Morgunblaðið - 25.02.2017, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Melia Benidorm
1. – 9. apríl | 10 nætur
Verð frá:79.900 kr.
og 12.500 Vildarpunktar.
Á mann m.v. 2 í herbergi með hálfu fæði.
Verð án Vildarpunkta: 89.900 kr.
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Orsök þess að Jón Hákon BA fórst
við Aðalvík í júlí 2015 var að vél-
báturinn var ofhlaðinn og með við-
varandi stjórnborðshalla. Leiddi
þetta til þess að í veltingi átti sjór
greiða leið inn á þilfar hans, bæði yfir
lunningu og um lensport. Kemur
þetta fram í skýrslu nefndarinnar
um slysið. Einn fórst í slysinu og
þremur var bjargað.
Þar segir enn fremur að lensibún-
aður í lest Jóns Hákonar hafi ekki
virkað vegna óhreininda í síu og að
lestarlúgukarmur hafi verið óþéttur.
Nefndin gagnrýnir harðlega
ástand annars tveggja björgunar-
báta vélbátarins. Sleppiloki stærri
gúmmíbjörgunarbátsins virkaði ekki
sem skyldi vegna skakks átaks milli
lykkju og kólfs í sleppibúnaðnum og
sökk hann því með Jóni Hákoni.
Minni báturinn losnaði frá þegar Jón
Hákon tók að sökkva, eftir að honum
hafði hvolft. Báturinn hélst þó undir
Jóni Hákoni og komst ekki frá fyrr
en vélbáturinn snerist við á niður-
leið. Þá var hann kominn of djúpt til
að báturinn blési út. jbe@mbl.is
Jón Hákon óvarinn veltingi
Rannsóknar-
nefnd setur út á
öryggisbúnað
Morgunblaðið Halldór Sveinbjörnsson
Jón Hákon Flakið var rannsakað í fjörunni við Suðurtanga á Ísafirði.
Meirihluti skóla-
og frístundaráðs
Reykjavíkur-
borgar felldi til-
lögur fulltrúa
Sjálfstæðis-
flokksins, Kjart-
ans Magnússonar
og Mörtu Guð-
jónsdóttur, um að
niðurstöður síð-
ustu PISA-
könnunar verði sundurgreindar og
sendar stjórnendum skóla borgar-
innar.
„Við búum við þá sérstöðu að öll
börn taka þessa könnun og við eig-
um að nýta okkur það til að efla og
bæta skólastarf í borginni,“ segir
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
Í rökstuðningi meirihlutans segir
að prófið skili meðaltölum fyrir ein-
staka skóla sem séu skv. umsögn
Menntamálastofnunar afar óná-
kvæm og vart marktæk.
„Deilt er um gagnsemi prófanna
fyrir einstaka skóla en ég tel að við
eigum að treysta því fagfólki sem
rekur og stjórnar skólum borgar-
innar til að meta þær upplýsingar
sem prófið gefur,“ segir Kjartan og
bendir jafnframt á að margir skóla-
stjórar vilji fá niðurstöðurnar fyrir
sinn skóla.
„Mörg sveitarfélög landsins reka
bara einn skóla og fá því í raun að sjá
árangur sinna nemenda.“
Vilja birta
niðurstöð-
ur PISA
Kjartan
Magnússon
Skólastjórar vilja
niðurstöðurnar
Samherji hefur
selt einn togara
sinna, Oddeyrina
EA 210, en geng-
ið hefur verið frá
kaupum norsks
fyrirtækis á skip-
inu. Að sögn
Kristjáns Vil-
helmssonar, út-
gerðarstjóra
skipsins, er salan
hluti af endurnýjun skipaflotans, en
tvö ný skip eru nú í byggingu og eitt
þegar á leið til landsins, nýr Kald-
bakur EA 1. Hann segir að utan
aldursmunarins á skipunum sé sá
reginmunur að Oddeyrin sé frysti-
togari en Kaldbakur sé ísfisktogari.
Samherji selur
Oddeyrina
Oddeyrin Flotinn
endurnýjaður.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Veðrið á höfuðborgarsvæðinu náði
hámarki rétt fyrir klukkan þrjú í
gær og mældust vindhviður í kring-
um 30 m/s úti fyrir Reykjavíkurflug-
velli um það leyti. Í jaðri borgarinn-
ar og utan hennar mældist vindur
meiri, en á Reykjanesbraut fóru
vindhviður upp undir 40 m/s og und-
ir Hafnarfjalli fór vindur í verstu
hviðunum upp í allt að 47 m/s.
Þegar lægja tók á suðvesturhorni
landsins upp úr miðjum degi fór að
bæta í vind fyrir norðan og austan
en hvassast var þó á norðvestan-
verðu landinu í gærkvöldi.
Vegum lokað við borgina
Að sögn lögreglunnar á Suður-
nesjum voru afar fáir á ferli þegar
veðrið var sem verst í gær. Þá var
Reykjanesbrautinni og Grindavíkur-
vegi lokað um hádegi en Vegagerðin
opnaði aftur fyrir umferð á þessa
vegi rétt fyrir klukkan fjögur í gær.
Fresta þurfti fimm flugferðum sem
fara áttu frá Keflavíkurflugvelli á
þessum tíma og lá allt innanlands-
flug niðri í gær vegna veðurs.
Hellisheiði, Mosfellsheiði, Lyng-
dalsheiði, Nesjavallavegur og þjóð-
vegurinn um Kjalarnes voru allir
lokaðir um miðjan dag í gær. Þá lok-
aði Vegagerðin fjölmörgum vegum á
landinu öllu, m.a. veginum um Sand-
skeið, Þrengslin og Suðurlandsveg
milli Hvolsvallar og Víkur í Mýrdal.
Björgunarsveitir til aðstoðar
Þorsteinn G. Gunnarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsbjargar, sagði í
samtali við mbl.is í gær að á annað
hundrað björgunarsveitarmenn
hefðu verið kallaðir út til að sinna
verkefnum á Suðurlandi, Suðurnesj-
um og á höfuðborgarsvæðinu og ná-
grenni í gær, en eitthvað var um að
bílar fykju út af vegum og nokkuð
var um fok á lausamunum.
„Björgunarsveitir hafa verið tölu-
vert að aðstoða ökumenn bíla sem
hafa fokið út af,“ segir Þorsteinn.
„Lokunaraðgerðirnar og þessi mikla
upplýsingagjöf í gær hefur hins veg-
ar dregið verulega úr óþarfa um-
ferð.“
Að sögn Þorsteins voru á milli 140
og 150 björgunarsveitarmenn að
sinna veðurtengdum verkefnum
þegar mest lét í gær. Tengdust
verkefnin bæði lokun vega og al-
mennri aðstoð. Hann sagði þó ekki
svo mikið um að lausamunir hefðu
fokið, mun meira hefði verið um að
björgunarsveitirnar væru að sinna
vegaaðstoð.
Rútur og sjúkrabíll út af
Sjúkrabíll fauk út af veginum við
Bláfjallaafleggjarann, í nágrenni við
gömlu námurnar, nokkru eftir há-
degi í gær. Sjúkrabíllinn hafði verið
kallaður út vegna rútu með ferða-
menn sem rann til á veginum og
festist. Að sögn slökkviliðsins á höf-
uðborgarsvæðinu slasaðist enginn
farþegi rútunnar. Tveir sjúkrabílar
voru sendir á vettvang og vildi ekki
betur til en svo að annar fauk út af,
en enginn slasaðist.
Þá valt rúta með 15 manns rétt
við Freysnes í Öræfasveit. Meiðsli á
fólki voru minniháttar. Tvær rútur
til viðbótar lentu einnig í vandræð-
um og var fólk í þeim flutt á Hótel
Skaftafell.
Morgunblaðið/RAX
Óveður Kalla þurfti út björgunarsveitarmenn til að loka vegum og aðstoða ökumenn bíla sem fokið höfðu út af vegum.
Vegir lokaðir til allra átta
Loka þurfti vegum allt í kringum höfuðborgina í gær meðan mesta óveðrið gekk
yfir Björgunarsveitir kallaðar út til að sinna lokunum og aðstoða vegfarendur