Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Qupperneq 70

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Qupperneq 70
46 fólk Helgarblað 20. október 2017 M ér finnst við svo venju­ leg fjölskylda að stundum gleymi ég því að öðrum þykir það ekki.“ Þetta seg­ ir Ásta Rún Valgerðardóttir sem er höfundur barnabókarinnar „Fjöl­ skyldan mín“ sem kom út í vik­ unni. Ásta er gift Guðrúnu Dóru Bjarnadóttur. Saman eiga þær soninn Bjarna Frey en líffræði­ legur faðir hans er sæðisgjafi. Þá er annað barn þeirra hjóna væntan­ legt í heiminn snemma á næsta ári. Ásta, sem er sálfræðingur á Landspítalanum, telur afar mik­ ilvægt að börn fái þau skilaboð frá umhverfi sínu að fjölskyldu­ form þeirra sé samþykkt og eðli­ legur hluti af samfélaginu. Eitt af markmiðum bókarinnar er að auka fjölbreytileikann í íslenskum barnabókum svo að flest börn geti speglað sig í þeim sögum sem lesnar eru fyrir þau. Þá vill Ásta með bókinni auka líkurnar á því að umburðarlyndi og fordóma­ leysi, sem svo oft einkennir ung börn, haldist fram á fullorðinsár. Aðalsöguhetja bókarinnar er Friðjón, fimm ára strákur sem á tvær mæður. Sagan gerist á fjöl­ skyldudegi í leikskólanum hans þar sem allir krakkarnir, með að­ stoð kennara, teikna og ræða um fjölskyldurnar sínar. Þar kemur í ljós að fjölskyldur barnanna eru mjög ólíkar. Til dæmis á eitt barnið foreldra sem eru skildir. Þá á ann­ að barn gæludýr. Friðjón lærir því heilmikið um ólík fjölskylduform með því að hlusta á krakkana ræða um fjölskyldurnar sínar. Finnst vanta meiri breidd í íslenskar barnabókmenntir Ásta byrjaði fyrst að leita að barna­ bókum, þar sem samkynhneigð kemur við sögu, þegar hún gekk með son sinn árið 2014. „ Úrvalið var sama og ekkert. Sérstaklega fyrir börn á leikskólaaldri. Svo eftir að Bjarni varð eldri fannst mér leiðinlegt að í þeim bókum sem ég las fyrir hann var yfirleitt sama fjölskylduformið. Mamma, pabbi og barn,“ segir Ásta og bætir við að það sé mikilvægt fyrir börn að þeim finnist þau hluti af stóra samhenginu. Þá fannst Ástu vanta barnabók, í söguformi, sem gæti hjálpað foreldrum, kennurum og öðrum að ræða um mismunandi fjölskyldur á þægilegan hátt. „Son­ ur okkar, sem er þriggja ára, bendir stundum á myndirnar í bókunum sem við erum að lesa fyrir hann og spyr hvort þessi eða hinn karakt­ erinn í bókinni sé líka mamma. Því hef ég stundum gripið til þess ráðs að lesa „mamma og mamma“ í stað „mamma og pabbi.“ Ásta kveðst sjálf aldrei hafa fundið fyrir fordómum á Íslandi vegna samkynhneigðar sinnar. „Við erum svo ótrú­ lega venjuleg fjöl­ skylda. Stundum gleymi ég því alveg að sumum finnst það ekki.“ Þó kveðst Ásta hafa fengið að heyra, aðallega frá fólki af eldri kynslóðinni, að það vorkenni syni þeirra Guðrúnar að eiga ekki pabba. „Bjarni hefur einu sinni spurt okk­ ur hvar pabbi hans sé og við sögðum að hann ætti ekki pabba heldur tvær mömmur. Hann sætti sig alveg við það svar og hef­ ur ekki spurt síð­ an. Það sama á við um vini hans á leikskólanum. Krökkunum á leik­ skólanum hans þykir heldur ekk­ ert athugavert við að Bjarni eigi tvær mömmur. Enda ætti engum að finnast það verri kostur að eiga tvær mömmur heldur en mömmu og pabba. Hvað þá tvo pabba, eða stjúpforeldra. Svo eru auðvitað börn sem eiga eitt foreldri. Fjöl­ skyldur eru alls konar og við eig­ um að fagna fjölbreytileikanum. Það eina sem skiptir máli í þessu samhengi að barnið sé elskað og því líði vel.“ Eini dagurinn á leikskólaár­ inu sem hjónin, Ásta og Gunna, fá aðstoð með í leikskólanum er Bóndadagurinn. En þá er karl­ kyns fjölskyldumeðlimum boðið í kaffi á deild leikskólabarnanna þar sem þeim gefst færi á að halda upp á daginn. „Flest börnin bjóða pöbbum sínum en Bjarni býður afa sínum. Þeir eru báðir mjög sáttir við það fyrirkomulag enda mjög nánir og góðir félagar.“ Sögupersónurnar heita eftir leikskólastarfsfólkinu Eftir að hafa lengi velt því fyrir sér að skrifa bók, eins og hún myndi vilja að börnin hennar gætu lesið, lét Ásta slag standa í upphafi árs 2017. „Við Gunna setjumst yfirleitt niður um áramótin, setjum okkur markmið og ákveðum hvað við ætlum að gera á nýja árinu. Gunna vissi að ég hafði lengi velt þessu fyrir mér. Þegar hún spurði hvort mig langaði ekki að setja þetta á „To Do“­listann fyrir árið þá ákvað ég að hefjast handa.“ Nokkrum vikum síðar var allt komið á fullt, textinn kominn á blað og Ásta komin með útgefanda. Bjarni er hæstánægður með söguna sem mamma hans skrifaði. Hann ásamt ótal fagaðilum hafa fengið að hlusta á og lesa bókina. Allar sögupersónurnar í bókinni, að frátalinni aðal söguhetjunni, eru nefndar eftir starfsfólki á leik­ skóla Bjarna. „Fólkið sem vinnur á leikskólanum hans Bjarna hefur reynst honum, sem og öðrum börnum í leikskólanum, ótrúlega vel. Ég vildi með þessu móti sýna þeim örlítinn þakklætisvott.“ Nafn Friðjóns kom þó úr allt annarri átt en maðurinn sem bjó í íbúð­ inni, sem Ásta og fjölskylda henn­ ar búa í, á undan þeim hét Friðjón. „Nafnið hans stóð heillengi á dyra­ bjöllunni okkar eftir að við fluttum inn. Svo eftir að ég byrjaði að móta persónunar í bókinni kom aldrei neitt annað til greina en að nefna strákinn Friðjón.“ Ásta segir að ferlið, að skrifa og gefa út bók, hafi verið mun auð­ veldara en hún hélt í upphafi. Hún kveðst einstaklega ánægð með það hvernig Lára Garðars­ dóttir, sem er menntaður teiknari og kvikari, glæddi söguna lífi með myndskreytingum sínum. „Ég fékk líka styrk frá samfélagssjóði Valitor sem þýðir að bókin verður gefin á alla leikskóla í landinu.“ Það eitt og sér er mikill sigur fyrir Ástu en draumurinn var að öll börn á Ís­ landi hefðu aðgang að bókinni. „Helst hefði ég viljað gefa hana á hvert einasta heimili. En það er kannski ekki raunhæft. Það sem skiptir mig öllu máli er að börn í alls konar fjölskyldum fái innsýn í alls konar fjölskylduform.“ n Á morgun, laugardaginn 21. október, á milli klukkan 14 og 16, verður útgáfuhóf vegna bókarinnar Fjölskyldan mín haldið í sal Samtakanna '78. Börn eru sérstaklega velkomin í útgáfuhófið. Barnabókin Fjölskyldan mín kemur í verslanir um helgina Lára Garðarsdóttir, sem er menntaður teiknari og kvikari, myndskreytti bókina. „Krökkunum á leikskólanum hans þykir heldur ekkert athugavert við það að Bjarni eigi tvær mömmur. Enda ætti engum að finnast það verri kostur að eiga tvær mömmur heldur en mömmu og pabba. „Mér finnst við venjuleg fjölskylda“ Ásta Rún Valgerðardóttir sendir frá sér fyrstu barnabók sína, Fjölskyldan mín Rithöfundurinn og sálfræðingurinn Ásta Rún Valgerðardóttir Gaf út sína fyrstu barnabók í vikunni. Mynd dV ehF / SigtRygguR ARi Kristín Clausen kristin@dv.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.