Morgunblaðið - 25.02.2017, Blaðsíða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Óskarsverðlaunin verða af-hent annað kvöld í LosAngeles og meðal þeirrakvikmynda sem flestar til-
nefningar fá er Manchester by the
Sea. Hún er tilnefnd sem besta kvik-
myndin og þrír af aðalleikurum
hennar til verðlauna, þó einn sé tal-
inn aukaleikari sem hann er í raun
ekki, Lucas Hedges, því hlutverk
hans er það veigamikið. Casey Aff-
leck er tilnefndur sem besti leikari í
aðalhlutverki, Michelle Williams
sem besta leikkona í aukahlutverki
og hinn ungi Hedges sem besti leik-
ari í aukahlutverki. Þá er myndin til-
nefnd fyrir bestu leikstjórn og besta
handrit og á Kenneth Lonegran
heiðurinn af hvoru tveggja. Sam-
keppnin er hörð á Óskarnum í ár því
margar stórgóðar kvikmyndir eru
tilnefndar til helstu verðlauna og
kæmi mér ekki á óvart að þessi
kvikmynd hlyti þau nokkur. Hún
hefur þegar hlotið fjölda verðlauna
og þá m.a. Golden Globe fyrir leik
Affleck. Hann þykir einkar líklegur
til að hreppa styttuna af Óskari
frænda og ef svo fer er hann vel að
henni kominn.
Manchester by the Sea er fyrir
margra hluta sakir merkileg og
vönduð kvikmynd og þá sérstaklega
hvað frásagnarstíl Lonegran varðar
en handrit myndarinnar er áberandi
vel skrifað og mikil stúdía um sorg
og missi. Aðalpersónan, Lee Chand-
ler, er húsvörður um fertugt í Bost-
on. Hann er fámáll, á erfitt með
mannleg samskipti og virðist bera
allar byrðar heimsins á herðum sér.
Þegar hann fer einn á krána drekk-
ur hann óhóflega og ræðst sauð-
drukkinn á næsta mann. Þetta er
fremur ógeðfelldur náungi en end-
urlit til fortíðar sýna allt annan
mann, spaugsaman og elskulegan
fjölskylduföður í strandbænum
Manchester, skammt frá Boston. Í
nokkrum endurlitanna er hann í
félagsskap eldri bróður síns, Joe, og
sonar hans Christopher, sem er um
tíu ára aldur. Þeir eiga góðar stund-
ir við veiðar á báti sem er í eigu Joe.
Um sex árum síðar deyr Joe og
Lee snýr aftur til Manchester. Þar
er honum tilkynnt, við lestur erfða-
skrár bróður síns, að honum hafi
verið falin forsjá með Christopher
sem er orðinn 16 ára. Lee verður
miður sín við þessar fréttir, getur
ekki hugsað sér að taka þetta
ábyrgðarfulla hlutverk að sér og
skal engan undra því um leið fá
áhorfendur að vita hver ástæðan er,
í hreint ótrúlega sorglegu og há-
dramatísku endurlitsatriði. Í ljós
kemur að Lee upplifði einhverja
verstu mögulegu martröð sem hugs-
ast getur og hefur ekki beðið þess
bætur. Tíminn virðist ekki geta
grætt þau sár og það sem eftir lifir
kvikmyndar fá áhorfendur að sjá
hvernig Lee tekst á við fráfall bróð-
ur síns, hið nýja hlutverk forráða-
manns og samskipti hans við táning-
inn Christopher sem virðist ekki
átta sig fyllilega á því að faðir hans
sé látinn. Til að létta á dramtíkinni,
sem einkennir kvikmyndina að
mestu, eru þau samskipti oft spaugi-
leg og falleg.
En stóra spurningin seinni hlutar
myndar er hvort Lee takist að losna
úr sínu andlega fangelsi og njóta
lífsins á ný. Hann kýs að lifa en
spurningin er af hverju. „Ég get
ekki sigrast á því,“ segir hann við
frænda sinn í einu af mörgum há-
dramatískum atriðum og vísar þar
til hins skelfilega áfalls sem hann
varð fyrir og reynist honum of þung-
ur djöfull að draga.
Manchester by the Sea er áhrifa-
mikil kvikmynd og situr lengi í
manni. Hún er hugleiðing um harm
og afleiðingar skelfilegs áfalls og
fjallar um leið um hversu brothætt
tilveran getur verið. Ein röng
ákvörðun eða andartaks hugsunar-
leysi getur breytt lífi okkar varan-
lega og jafnvel gert það óbærilegt.
Hvernig fólk tekst svo á við slík áföll
er auðvitað persónubundið og kýs
Lonegran þá leið að láta aðalleik-
arann, Affleck, leika lágstemmt, ef
svo mætti kalla, forðast allar ýkjur.
Lee er bældur og lokaður, hleypir
engum að sér og leitar sér aldrei
hjálpar. Ég geri ráð fyrir að hlut-
verkið hafi verið bæði erfitt og flókið
að takast á við og Affleck leysir það
vel af hendi. Ekki er síður krefjandi
hlutverk Michelle Williams sem
leikur Randi, fyrrverandi eiginkonu
Lee. Williams hefur áður sýnt mikil
tilþrif sem leikkona og þá ekki síst í
dramatískum hlutverkum, m.a. í
Brokeback Mountain og Blue Val-
entine. Í einu atriði Manchester by
the Sea hittast Lee og Randi fyrir
tilviljun úti á götu og þar sýna Aff-
leck og Williams stórleik. Þeir sem
ekki tárast yfir því eru með undar-
lega harðan skráp. Aðrir helstu leik-
arar myndarinnar eru líka stór-
góðir, Lucas Hedges í hlutverki
Christophers og Gretchen Mol í
hlutverki Elise, fyrrverandi eig-
inkonu Joe, þá sérstaklega. Frá-
sögnin einkennist af miklu raunsæi,
samtöl eru trúverðug líkt og helstu
persónur. Lonegran hefur greini-
lega mjög góð tök á því að stýra
leikurum.
Nokkur atriði hefðu þó mátt
missa sín í seinni hluta kvikmyndar-
innar, atriði sem mér þótti litlu bæta
við söguna og í raun vera óþörf. Það
breytir því þó ekki að Manchester
by the Sea er mjög áhugaverð kvik-
mynd, vel skrifuð og klippt og áber-
andi vel leikstýrt.
Þá ber einnig að nefna tónlistina
sem er undurfalleg og á köflum há-
dramatísk, bæði sú frumsamda eftir
Lesley Barber og önnur tónverk,
sérstaklega hið þekkta Adagio per
archi e organo in sol minore eftir
Tomaso Albinoni, í flutningi Lund-
únafílharmóníunnar, sem ómar und-
ir átakanlegasta atriði kvikmyndar-
innar. Það verk eitt og sér ætti að
kalla fram tár á hvörmum bíógesta –
enda oft flutt í jarðarförum – að
maður tali nú ekki um þegar það
fléttast við hryllinginn sem birtist
manni á hvíta tjaldinu. Það er leitun
að harmþrungnara atriði í kvikmynd
hin síðustu ár.
Bræðrakærleikur Kyle Chandler og Casey Affleck í hlutverkum bræðranna
Joe og Lee í Manchester by the Sea sem tilnefnd er til sex Óskarsverðlauna.
Þungur djöfull að draga
Smárabíó, Háskólabíó
og Borgarbíó
Manchester by the Sea bbbbn
Leikstjóri og handritshöfundur: Ken-
neth Lonegran. Aðalleikarar: Casey Af-
fleck, Kyle Chandler, Lucas Hedges og
Michelle Williams.
Bandaríkin, 2016. 137 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Tónleikaröð norðlenskra kvenna í
tónlist naut mikilla vinsælda sl.
haust og munu tónlistarkonurnar
sem komu fram í henni stíga á svið
Hamraborgar í Menningarhúsinu
Hofi í kvöld kl. 20 og flytja brot af
því besta úr röðinni. Norðlenskar
konur í tónlist eru hópur kvenna
sem starfað hefur saman frá árinu
2015 og eru konurnar félagskonur
KÍTÓN.
Syngur Kristjana Arngrímsdóttir er ein
tónlistarkvennanna sem verða í Hofi.
Það besta í Hofi
Back to School nefnist sýning á nýj-
um verkum myndlistarmannsins
Helga Þórssonar sem opnuð verður
í sýningarrýminu Listamenn,
Skúlagötu 32, í dag kl. 17. Á henni
sýnir Helgi klassíska skúlptúra úr
ýmsum efniviði, m.a. keramíki og
steypu en einnig má finna tvívíð
verk og glæný húsgögn.
„Á sýningunni eru aðallega ný
verk sem unnin voru í síðasta mán-
uði meðfram kennslu í LHÍ, þar
hefur Helgi ásamt Jóhönnu Krist-
björgu verið með kúrs og kynnst
skólalífi á Íslandi,“ segir m.a. í til-
kynningu.
Helgi er fæddur í Reykjavík árið
1975. Hann hlaut BFA-gráðu í
myndlist frá Gerrit Rietfeld-aka-
demíunni í Amsterdam árið 2002,
nam sónólógíu í Konunglegu Kon-
servatoríunni í Haag og hlaut árið
2004 MFA-gráðu frá Sandberg-
stofnuninni í Amsterdam. Hann
hefur haldið fjölda einka- og sam-
sýninga hér á landi og erlendis.
Aftur í skólann með Helga Þórssyni
Forvitnilegt Verk af sýningunni Back
to School sem verður opnuð í dag.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Lau 25/2 kl. 20:00 157. s Lau 22/4 kl. 20:00 161. s Fös 19/5 kl. 20:00 165. s
Lau 8/4 kl. 20:00 158. s Fös 28/4 kl. 20:00 162. s Lau 20/5 kl. 20:00 166. s
Þri 11/4 kl. 20:00 159. s Lau 6/5 kl. 20:00 163. s
Mið 19/4 kl. 20:00 160. s Fös 12/5 kl. 20:00 164. s
Glimmerbomban heldur áfram!
Úti að aka (Stóra svið)
Mið 1/3 kl. 20:00 Fors. Fös 10/3 kl. 20:00 aukas. Mið 22/3 kl. 20:00 8. sýn
Fim 2/3 kl. 20:00 Fors. Lau 11/3 kl. 20:00 4. sýn Fös 24/3 kl. 20:00 aukas.
Fös 3/3 kl. 20:00 Fors. Sun 12/3 kl. 20:00 5. sýn Lau 25/3 kl. 20:00 9. sýn
Lau 4/3 kl. 20:00 Frums. Fös 17/3 kl. 20:00 6. sýn Sun 26/3 kl. 20:00 10. sýn.
Sun 5/3 kl. 20:00 2. sýn Lau 18/3 kl. 20:00 aukas. Fim 30/3 kl. 20:00 aukas.
Fim 9/3 kl. 20:00 3. sýn Sun 19/3 kl. 20:00 7. sýn Fös 31/3 kl. 20:00 aukas.
Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir.
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Lau 25/2 kl. 13:00 34. s Sun 19/3 kl. 13:00 37. s Lau 8/4 kl. 13:00 40. s
Sun 5/3 kl. 13:00 35. s Sun 26/3 kl. 13:00 38. s Sun 23/4 kl. 13:00 41. s
Sun 12/3 kl. 13:00 36. s Lau 1/4 kl. 13:00 39. s Sun 30/4 kl. 13:00 42. s
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Lau 25/2 kl. 13:00 7. sýn Lau 4/3 kl. 13:00 9. sýn Sun 19/3 kl. 13:00 Táknmáls.
Sun 26/2 kl. 13:00 8. sýn Sun 5/3 kl. 13:00 10. sýn
Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna.
Illska (Litla sviðið)
Fim 2/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 20:00
Fös 3/3 kl. 20:00 Lau 11/3 kl. 20:00
Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar - Aðeins þessar sýningar
Fórn (Allt húsið)
Fim 16/3 kl. 19:00 Frums. Mið 29/3 kl. 19:00 3. sýn Sun 9/4 kl. 19:00 5 sýn
Fim 23/3 kl. 19:00 2. sýn Sun 2/4 kl. 19:00 4. sýn
Sköpunarkrafturinn ræður ríkjum um allt leikhúsið
Salka Valka (Stóra svið)
Sun 26/2 kl. 20:00 18.sýn
Ein ástsælasta saga þjóðarinnar. Síðasta sýning.
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Þri 21/3 kl. 10:00 Mið 22/3 kl. 11:30 Fim 23/3 kl. 13:00
Þri 21/3 kl. 11:30 Mið 22/3 kl. 13:00 Fös 24/3 kl. 10:00
Þri 21/3 kl. 13:00 Fim 23/3 kl. 10:00 Fös 24/3 kl. 11:30
Mið 22/3 kl. 10:00 Fim 23/3 kl. 11:30
Uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í.
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Lau 4/3 kl. 19:30 aukasýn Lau 11/3 kl. 19:30 aukasýn
Síðustu sýningar!
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Lau 4/3 kl. 19:30 Lau 11/3 kl. 19:30
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Óþelló (Stóra sviðið)
Lau 25/2 kl. 19:30 Fös 3/3 kl. 19:30 Fös 17/3 kl. 19:30
Sýningum lýkur í mars!
Gott fólk (Kassinn)
Lau 25/2 kl. 19:30 Fös 3/3 kl. 19:30 aukasýn
Síðustu sýningar!
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 26/2 kl. 13:00 Sun 12/3 kl. 13:00 Sun 26/3 kl. 13:00
Sun 26/2 kl. 16:00 Sun 12/3 kl. 16:00 Sun 26/3 kl. 16:00
Sun 5/3 kl. 13:00 Sun 19/3 kl. 13:00 Sun 2/4 kl. 13:00
Sun 5/3 kl. 16:00 Sun 19/3 kl. 16:00 Sun 2/4 kl. 16:00
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 25/2 kl. 20:00 Lau 4/3 kl. 22:30 Fim 16/3 kl. 20:00
Lau 25/2 kl. 22:30 Fim 9/3 kl. 20:00 Fös 17/3 kl. 20:30
Fim 2/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 20:00 Fös 17/3 kl. 23:00
Fös 3/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 22:30 Lau 18/3 kl. 20:00
Fös 3/3 kl. 22:30 Lau 11/3 kl. 20:00 Lau 18/3 kl. 22:30
Lau 4/3 kl. 20:00 Lau 11/3 kl. 22:30 Fim 23/3 kl. 20:30
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Húsið (Stóra sviðið)
Fös 10/3 kl. 19:30 Frums Fös 24/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 31/3 kl. 19:30 7.sýn
Fim 16/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 25/3 kl. 19:30 5.sýn
Lau 18/3 kl. 19:30 3.sýn Fim 30/3 kl. 19:30 6.sýn
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Fös 24/3 kl. 19:30 Frums Þri 4/4 kl. 19:30 6.sýn Fös 21/4 kl. 19:30 11.sýn
Lau 25/3 kl. 19:30 2.sýn Fim 6/4 kl. 19:30 7.sýn Lau 22/4 kl. 19:30
Mið 29/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 7/4 kl. 19:30 8.sýn Fim 27/4 kl. 19:30
Fim 30/3 kl. 19:30 4.sýn Sun 9/4 kl. 19:30 9.sýn
Fös 31/3 kl. 19:30 5.sýn Mið 19/4 kl. 19:30 10.sýn
Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 1/3 kl. 20:00 Mið 15/3 kl. 20:00 Mið 29/3 kl. 20:00
Mið 8/3 kl. 20:00 Mið 22/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS