Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Síða 47
Vikublað 20. október 2017 19
He
lgar
ma
tur
inn
Seðjandi Spaghetti
VeganeSe fyrir fjóra
yndiSauki
n Yndisauki var stofnað árið
2004 af Kristínu og Guðbjörgu
Halldórsdóttur.
n Fyrirtækið sérhæfir sig í veislu-
þjónustu, heimsendum hádegis-
mat til fyrirtækja og fleiru sem
viðkemur sælkeramatargerð.
n Sælkeravörurnar frá Yndisauka
fást víða á höfuborgarsvæðinu
og einnig á nokkrum stöðum úti
á landi.
n Bitabarinn í Vatnagörðum 6
er opinn frá kl. 07.30 til 16.00
virka daga.
n Á heimasíðu Yndisauka,
www.yndisauki.is, er úrval góðra
uppskrifta sem óhætt er að prófa.
Eggaldin er vanmetið grænmeti og það eru margir mjög hræddir við að prófa að
matreiða úr því, en eftir að maður
kemst upp á lagið með þetta getur
bragðið verið algjörlega ómissandi.
Það er samt mjög mikilvægt að
baka það aðeins með ólífuolíu
og salti áður en því er blandað
saman við annað hráefni því þá fer
beiskjan úr því og það verður milt
og ljúffengt á bragðið,“ segir Kristín
Ásgeirsdóttir matreiðslumaður.
„Þetta er svona eins og þegar
sveppir eru eldaðir rétt þá getur
bragðið af þeim orðið þungamiðjan
í matnum. Ef fólk er hins vegar
skíthrætt við eggaldin þá má sleppa
því að hafa það með í réttinum
en ég mæli samt með því að fólk
prófi.“
Kristín segir sitt eigið mataræði
að mestu byggt á grænmetisfæðu,
eða um áttatíu prósent.
„Ég prófaði samt að vera alveg
vegan í heilan mánuð í sumar,
hélt það yrði rosalega erfitt en svo
reyndist þetta mikið auðveldara
en ég hafði ímyndað mér. Ég er
reyndar ekki mikið fyrir mjólkur
vörur en kann þó að meta góða
osta og svo er ég mikill smjör
aðdáandi eins og flestir kokkar.
Manni líður vel af þessu mataræði
en fólk þarf samt að gæta sín á
hvað það er að borða. Matur verður
ekki sjálfkrafa hollur af því hann
er stimplaður vegan. Það er mikið
framboð af veganvöru sem hefur
svo langar innihaldslýsingar að þær
ná til tunglsins. Þá er kannski alveg
eins gott að fá sér bara erfðabreytt
beikon,“ segir hún og bætir við að
umhverfissjónarmið komi einnig
inn í þetta.
„Ef maturinn er fluttur inn
frá landi sem er hinum megin á
hnettinum þá fylgir því auðvitað
mengun og útblástur. Þess vegna er
um að gera að reyna að velja sem
oftast hreinan mat úr nærumhverf
inu til að umhverfissjónarmiðin
fjúki ekki bara út um gluggann.“
Kristín segir að vinnunnar
vegna gæti hún tæpast alfarið snúið
sér að veganfæðunni en Yndisauki
býður þó alltaf einn veganrétt á
dag sem valkost fyrir þá viðskipta
vini sem vilja sneiða hjá dýra
afurðum.
„Sú mýta að verði ekki saddur af
því að borða grænmeti er alls ekki
rétt. Til að upplifa mjög seðjandi
tilfinningu þarf maður bara að
huga að því að borða nóg. Þá er
gott að hafa baunir í réttunum eða
annað prótein, og svo er ekki verra
að vera líka sólginn í hnetur.“
margret@dv.is
Kristín Ásgeirsdóttir, matreiðslumaður og eigandi
veitingaþjónustunnar yndisauka leggur til að við
prófum að nota eggaldin við matargerð.
„Matur verður
ekki sjálfkrafa
hollur af því hann er
stimplaður vegan.
Það er mikið fram-
boð af vegan-vöru
sem hefur svo langar
innihaldslýsingar að
þær ná til tunglsins.
uppSkrift
Fyrir fjóra
n 2 msk. ólífuolía
n 1 stk. lítið eggaldin
n 1 lítill rauðlaukur, saxaður smátt
n 1 stk. marið hvítlauksrif
n 1 tsk. timjan
n 1 tsk. oreganó
n 1 tsk. basil
n ¼ tsk. cayenne-pipar
n 700 g gulrætur, helst lífrænar, snyrtar
og skornar í sneiðar ca 1 cm að þykkt
n 2 dl rauðar linsur, klofnar lagðar í 2
dl af vatni
n 900 g maukaðir tómatar
n 1 msk. balsamedik
n 1 tsk. grænmetiskraftur
Aðferð
n Hitið ofn í 190°C
n Skerið eggaldin í teninga, setjið í
eldfast mót og hellið 2 msk. ólífuolíu
yfir og saltið, veltið þessu aðeins
saman og setjið inn í ofninn og bakið
í 15 mínútur.
n Hellið smá ólífuolíu í frekar víðan pott
á miðlungs hita og svissið rauðlaukinn
og hvítlaukinn í smá stund, bætið
kryddinu út í og svissið aðeins lengur,
þar til laukurinn er orðin mjúkur og
þetta fer að ilma. Bætið gulrótunum
út í og linsunum með vatninu, hrærið í
smá stund áður en tómat, balsamediki
og grænmetiskrafti er bætt út í.
n Þegar eggaldinið er búið í ofninum
er sósunni hellt í eldfast mót og þessu
tvennu blandað saman.
n Bakið svo sósuna í 15–20 mínútur eða
þar til gulræturnar eru orðnar mjúkar.
n Með því að baka sósuna verður hún
aðeins sætari.
n Berið fram með pasta, sætum
kartöflum eða bara hverju sem er.
Kristín Ásgeirsdóttir
„Matur verður ekki sjálfkrafa
hollur af því hann er stimplaður
vegan.“ Myndir Sigtryggur Ari