Morgunblaðið - 25.02.2017, Blaðsíða 1
! #
$ %
& ' $
%
!"
# $%
$ ! " & ' "($ ) $ ! ) " $&
' * $
& + "
L A U G A R D A G U R 2 5. F E B R Ú A R 2 0 1 7
Stofnað 1913 48. tölublað 105. árgangur
Besta
til að vera í núinu
LÆKNIR
BÝÐUR UPP
Á AUKATÍMA ÁSDÍS OG AURYN-KVARTETTINN
TÓNLEIKAR Í HÖRPU 46VÖRUHÖNNUÐUR 12
Samsett mynd/Eggert
Afkoma Stóru bankarnir þrír högnuðust
um liðlega 58 milljarða króna á síðasta ári.
Viðskiptabankarnir þrír skiluðu
um 58,5 milljarða króna hagnaði
samanlagt á árinu 2016. Þetta er
umtalsvert minni hagnaður en á
árinu á undan, en bankarnir högn-
uðust um 107 milljarða árið 2015.
Hagnaður Arion banka nam 21,7
milljörðum króna í fyrra en hann
var tæplega 50 milljarðar árið á
undan, þegar bankinn seldi hluti í
nokkrum stórum félögum. Hagn-
aður Landsbankans nam 16,6 millj-
örðum króna á síðasta ári en hann
var 35,5 milljarðar 2015, en um 19
milljarða króna sveifla var í virðis-
breytingum útlána á milli áranna. Í
gær tilkynnti svo Íslandsbanki að
hagnaður bankans hefði numið 20,2
milljörðum króna á síðasta ári, sem
er um 2% minna en í fyrra. »22
Samanlagður hagn-
aður bankanna nær
helmingast milli ára
Vöxtur ferða-
þjónustunnar í
desember og jan-
úar umfram
spár, og fyrir-
sjáanleg mikil
loðnuveiði, hefur
styrkt spá Hag-
fræðideildar
Landsbankans
frá því í nóvem-
ber um að krón-
an muni halda áfram að styrkjast til
loka ársins 2019. „Þannig að það er
meira jákvætt en neikvætt búið að
gerast síðan í nóvember hvað varð-
ar gengi krónunnar,“ segir Daníel
Svavarsson, forstöðumaður Hag-
fræðideildar Landsbankans, í sam-
tali við Morgunblaðið. »22
Ferðaþjónusta og
loðna styrkja krónu
Ferðamenn hafa
áhrif á krónuna.
„Til hamingju, pabbi, barátta þín og
seigla hefur loksins skilað sér í
endurupptöku. Réttlætið sigrar að
lokum.“ Þetta skrifar Hafþór
Sævarsson, sonur Sævars Ciesielski,
í tilefni af því að endurupptökunefnd
hefur fallist á endurupptökubeiðni
fimm einstaklinga sem sakfelldir
voru í tengslum við Guðmundar- og
Geirfinnsmálin. Úrskurðir nefndar-
innar voru birtir í gær.
Alls voru sex einstaklingar dæmd-
ir vegna málsins á áttunda áratugn-
um, fimm karlar og ein kona, en
beiðni Erlu Bolladóttur um endur-
upptöku var hafnað af nefndinni.
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður
Erlu og Guðjóns Skarphéðinssonar,
fagnar úrskurði í máli Guðjóns en
kveðst vonsvikinn með niðurstöðuna
í máli Erlu. Hann útilokar ekki að lát-
ið verði reyna á gildi úrskurðarins.
Guðjón Skarphéðinsson segist
hafa frá því í sumar verið fullviss um
að nefndin kæmist að þeirri niður-
stöðu að samþykkja endurupptöku-
beiðnina. „Ég hefði orðið steinhissa
ef þetta hefði ekki farið svo. Ég efast
um að endurupptökunefnd hefði get-
að fundið forsendur til að taka þetta
ekki upp,“ segir Guðjón.
Björn L. Bergsson, formaður
endurupptökunefndar, segir ljóst að
málið sé hið umfangsmesta sem kom-
ið hafi inn á borð nefndarinnar. Því
telst nú lokið af hálfu endurupptöku-
nefndar og segir Björn það nú vera í
höndum ákæruvaldsins og endur-
upptökubeiðenda að halda málinu
áfram.
Guðmundar- og Geirfinnsmálin halda áfram Endurupptökunefnd birti úr-
skurði í gær Samþykkir endurupptöku í öllum málum nema Erlu Bolladóttur
Hátt í 6.000 blaðsíður
» Úrskurðurnir sex í Ǵuð-
mundar- og Geirfinnsmálum
eru samtals um 5.600 bls.
» Fallist var á endurupptöku í
málum fimm sakborninganna.
» Beiðni um endurupptöku er
snýr að dómum er varða rang-
ar sakargiftir var hafnað.
MEndurupptökunefnd »14-16
Morgunblaðið/Golli
Réttlæti Guðjón Skarphéðinsson hlaut 10 ára fangelsisdóm í tengslum við Guðmundar- og Geirfinnsmálin. Mál hans og fjögurra annarra verða tekin upp.
Fimm mál endurupptekin
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Viðgerðarkostnaður síðustu tveggja
ára vegna myglu í veggjum hleypur á
tugum milljarða. Þetta segir Ríkharð-
ur Kristjánsson, byggingarfræðingur
hjá verkfræðistofunni Eflu. Sérfræð-
ingar í byggingariðnaði telja að að-
ferð Íslendinga við einangrun út-
veggja auðveldi myglu að myndast.
Raki myndist þannig innan á veggn-
um en ekki að utan. „Það sem við köll-
um hinn íslenska útvegg er steyptur
veggur sem er einangraður að innan.
Mygluvandamálið er ekki séríslenskt
fyrirbæri en hinn íslenski útveggur er
það,“ segir Ríkharður.
Þekkist ekki erlendis
Karl Björnsson, forstjóri Mann-
virkjastofnunar, segir að einangrun
veggja að innan þekkist varla utan
landsteinana. „Erlendis er þetta nán-
ast ekki þekkt; þar einangra menn
nánast alltaf hús að utan.“ »26
Milljarðatuga skemmdir
Mygla hefur
fundist víða í ís-
lenskum veggjum
Mygla Raki kemst inn í einangrun
útveggs og veldur myglu.