Morgunblaðið - 25.02.2017, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
ÖFLUG LAUSN VIÐ HÁLSBÓLGU!
Bólgueyðandi og verkjastillandi
munnsogstafla við særindum í hálsi
Nýtt
Strefen 8,75 mg munnsogstöflur og Strefen Orange 8,75 mg Sukkerfri, munnsogstöflur. Innihalda flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga tímabundið úr særindum í hálsi hjá fullorðnum og börnum eldir en 12 ára. Sjúga skal eina munnsogstöflu rólega og láta leysast
upp í munni á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, mest 5 töflur á sólahring. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en í 3 sólarhringa. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
HUNANGS
OG SÍTRÓNU-
BRAGÐI
APPELSÍNU-
BRAGÐ
SYKURLAUST
Morgunblaðið/Eggert
Við vinnuna Margrét Oddný á vinnustofu sinni í Íshúsi Hafnarfjarðar.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Margrét Oddný Leópolds-dóttir textílhönnuðurhannar heimilisvörurog grafíkverk undir
merkinu Gola & Glóra og heldur
námskeið í alls konar handverki og
hönnun og býðst einnig til að kenna
ungmennum að reikna. Stærðfræði-
kennslan er hálfgerð aukabúgrein,
auglýst í með smáu letri neðst á vef-
síðunni www.gola.is, sem að öðru
leyti er helguð hennar aðalstarfi.
„Stærðfræði hefur alltaf legið
vel fyrir mér og reyndar allri minni
fjölskyldu, þótt við séum flest meira
og minna lesblind,“ svarar hún blátt
áfram. En sleppur ekki við frekari
skýringar. Áfram er spurt. „Ég ólst
upp í vegasjoppu og kunni að reikna
áður en ég lærði að lesa og byrjaði í
skóla, sex ára gömul. Þá var ég farin
að afgreiða, taka við peningum og
gefa til baka eins og ekkert væri. Í þá
daga borguðu allir í beinhörðum pen-
ingum. Þegar ég fór síðan í heima-
vistarskóla aðstoðaði ég skólafélaga
mína við heimadæmin og hef æ síðan
annað slagið kennt krökkum stærð-
fræði ásamt efnafræði og tölfræði.“
Upp úr dúrnum kemur að vega-
sjoppan er Hreðavatnsskáli, sem
foreldrar hennar ráku árum saman.
Hraunið allt um kring með hrein-
dýramosa á hverri þúfu varð henni
síðar innblástur í textíl, hitaplatta úr
tré og alls kyns hluti. „Nærsýn og
gleraugnalaus var ég alltaf með and-
litið ofan í sverðinum og mynstrið
greyptist í minnið,“ útskýrir hún og
brosir. Hugrenningatengsl við
æskustöðvarnar áttu síðar eftir að
speglast í mörgum hennar verka.
Læknisfræði og teikningar
Í fyllingu tímans fluttist nær-
sýna afgreiðslumærin suður, hóf
nám í læknisfræði og útskrifaðist
1993. Hún starfaði sem læknir í sex
ár, lengst af á meinafræðideild
Landspítalans, en stefndi á meist-
aranám í læknisfræðilegum teikn-
ingum í Torontó í Kanada.
„Í starfinu þurfti ég oft að lýsa
því sem fyrir augu bar, hvort sem
það voru sýni, krufning eða smásjár-
skoðun á líffæri. Kollegarnir sáu mig
stundum teikna í vinnunni og báðu
mig sumir um að myndskreyta vís-
indagreinar sem þeir ætluðu að
birta. Mér fannst þetta skemmtilegt,
enda alltaf haft mikinn áhuga á
kennslu og kennsluefnisgerð. Námið
í Torontó snerist fremur um miðlun
en að læra að teikna og því þurftu
umsækjendur að sýna fram á að þeir
kynnu eitthvað fyrir sér og skila
teikningum. Ég hóf nám í Mynd-
lista- og handíðaskólanum til að und-
irbúa mig, en stuttu síðar gripu ör-
lögin í taumana og ég fór hvergi.“
Margrét veiktist af liðagigt,
svaraði illa meðferð og neyddist til
að hætta að vinna á Landspít-
alanum. „Til að halda geðheilsunni
hélt ég áfram í Myndlista- og hand-
íðaskólanum, sem breyttist reyndar
í Listaháskóla Íslands á meðan ég
var í námi. Ég var í textíldeildinni,
en sikksakkaði líka svolítið á milli
deilda og útskrifaðist 2001. Skóla-
stjórnendur voru afskaplega al-
mennilegir, leyfðu mér að taka upp
fyrirlestra og þvíumlíkt og mamma,
sem var mikil listakona í höndunum,
gerði nokkur verkanna sem ég hann-
aði.“
Landið fer að rísa
Margrét var vel í sveit sett, bjó í
miðbæ Reykjavíkur og bauð lista-
mönnum að sýna verk sín í þeim
gluggum á húsinu sínu sem sneru að
Vatnsstíg, aukinheldur sem hún tók
nemendur í stærðfræðitíma. Árið
2005 þegar ný líftæknilyf komu til
sögunnar fór landið að rísa. „Lyfin
breyttu lífi mínu. Ég prófaði að
kenna á stuttum námskeiðum í
textílprenti og mynsturgerð í fata-
hönnunardeild LHÍ og þá kviknaði
hjá mér löngun til að hanna mínar
eigin vörur. Einnig skipti sköpum að
stofnað hafði verið fyrirtæki sem
sérhæfði sig í að prenta á textíl svo
ég þurfti ekki að handprenta sjálf –
bara hanna vörurnar, sem fyrst í
stað voru löberar og dúkar.“
Þótt Margrét sé enn með skerta
starfsorku hefur hún ekki látið deig-
an síga. „Þar sem ég á hvorki maka
né börn snýst líf mitt um að hanna.
Ég elska það sem ég er að gera,“
segir hún.
Svarið er nei, þegar hún er
spurð hvort hönnun sé ekki býsna
ólík þeim starfsvettvangi, sem hún
upphaflega ætlaði sér; læknisfræð-
inni og læknisfræðilegum teikn-
ingum. „Flestir aðrir en læknar eru
efalítið þeirrar skoðunar. Hvort
tveggja er sjónrænt og í mínum
huga nátengt. Læknar eru oft mjög
listrænir, sumir eru til dæmis mikið í
tónlist eða mála í frístundum. Kunn-
ingjar mínir í stéttinni skildu enda
mjög vel þegar ég sagði þeim að ég
ætlaði í listnám. Margir sögðust hafa
átt sér þann draum. Raunar finnst
mér allt sem ég geri nátengt,
kannski vegna þess að það er allt að
gerast í höfðinu á mér sjálfri.“
Margrét stofnaði Golu & Glóru
árið 2013 og er bæði með vinnustofu
heima hjá sér og í Íshúsi Hafnar-
fjarðar, þar sem henni bauðst pláss í
hittifyrra eftir að hafa verið þar eins
og grár köttur, eins og hún segir, um
nokkurt skeið. Hún lýkur lofsorði á
starfsemina og stemninguna í hús-
inu þar sem listamenn læra hver af
öðrum á opnum vinnustofum. Sjálf
býr hún í grenndinni, sem henni
finnst afar heppilegt. „Ég skipti
nánast bara við hafnfirsk fyrirtæki.
Hér er hægt að láta leyserskera,
vatnsskera, málmsteypa og prenta
svo fátt eitt sé talið.“
Björg í bú og pelastikk
Margrét er líka alsæl að vera
nálægt hafinu. Hún gerir lítið úr
heilsuleysinu og kveðst oft fara nið-
ur að höfn og taka sér göngutúr í
fjörunni. Ljósmyndavélin er þá iðu-
lega með í för, enda öll hennar
hönnun byggð á myndum sem hún
tekur af því sem vekur athygli
hennar. „Nýjasta vörulínan, Björg í
bú, tengist hafinu. Annars vegar
plaköt með teikningum af köðlum;
landfestum í Hafnarfjarðarhöfn,
snærum, reipum og spottum. Hins
Úr læknisfræði
í textílhönnun
Læknir og textílhönnuður að mennt og starfandi vöruhönnuður býður upp
á einkatíma og/eða námskeið í stærðfræði, efnafræði og tölfræði. Trúlega
er bara ein manneskja á landinu með prófgráður og starf af fyrrgreindu
tagi, sem tekur að sér að kenna ungmennum slík fög. Hún heitir Margrét
Oddný Leópoldsdóttir og er eigandi hönnunarfyrirtækisins Gola & Glóra.
Veggjaprýði Björg í bú, nýjasta vörulína Margrétar, tengist hafinu. Plaköt í mismunandi stærðum með teikningum af köðlum og snærum og aðrar með svartfuglseggjum eru hluti línunnar.