Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Page 70
46 fólk Helgarblað 20. október 2017
M
ér finnst við svo venju
leg fjölskylda að stundum
gleymi ég því að öðrum
þykir það ekki.“ Þetta seg
ir Ásta Rún Valgerðardóttir sem er
höfundur barnabókarinnar „Fjöl
skyldan mín“ sem kom út í vik
unni. Ásta er gift Guðrúnu Dóru
Bjarnadóttur. Saman eiga þær
soninn Bjarna Frey en líffræði
legur faðir hans er sæðisgjafi. Þá er
annað barn þeirra hjóna væntan
legt í heiminn snemma á næsta
ári. Ásta, sem er sálfræðingur á
Landspítalanum, telur afar mik
ilvægt að börn fái þau skilaboð
frá umhverfi sínu að fjölskyldu
form þeirra sé samþykkt og eðli
legur hluti af samfélaginu. Eitt
af markmiðum bókarinnar er að
auka fjölbreytileikann í íslenskum
barnabókum svo að flest börn geti
speglað sig í þeim sögum sem
lesnar eru fyrir þau. Þá vill Ásta
með bókinni auka líkurnar á því
að umburðarlyndi og fordóma
leysi, sem svo oft einkennir ung
börn, haldist fram á fullorðinsár.
Aðalsöguhetja bókarinnar er
Friðjón, fimm ára strákur sem á
tvær mæður. Sagan gerist á fjöl
skyldudegi í leikskólanum hans
þar sem allir krakkarnir, með að
stoð kennara, teikna og ræða um
fjölskyldurnar sínar. Þar kemur í
ljós að fjölskyldur barnanna eru
mjög ólíkar. Til dæmis á eitt barnið
foreldra sem eru skildir. Þá á ann
að barn gæludýr. Friðjón lærir því
heilmikið um ólík fjölskylduform
með því að hlusta á krakkana ræða
um fjölskyldurnar sínar.
Finnst vanta meiri breidd í
íslenskar barnabókmenntir
Ásta byrjaði fyrst að leita að barna
bókum, þar sem samkynhneigð
kemur við sögu, þegar hún gekk
með son sinn árið 2014. „ Úrvalið
var sama og ekkert. Sérstaklega
fyrir börn á leikskólaaldri. Svo
eftir að Bjarni varð eldri fannst
mér leiðinlegt að í þeim bókum
sem ég las fyrir hann var yfirleitt
sama fjölskylduformið. Mamma,
pabbi og barn,“ segir Ásta og bætir
við að það sé mikilvægt fyrir börn
að þeim finnist þau hluti af stóra
samhenginu. Þá fannst Ástu vanta
barnabók, í söguformi, sem gæti
hjálpað foreldrum, kennurum og
öðrum að ræða um mismunandi
fjölskyldur á þægilegan hátt. „Son
ur okkar, sem er þriggja ára, bendir
stundum á myndirnar í bókunum
sem við erum að lesa fyrir hann og
spyr hvort þessi eða hinn karakt
erinn í bókinni sé líka mamma.
Því hef ég stundum gripið til þess
ráðs að lesa „mamma og mamma“
í stað „mamma og pabbi.“
Ásta kveðst sjálf aldrei hafa
fundið fyrir fordómum á Íslandi
vegna samkynhneigðar sinnar.
„Við erum svo ótrú
lega venjuleg fjöl
skylda. Stundum
gleymi ég því alveg
að sumum finnst það
ekki.“ Þó kveðst Ásta
hafa fengið að heyra,
aðallega frá fólki af
eldri kynslóðinni,
að það vorkenni syni
þeirra Guðrúnar
að eiga ekki pabba.
„Bjarni hefur einu
sinni spurt okk
ur hvar pabbi hans
sé og við sögðum
að hann ætti ekki
pabba heldur tvær
mömmur. Hann
sætti sig alveg við
það svar og hef
ur ekki spurt síð
an. Það sama á
við um vini hans
á leikskólanum.
Krökkunum á leik
skólanum hans
þykir heldur ekk
ert athugavert við að Bjarni eigi
tvær mömmur. Enda ætti engum
að finnast það verri kostur að eiga
tvær mömmur heldur en mömmu
og pabba. Hvað þá tvo pabba, eða
stjúpforeldra. Svo eru auðvitað
börn sem eiga eitt foreldri. Fjöl
skyldur eru alls konar og við eig
um að fagna fjölbreytileikanum.
Það eina sem skiptir máli í þessu
samhengi að barnið sé elskað og
því líði vel.“
Eini dagurinn á leikskólaár
inu sem hjónin, Ásta og Gunna,
fá aðstoð með í leikskólanum er
Bóndadagurinn. En þá er karl
kyns fjölskyldumeðlimum boðið
í kaffi á deild leikskólabarnanna
þar sem þeim gefst færi á að halda
upp á daginn. „Flest börnin bjóða
pöbbum sínum en Bjarni býður
afa sínum. Þeir eru báðir mjög
sáttir við það fyrirkomulag enda
mjög nánir og góðir félagar.“
Sögupersónurnar heita eftir
leikskólastarfsfólkinu
Eftir að hafa lengi velt því fyrir sér
að skrifa bók, eins og hún myndi
vilja að börnin hennar gætu lesið,
lét Ásta slag standa í upphafi árs
2017. „Við Gunna setjumst yfirleitt
niður um áramótin, setjum okkur
markmið og ákveðum hvað við
ætlum að gera á nýja árinu. Gunna
vissi að ég hafði lengi velt þessu
fyrir mér. Þegar hún spurði hvort
mig langaði ekki að setja þetta á
„To Do“listann fyrir árið þá ákvað
ég að hefjast handa.“ Nokkrum
vikum síðar var allt komið á fullt,
textinn kominn á blað og Ásta
komin með útgefanda.
Bjarni er hæstánægður með
söguna sem mamma hans skrifaði.
Hann ásamt ótal fagaðilum hafa
fengið að hlusta á og lesa bókina.
Allar sögupersónurnar í bókinni,
að frátalinni aðal söguhetjunni,
eru nefndar eftir starfsfólki á leik
skóla Bjarna. „Fólkið sem vinnur
á leikskólanum hans Bjarna hefur
reynst honum, sem og öðrum
börnum í leikskólanum, ótrúlega
vel. Ég vildi með þessu móti sýna
þeim örlítinn þakklætisvott.“ Nafn
Friðjóns kom þó úr allt annarri
átt en maðurinn sem bjó í íbúð
inni, sem Ásta og fjölskylda henn
ar búa í, á undan þeim hét Friðjón.
„Nafnið hans stóð heillengi á dyra
bjöllunni okkar eftir að við fluttum
inn. Svo eftir að ég byrjaði að móta
persónunar í bókinni kom aldrei
neitt annað til greina en að nefna
strákinn Friðjón.“
Ásta segir að ferlið, að skrifa og
gefa út bók, hafi verið mun auð
veldara en hún hélt í upphafi.
Hún kveðst einstaklega ánægð
með það hvernig Lára Garðars
dóttir, sem er menntaður teiknari
og kvikari, glæddi söguna lífi með
myndskreytingum sínum. „Ég fékk
líka styrk frá samfélagssjóði Valitor
sem þýðir að bókin verður gefin á
alla leikskóla í landinu.“ Það eitt
og sér er mikill sigur fyrir Ástu en
draumurinn var að öll börn á Ís
landi hefðu aðgang að bókinni.
„Helst hefði ég viljað gefa hana á
hvert einasta heimili. En það er
kannski ekki raunhæft. Það sem
skiptir mig öllu máli er að börn í
alls konar fjölskyldum fái innsýn í
alls konar fjölskylduform.“ n
Á morgun, laugardaginn
21. október, á milli klukkan 14
og 16, verður útgáfuhóf vegna
bókarinnar Fjölskyldan mín
haldið í sal Samtakanna '78.
Börn eru sérstaklega velkomin í
útgáfuhófið.
Barnabókin Fjölskyldan mín kemur í verslanir um
helgina Lára Garðarsdóttir, sem er menntaður teiknari og
kvikari, myndskreytti bókina.
„Krökkunum á
leikskólanum
hans þykir heldur ekkert
athugavert við það að
Bjarni eigi tvær mömmur.
Enda ætti engum að
finnast það verri kostur
að eiga tvær mömmur
heldur en mömmu og
pabba.
„Mér finnst við
venjuleg fjölskylda“
Ásta Rún Valgerðardóttir sendir frá sér fyrstu barnabók sína, Fjölskyldan mín
Rithöfundurinn og sálfræðingurinn
Ásta Rún Valgerðardóttir Gaf út sína
fyrstu barnabók í vikunni. Mynd dV ehF / SigtRygguR ARi
Kristín Clausen
kristin@dv.is