Morgunblaðið - 25.02.2017, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 25.02.2017, Blaðsíða 49
49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017 Miðasala og nánari upplýsingar SÝND KL. 5, 8, 10.30 SÝND KL. 8, 10.30 5% SÝND KL. 8, 10.30 SÝND KL. 5.40SÝND KL. 2, 3.40, 5.45 TILBOÐ KL: 1.45 TILBOÐ KL: 1.45 TILBOÐ KL: 3.40 TILBOÐ KL: 2 SÝND KL. 1.4 , 5.45 SÝND KL. 1.45, 3.50 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Fátt er jafn skemmtilegt og að ræða mátt, megin og gildi popplaga. Fátt er líka jafn tilgangslaust og rökræður um tónlist enda oft og iðulega úti í skurði. Sínum augum lítur hver silfrið. En um leið – eins og við vitum – er fátt meira samein- andi. Einu sinni á ári ertu farinn að rífast við pitsusendilinn um hvort þessi eða hin „hækkunin“ hafi átt rétt á sér og að þessi jakki sem þessi eða hinn var í hafi verið gjör- samlega út úr kú. Samfélagsleg virkni keppninnar sem allir hata að elska og elska að hata er dásamleg. Alltént, hér er mín sýn á lögin sex sem verða flutt í kvöld. Skoðanir eru höfundar. Hvatningar- jafnt sem niðurrifsbréf sendist á tölvu- póstfangið mitt. Bammbaramm Lag og texti: Hildur Kristín Stefánsdóttir Flytjandi: Hildur Lag sem er með fæturna kirfi- lega í nýju árþúsundi. Stjarna Hild- ar fer vaxandi og hún býr að þó- nokkurri reynslu sem tónlistarkona og hefur meira að segja keppt áður í Söngvakeppninni. Hér nýtir hún sjarmann vel, lagið fer rólega af stað, í hálfgerðum ballöðugír en svo springur það út með viðlagi sem límist ansi fast við heilann. Það er ákveðin næfismi í gangi, hálfgert leikskóla-element í „bammbaramm- barambamm“ kaflanum (sem fer smá í taugarnar á mér) en hann gerir þó lagið um leið. En heilt yfir gengur þetta og kallast smávegis á við „I‘ll walk with you“ sem hefur notið töluverðra vinsælda. Ég yrði hissa ef Hildur fer ekki áfram með þetta. Skuggamynd Lag: Erna Mist Pétursdóttir Text: Guðbjörg Magnúsdóttir Flytjandi: Erna Mist Pétursdóttir Falleg, hægstreym ballaða í kunnuglegum – og hæfandi – Eurovision-gír. Einfalt, strípað píanóspil opnar það og fín rödd Ernu leiðir okkur inn. Hún veldur þessu vel, syngur sterkt yfir lág- stemmdu undirspilinu sem verður svo, eðlilega, meira knýjandi eftir því sem á líður. Það er þessi línu- lega hækkun sem er svo einkenn- andi fyrir mörg þessara laga. Hér er hins vegar brotið upp taktískt með dulúðugu og dreymnu píanó- spili. Lokahækkunin kemur svo sterk inn undir endann og slaufað er með píanóinu góða. Þetta er bara ansi líklegt, verður að segj- ast. Til mín Lag og texti: Hólmfríður Ósk Samúelsdóttir Flytjendur: Arnar Jónsson og Rakel Pálsdóttir Ballaða sem siglir um kunnug- legar slóðir. Smekklegur samsöngur hjá Arnari og Rakel, það er gefið sæmilega í þegar brestur á með við- laginu án þess þó að missa sig út í yfirkeyrða væmni. Það er eitthvað „klassískt“ við alla framvindu hér, jafnvel gamaldags og þá á jákvæð- an máta. Stóreflis-lag, nánast þungbúið á köflum og virkilega vel sungið. Nokkurs konar fullorðins- útgáfa af „Skuggamynd“. Veit samt ekki, þetta gæti farið áfram … eða ekki. Er ég ekki vísindalegur í þessu? „Þú skalt syngja lítið lag“ 900 9903 Rakel Pálsdóttir og Arn- ar Jónsson með klassíska ballöðu. Heim til þín Lag: Júlí Heiðar Halldórsson Texti: Júlí Heiðar Halldórsson og Guðmundur Snorri Sigurðarson Flytjendur: Júlí Heiðar Hall- dórsson og Þórdís Birna Borg- arsdóttir Sætt og krúttlegt, fer rólega af stað en umbreytist brátt í OMAM-slagara (Of Monsters And Men), með lögbundnum „voóum“. Dúett þeirra Júlís og Þórdísar er með ágætum, samsöngurinn flottur og einsöngskaflar vel til fundnir. Útsetningin nokk glúrin og upp- byggingin sömuleiðis; OMAM-söng- urinn, brassið og annað skraut kemur inn á hárnákvæmum tíma. Heilt yfir er smíðin þó fullvið- kvæmnisleg, eins og það vanti smá steypu í burðarvirkið. Lagið er nokkurs konar „villt spil“, ég treysti mér ekki alveg til að giska á hvort þetta fari áfram eða sitji eft- ir. Fer eftir því hversu sterkt OMAM-vindarnir blása hjá fólki nú um stundir. Mér við hlið Lag og texti: Rúnar Eff Flytjandi: Rúnar Eff Rúnar keyrir inn í lagið með kraftinum, söngurinn djúpúðgur og sterkviðaður, liggur dálítið utan í kraftballöðum að hætti Foreigner og Journey. Uppbyggingin er nokkurn veginn línulega upp á við og eftir því sem nær dregur lokum hafa fleiri hljóðfæri bæst við og ekkert hamlar epískri skriðunni. Coldplay ef þeir væru að norðan. Lagið endar nokkuð furðulega, líkt og klippt sé á. Rembingurinn er fullmikill í völdum köflum, þó að uppbygging sjálfs lagsins sleppi til, a.m.k. framan af. Nei, ég er ekki sannfærður. Nótt Lag: Sveinn Rúnar Sigurðsson Texti: Ágúst Ibsen Flytjandi: Aron Hannes Emilsson Nútímalegt og í nettum tölvu- poppsgír. Smá Friðrik Dór í söngn- um. Ég fíla hvernig tónlistin hopp- ar og skoppar á gáskafullan hátt í bakgrunninum. Aron gerir vel í söngnum, honum liggur hátt rómur en passar um leið að gæða réttu partana tilfinningu. Enginn remb- ingur, söngurinn er í góðu jafnvægi við smíðina. Einfalt og fislétt á yf- irborðinu sannarlega, en það er lúmskt aðdráttarafl í gangi engu að síður. Þetta áreynsluleysi, léttleik- inn þ.e.a.s., gæti unnið gegn því samt. Sjáum til … Hér verður fyrri skammtur þeirra laga sem keppa um sæti í Söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva tekinn til kostanna. 900 9905 Rúnar Eff flytur kraft- ballöðu úr eigin smiðju. 900 9901 Hildur Kristín Stefáns- dóttir flytur eigið lag og texta. 900 9902 Erna Mist Pétursdóttir flytur hægstreymandi ballöðu. 900 9906 Aron Hannes syngur gáskafullt lag Sveins Rúnars. 900 9904 Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Birna Borgarsdóttir. Söngvakeppnin 2017

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.