Morgunblaðið - 25.02.2017, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Bílarnir eru allir sjálfskiptir með bensín og rafmagnsmótor og á 18“
álfelgum. Einnig eru þeir allir með sportsæti, íslenskt leiðsögukerfi,
leðurklætt sportstýri, tvívirkamiðstöðmeð sjálfvirkri loftkælingu, LED ljós,
tengjanlegir við farsíma (stjórnaðmeð appi). Mismunandi aukabúnaður
er í bílunum s.s. sætisáklæði, glertoppur, hljóðkerfi, nálgunarvarar.
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
Audi A3 E-tron 2016
Plug in Hybrid (bensín/rafmagn)
Skemmtilegir og hagkvæmir bílar
- Hvítur - ek. 6 þkm.
- Svartur - Alveg ónotaður!
- Rauður ek. 7 þkm.m. Panorama
og B&O hljóðkerfi
Verð frá 4.950.000 kr.
Skipti skoðuð á ódýrari!
Elín Margrét Böðvarsdóttir
Skúli Halldórsson
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
„Ég hefði orðið steinhissa ef þetta
hefði ekki farið svo. Ég efast um að
endurupptökunefnd hefði getað
fundið forsendur til að taka þetta
ekki upp,“ sagði Guðjón Skarphéð-
insson guðfræðingur í samtali við
mbl.is í gær. Guðjón er einn þeirra
fimm sem nú bíða þess að mál þeirra
verði tekin upp á nýjan leik fyrir
dómstólum vegna meintrar aðildar
þeirra að Guðmundar- og Geirfinns-
málinu. Úrskurðir endurupptöku-
nefndar voru birtir í gær. „Þetta er
ekki fyrsta og ekki síðasta heljar-
innar verkið í kringum þetta mál.“
Endurupptökunefnd hefur unnið
að vinnslu málsins í tæp þrjú ár og
telja úrskurðirnir í málum sexmenn-
inganna fleiri þúsund blaðsíður.
Barðist með kjafti og klóm
„Það er búið að teygjast feiknar-
lega á rangætinu. Sá sem á mestu
þakkirnar eftir á að hyggja er
Sævar, það verður að segjast. Hann
hamaðist í því að hann væri saklaus
og barðist með kjafti og klóm.“
Hann var á sínum tíma dæmdur í 10
ára fangelsi í Hæstarétti fyrir að
hafa, ásamt tveimur öðrum, orðið
Geirfinni Einarssyni að bana aðfara-
nótt 20. nóvember 1974. Alls sat
Guðjón í gæsluvarðhaldi í 1.202 daga
en í október 1981 var honum veitt
reynslulausn á eftirstöðvum refs-
ingarinnar. Eftir að hafa tekið út
fangelsisdóminn var útlitið svart hjá
Guðjóni, sem átti ekki í nein hús að
venda og drakk í óhófi. Haustið 1981
hóf hann þó nám í guðfræði í Dan-
mörku og vann ýmis störf samhliða
námi.
Þjóðin vissi alltaf betur
Fimmtán árum síðar sneri hann
aftur til Íslands og var kjörinn
prestur á Staðarstað á Snæfellnesi.
„Það var nauðsynlegt að komast
út. Þetta leit ekki vel út þegar maður
var kominn neðst í goggunarröðina,
sem getur verið snúið í Reykjavík og
vill enda í fylleríi.“ Spurður hvort
byrði ranglætisins hafi lést með tím-
anum svarar Guðjón því til að byrðin
hafi lést strax og hann ákvað að fara
af landi brott. „Ég var í fjölda ára í
Danmörku og síðan fjölda ára í friði
úti á landi þannig að þetta mál hefur
farið ofan garða og neðan hjá mér í
mörg ár,“ útskýrir Guðjón. „Per-
sónulega hef ég þá skoðun að þjóð-
inni hafi aldrei nokkurn tímann
dottið í hug að þetta væri svona
eins og dæmt var, alveg frá upp-
hafi.“ Guðjón bíður þess nú að
málið verði aftur tekið fyrir í
Hæstarétti. „Það þýðir X mörg ár
til viðbótar og þá gæti ég verið
dauður.“
Efaðist ekki um endurupptöku
Guðjón fékk á sínum tíma 10 ára dóm Kann Sævari Ciesielski miklar þakkir Segir þjóðina
hafa vitað betur en dómstóla Lögmaður Erlu og Guðjóns segir ógildingu koma til greina
Morgunblaðið/Golli
Endurupptaka Guðjón Skarphéðinsson með skýrsluna á skrifborði sínu. „Þjóðin vissi allltaf betur,“ segir hann.
Ragnar Aðalsteinsson, lög-
maður Guðjóns og Erlu Bolla-
dóttur, segir ekki útilokað að
lagt verði fyrir dómstóla hvort
ógilda skuli úrskurði endur-
upptökunefndar. Nefndin féllst
á endurupptöku í máli Guðjóns
en hafnaði beiðni um endur-
upptöku í máli Erlu. Hún hafði
hlotið dóm fyrir rangar saka-
giftir en ekki aðild að mann-
drápi líkt og Guðjón. Kveðst
Ragnar mjög ánægður með
niðurstöðu nefndarinnar í máli
Guðjóns, en jafn óánægður með
niðurstöðuna í máli Erlu. „Við
Erla þurfum að huga að því
hvort þessi úrskurður sé hald-
inn slíkum annmörkum að það
sé ástæða til að láta reyna á
gildi hans,“ sagði Ragnar í sam-
tali við mbl.is í gær. Úrskurð-
irnir séu þó ekki alslæmir. „Það
er margt gott að finna í rök-
semdum nefndarinnar. Hún
gerir sér til dæmis
miklu betur grein fyrir
því hvaða þýðingu
mannréttindaákvæði
höfðu á þessum tíma,“
segir Ragnar.
Úrskurðirnir
ekki alslæmir
RAGNAR AÐALSTEINSSON:
Ragnar Aðalsteinsson
„Nú er þetta úr okkar höndum,
okkar verkefni lokið, þannig að nú
er þetta í höndum ákæruvaldsins
og endurupptökubeiðanda að beina
því til ákæruvaldsins að halda mál-
inu áfram,“ segir Björn L. Bergs-
son, formaður endurupptöku-
nefndar, um úrskurðina sem
nefndin birti í gær í tengslum við
Guðmundar- og Geirfinnsmálið.
Björn kveðst ekki geta tjáð sig í
smáatriðum um störf nefndarinnar
við vinnslu úrskurðanna, nefndin
hafi lokið sínum störfum og skilað
skriflegum úrskurði en það falli í
hendur annarra að lesa úrskurðina
og leggja á þá
mat. Fyrsta
beiðnin um end-
urupptöku kom
inn á borð nefnd-
arinnar árið 2014
en að sögn
Björns hófst
vinnsla málsins
ekki að fullu fyrr
en sumarið 2015.
„Ég get alveg
staðfest það að þetta er umfangs-
mesta endurupptökumálið sem hef-
ur verið á milli handa endur-
upptökunefndar,“ segir Björn.
Umfangsmesta mál
í sögu nefndarinnar
„Úr okkar höndum“ segir formaður
Björn L.
Bergsson hrl.
„Pabbi, loksins er komið að því! Við
systkinin getum loksins fagnað því að
mannorð þitt verður hreinsað,“ skrif-
ar Hafþór Sævarsson, sonur Sævars
Ciesielski, á Facebook-síðu sína í gær
í kjölfar úrskurðar endur-
upptökunefndar. „Faðir okkar barð-
ist alla ævi fyrir sannleikanum í þess-
um málum og að sakleysi hans yrði
viðurkennt.“
Sævar féll frá árið 2011 og segir
Hafþór að þau systkinin vildu óska
þess að faðir þeirra væri enn á lífi.
„Allt frá því að við munum eftir
okkur hafa þessi mál litað tilveru
okkar. Það er ekki hægt að útskýra
með orðum þá upplifun að hafa fæðst
inn í þetta ranglæti.
Endurupptökunefnd fellst á að
Guðmundar- og Geirfinnsmál, sem
aldrei voru dómtæk mál, verða tekin
upp að nýju,“ skrifar Hafþór. „Til
hamingju, pabbi, barátta þín og
seigla hefur loksins skilað sér í
endurupptöku. Réttlætið sigrar að
lokum.“
Segir stöðuna flókna
„Þetta er flókin staða. Við höfum
aldrei staðið frammi fyrir þessu áður.
Það þarf að gefa fólki ráðrúm til að
fara yfir stöðuna,“ sagði Davíð Þór
Björgvinsson, settur ríkissaksóknari
í málinu, í samtali við mbl.is í gær.
Ekki er víst að Davíð Þór haldi áfram
sem ríkissaksóknari við meðferð
málsins. Benti hann á að málið væri
nokkuð flókið, sá sem myndi halda
áfram með málið sem settur rík-
issaksóknari myndi væntanlega snúa
sér til Hæstaréttar og óska eftir að
verða veittur frestur til að kynna sér
málið, Það yrði svo væntanlega tekið
upp á grundvelli sömu ákæru.
„Ég held að allir séu af vilja gerðir
til að fá niðurstöðu í málið. Það mun
halda áfram og lýkur ekki hér,“ segir
Davíð Þór.
„Réttlætið sigrar að lokum“
Sonur Sævars
segir hann hafa
barist alla ævi
Sævar M.
Ciesielski
Davíð Þór
Björgvinsson
Endurupptaka í Guðmundar- og Geirfinnsmáli