Morgunblaðið - 25.02.2017, Side 49
49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Miðasala og nánari upplýsingar
SÝND KL. 5, 8, 10.30 SÝND KL. 8, 10.30
5%
SÝND KL. 8, 10.30 SÝND KL. 5.40SÝND KL. 2, 3.40, 5.45
TILBOÐ KL: 1.45
TILBOÐ KL: 1.45
TILBOÐ KL: 3.40
TILBOÐ KL: 2
SÝND KL. 1.4 , 5.45
SÝND KL. 1.45, 3.50
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Fátt er jafn skemmtilegt og að
ræða mátt, megin og gildi popplaga.
Fátt er líka jafn tilgangslaust og
rökræður um tónlist enda oft og
iðulega úti í skurði. Sínum augum
lítur hver silfrið. En um leið – eins
og við vitum – er fátt meira samein-
andi. Einu sinni á ári ertu farinn að
rífast við pitsusendilinn um hvort
þessi eða hin „hækkunin“ hafi átt
rétt á sér og að þessi jakki sem
þessi eða hinn var í hafi verið gjör-
samlega út úr kú. Samfélagsleg
virkni keppninnar sem allir hata að
elska og elska að hata er dásamleg.
Alltént, hér er mín sýn á lögin sex
sem verða flutt í kvöld. Skoðanir
eru höfundar. Hvatningar- jafnt
sem niðurrifsbréf sendist á tölvu-
póstfangið mitt.
Bammbaramm
Lag og texti: Hildur Kristín
Stefánsdóttir
Flytjandi: Hildur
Lag sem er með fæturna kirfi-
lega í nýju árþúsundi. Stjarna Hild-
ar fer vaxandi og hún býr að þó-
nokkurri reynslu sem tónlistarkona
og hefur meira að segja keppt áður
í Söngvakeppninni. Hér nýtir hún
sjarmann vel, lagið fer rólega af
stað, í hálfgerðum ballöðugír en svo
springur það út með viðlagi sem
límist ansi fast við heilann. Það er
ákveðin næfismi í gangi, hálfgert
leikskóla-element í „bammbaramm-
barambamm“ kaflanum (sem fer
smá í taugarnar á mér) en hann
gerir þó lagið um leið. En heilt yfir
gengur þetta og kallast smávegis á
við „I‘ll walk with you“ sem hefur
notið töluverðra vinsælda. Ég yrði
hissa ef Hildur fer ekki áfram með
þetta.
Skuggamynd
Lag: Erna Mist Pétursdóttir
Text: Guðbjörg Magnúsdóttir
Flytjandi: Erna Mist Pétursdóttir
Falleg, hægstreym ballaða í
kunnuglegum – og hæfandi –
Eurovision-gír. Einfalt, strípað
píanóspil opnar það og fín rödd
Ernu leiðir okkur inn. Hún veldur
þessu vel, syngur sterkt yfir lág-
stemmdu undirspilinu sem verður
svo, eðlilega, meira knýjandi eftir
því sem á líður. Það er þessi línu-
lega hækkun sem er svo einkenn-
andi fyrir mörg þessara laga. Hér
er hins vegar brotið upp taktískt
með dulúðugu og dreymnu píanó-
spili. Lokahækkunin kemur svo
sterk inn undir endann og slaufað
er með píanóinu góða. Þetta er
bara ansi líklegt, verður að segj-
ast.
Til mín
Lag og texti: Hólmfríður Ósk
Samúelsdóttir
Flytjendur: Arnar Jónsson og
Rakel Pálsdóttir
Ballaða sem siglir um kunnug-
legar slóðir. Smekklegur samsöngur
hjá Arnari og Rakel, það er gefið
sæmilega í þegar brestur á með við-
laginu án þess þó að missa sig út í
yfirkeyrða væmni. Það er eitthvað
„klassískt“ við alla framvindu hér,
jafnvel gamaldags og þá á jákvæð-
an máta. Stóreflis-lag, nánast
þungbúið á köflum og virkilega vel
sungið. Nokkurs konar fullorðins-
útgáfa af „Skuggamynd“. Veit samt
ekki, þetta gæti farið áfram … eða
ekki. Er ég ekki vísindalegur í
þessu?
„Þú skalt syngja lítið lag“
900 9903 Rakel Pálsdóttir og Arn-
ar Jónsson með klassíska ballöðu.
Heim til þín
Lag: Júlí Heiðar Halldórsson
Texti: Júlí Heiðar Halldórsson og
Guðmundur Snorri Sigurðarson
Flytjendur: Júlí Heiðar Hall-
dórsson og Þórdís Birna Borg-
arsdóttir
Sætt og krúttlegt, fer rólega
af stað en umbreytist brátt í
OMAM-slagara (Of Monsters And
Men), með lögbundnum „voóum“.
Dúett þeirra Júlís og Þórdísar er
með ágætum, samsöngurinn flottur
og einsöngskaflar vel til fundnir.
Útsetningin nokk glúrin og upp-
byggingin sömuleiðis; OMAM-söng-
urinn, brassið og annað skraut
kemur inn á hárnákvæmum tíma.
Heilt yfir er smíðin þó fullvið-
kvæmnisleg, eins og það vanti smá
steypu í burðarvirkið. Lagið er
nokkurs konar „villt spil“, ég
treysti mér ekki alveg til að giska á
hvort þetta fari áfram eða sitji eft-
ir. Fer eftir því hversu sterkt
OMAM-vindarnir blása hjá fólki nú
um stundir.
Mér við hlið
Lag og texti: Rúnar Eff
Flytjandi: Rúnar Eff
Rúnar keyrir inn í lagið með
kraftinum, söngurinn djúpúðgur og
sterkviðaður, liggur dálítið utan í
kraftballöðum að hætti Foreigner
og Journey. Uppbyggingin er
nokkurn veginn línulega upp á við
og eftir því sem nær dregur lokum
hafa fleiri hljóðfæri bæst við og
ekkert hamlar epískri skriðunni.
Coldplay ef þeir væru að norðan.
Lagið endar nokkuð furðulega, líkt
og klippt sé á. Rembingurinn er
fullmikill í völdum köflum, þó að
uppbygging sjálfs lagsins sleppi til,
a.m.k. framan af. Nei, ég er ekki
sannfærður.
Nótt
Lag: Sveinn Rúnar Sigurðsson
Texti: Ágúst Ibsen
Flytjandi: Aron Hannes
Emilsson
Nútímalegt og í nettum tölvu-
poppsgír. Smá Friðrik Dór í söngn-
um. Ég fíla hvernig tónlistin hopp-
ar og skoppar á gáskafullan hátt í
bakgrunninum. Aron gerir vel í
söngnum, honum liggur hátt rómur
en passar um leið að gæða réttu
partana tilfinningu. Enginn remb-
ingur, söngurinn er í góðu jafnvægi
við smíðina. Einfalt og fislétt á yf-
irborðinu sannarlega, en það er
lúmskt aðdráttarafl í gangi engu að
síður. Þetta áreynsluleysi, léttleik-
inn þ.e.a.s., gæti unnið gegn því
samt. Sjáum til …
Hér verður fyrri
skammtur þeirra laga
sem keppa um sæti í
Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva
tekinn til kostanna.
900 9905 Rúnar Eff flytur kraft-
ballöðu úr eigin smiðju.
900 9901 Hildur Kristín Stefáns-
dóttir flytur eigið lag og texta.
900 9902 Erna Mist Pétursdóttir
flytur hægstreymandi ballöðu.
900 9906 Aron Hannes syngur
gáskafullt lag Sveins Rúnars.
900 9904 Júlí Heiðar Halldórsson
og Þórdís Birna Borgarsdóttir.
Söngvakeppnin 2017