af því hann er stimplaður vegan.“ Myndir Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.