Morgunblaðið - 25.02.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Tatrafjöllin,Kraká&Prag
sp
ör
eh
f.
Sumar 10
Paradís Tatrafjalla í Slóvakíu, Kraká í Póllandi og gullborgin
Prag í Tékklandi eru meðal hápunkta í þessari glæsilegu
ferð. Menning, saga og náttúrufegurð fara hér saman
og láta engan ósnortinn. Við heimsækjum meðal annars
Vínarborg, hið sögufræga landsvæðið Spiš, kynnum okkur
Lubovna kastala, reynum skemmtilega prammasiglingu á
ánni Dunajec og skoðum ævintýraborgina Kraká.
4. - 18. ágúst
Fararstjóri: Pavel Manásek
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 288.800 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Þingmenn Framsóknarflokksinshafa lagt fram þingsályktunar-
tillögu um opnun neyðarbrautar-
innar á Reykjavíkurflugvelli. Til-
lagan gengur út á að samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra verði falið
að beita sér fyrir því að brautin
verði opnuð svo fljótt sem verða
megi.
Í greinargerð með tillögunni erbent á að Reykjavíkurflugvöllur
gegni lykilhlutverki sem miðstöð
innanlandsflugs og hafi þannig
verulega þýðingu fyrir samgöngu-
öryggi þjóðarinnar. „Flugvöllurinn
er einnig afar mikilvægur fyrir
sjúkraflug með sjúklinga af lands-
byggðinni á Landspítalann. Eina
hátæknisjúkrahús landsins er stað-
sett í Reykjavík og því er nauðsyn-
legt að tryggja eins vel og auðið er
að leið sjúklinga af landsbyggðinni
til höfuðborgarinnar sé ávallt
greið. Reglulega kemur upp sú
staða að veðurskilyrði og færð á
flugbrautum Reykjavíkurflugvallar
eru þannig að einungis er hægt að
lenda á neyðarbraut vallarins,“
segir í greinargerðinni.
Þar er einnig bent á að stjórnFlugmálafélags Íslands og sér-
fræðingar í flugmálum hafi skorað
á yfirvöld að opna brautina á ný af
öryggisástæðum, og minnt á nokk-
ur tilvik þar sem ekki hafi verið
hægt að lenda sjúkraflugvél á vell-
inum, þar með talið tilvik síðla árs í
fyrra.
Borgaryfirvöld sýna því enganskilning að í Reykjavík þurfi
að vera flugvöllur og alls ekki að
hann þurfi að gagnast við sem flest-
ar veðuraðstæður. Borgarbúar og
aðrir landsmenn hafa hins vegar
skilning á þessu og það hlýtur Al-
þingi einnig að hafa.
STAKSTEINAR
Tímabær tillaga
Veður víða um heim 24.2., kl. 18.00
Reykjavík 5 rigning
Bolungarvík 2 alskýjað
Akureyri 4 rigning
Nuuk -14 skýjað
Þórshöfn 2 rigning
Ósló 0 heiðskírt
Kaupmannahöfn 1 léttskýjað
Stokkhólmur 0 heiðskírt
Helsinki -6 skúrir
Lúxemborg 4 skúrir
Brussel 6 léttskýjað
Dublin 3 skýjað
Glasgow 6 rigning
London 7 léttskýjað
París 8 léttskýjað
Amsterdam 6 léttskýjað
Hamborg 5 léttskýjað
Berlín 3 léttskýjað
Vín 9 skýjað
Moskva 0 snjóél
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 16 léttskýjað
Barcelona 12 rigning
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 12 rigning
Aþena 16 léttskýjað
Winnipeg -14 léttskýjað
Montreal 2 alskýjað
New York 17 heiðskírt
Chicago 5 þoka
Orlando 23 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
25. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:48 18:34
ÍSAFJÖRÐUR 8:59 18:33
SIGLUFJÖRÐUR 8:43 18:15
DJÚPIVOGUR 8:19 18:02
Borgarráð hefur samþykkt kauptil-
boð í eignina Þingholtsstræti 25, sem
jafnan hefur verið kallað Farsóttar-
húsið. Kaupverðið er 220 milljónir
króna. Kaupandinn er félagið Sjö-
stjarnan ehf. og undir kaupsamning-
inn ritar Skúli Gunnar Sigfússon,
gjarnan kenndur við veitingastaða-
keðjuna Subway.
Fram kemur í bréfi Hrólfs Jóns-
sonar, yfirmanns skrifstofu eigna og
atvinnuþróunar, sem lagt var fyrir
borgarráð, að eignin var auglýst með
áberandi hætti í dagblöðum og bár-
ust tvö tilboð, það hærra kr. 220
milljónir frá Sjöstjörnunni ehf.
Einnig kemur fram í bréfinu að
gengið verði frá kaupsamningi um
eignina að Þingholtsstræti 25 og 186
fermetra byggingarrétti að Þing-
holtsstræti 25b, þegar deiliskipulag
fyrir Grundarstígsreit hafi tekið
gildi.
Fyrirvari sé í tilboðinu um að
fyrirliggjandi deiliskipulagstillaga
verði samþykkt auk hefðbundinna
fyrirvara um fjármögnun. Sú kvöð
verður sett í kaupsamning að öll
skammtímagisting sé bönnuð í hús-
inu og verður þeirri kvöð þinglýst.
Við kaupsamning verða greiddar 160
milljónir í peningum og 60 milljónir
verða greiddar samhliða útgáfu af-
sals þremur mánuum eftir afhend-
ingu eignar.
Þingholtsstræti 25 er veglegt hús,
reist af Sjúkrahúsfélagi Reykjavíkur
á árunum 1882-1884 úr timbri og
stendur á hlöðnum kjallara. Húsið er
klætt með bárujárni. Eignin er skráð
563 fermetrar. Helgi Helgason, tré-
smiður og tónskáld, teiknaði húsið.
Fyrsti spítalinn í borginni
Talið er að þetta sé fyrsta húsið
sem byggt er á Íslandi gagngert sem
spítali. Það var aðalsjúkrahús borg-
arinnar til ársins 1902, þegar Landa-
kotsspítali tók til starfa. Þá var húsið
gert að farsóttarsjúkrahúsi fyrir þá
sjúklinga sem þurftu að vera í ein-
angrun. Síðustu áratugina var húsið
gistiskýli fyrir útigangsmenn.
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Farsóttarhúsið Tilkomumikil bygging á besta stað í miðborg Reykjavíkur.
Með í kaupunum fylgir 186 fm byggingarréttur á lóðinni fyrir ofan húsið.
Farsóttarhúsið
selt á 220 milljónir
Sjöstjarnan ehf. keypti eignina
Fulltrúar Orkustofnunar Noregs fjalla um orkustefnu til
ársins 2030 í fyrirlestri í tilefni af 50 ára afmæli Orku-
stofnunar. Þeir skýra meðal annars hvers vegna Norð-
menn hafa fallið frá því að gera rammaáætlun um orku-
framkvæmdir og hafa tekið upp nýtt fyrirkomulag.
Rammaáætlun hér á landi á sér fyrirmynd í norsku
reglunum.
Stórþingið ákvað að breyta leyfisveitingaferlinu
vegna þess að búið er að safna miklum upplýsingum um
umhverfisáhrif virkjana og vegna þeirrar stefnumörk-
unar að nýta samkeppnisforskotið sem landið hefur til
nýtingar og útflutnings endurnýjanlegrar orku, að því
er fram kemur í fréttum á vef Orkustofnunar.
Yfirskrift fyrirlestrarins er: Orka til breytinga. Hlutur vindorku og
vatnsorku í orkustefnu Noregs til 2030 – Auðlindir, kostnaður og leyf-
isveiting. Fyrirlesturinn verður næstkomandi miðvikudag, 1. mars, kl. 15.
Skráning er á vef Orkustofnunar, os.is.
Af hverju falla Norðmenn frá rammanum?
Stöð Norska kerfið
var fyrirmyndin hér.