Morgunblaðið - 25.02.2017, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Nýtt, lítið og sérlega fallegt hótel í Reykjanesbæ. Fær mjög góða
dóma á bókunarsíðum.
• Stofa, búin mjög sérhæfðum tækjum og sú eina á sínu sviði, sem
sérhæfir sig í meðferð sem bætir útlit líkamans. Arðbær rekstur.
• Hádegisverðarþjónusta fyrir stofnanir og fyrirtæki og veislumatur fyrir
sérstök tækifæri. Tilvalið fyrir kokk sem hefur áhuga á að byggja á
góðum grunni.
• Lúxusíbúðir í mismunandi stærðum í tveimur glæsilegum húsum í
miðborginni sem leigðar eru ferðamönnum.
• Ört vaxandi fyrirtæki í framleiðslu myndefnis (auglýsingar og
kynningar) vil vaxa enn hraðar með því að fá inn hluthafa sem getur
lagt slíkri uppbyggingu lið. Fyrirtækið er með gott orðspor, ársveltu
um 100 mkr. og góða framlegð.
• Fiskvinnsla á SV-horninu í framleiðslu á fiski og harðfiski. Velta 50
mkr. Inannlandsssala og útflutningur. Miklir möguleikar til
veltuaukningar.
• Gott hótel miðsvæðis á Suðurlandi sem býður upp á mikla möguleika
fyrir áhugasaman, nýjan eiganda.
• Framleiðslufyrirtæki fyrir íhluti í skófatnað. Viðskiptavinir eru mörg
þekktustu merkin í skóm í heiminum. Fyrirtækið, sem er alfarið í eigu
Íslendinga, er syðst í Kína (nálægt Hong Kong) í nútímalegu
húsnæði, með góðan vélakost og 50 manns í vinnu.
• Leiðandi fyrirtæki í sölu á legsteinum og tengdum vörum. Ársvelta
160 mkr. og mjög góð afkoma.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is
ÚR BÆJARLÍFINU
Jón Sigurðsson
Blönduósi
Í dag byrjar 19. vika vetrar og á
morgun kviknar góutunglið í suðri.
Það er margnefnt manna í millum að
tíðin í vetur hefur verið hagfelld. Sól
hækkar á himni og brúin yfir Blöndu
hefur breikkað örlítið og ljósastýrð
umferð yfir hana er að baki, mörg-
um til ánægju.
Til stendur að opna fiskbúð á
Blönduósi um miðjan næsta mánuð í
húsnæði þar sem áður var rækju-
vinnslan Særún. Það er útgerð-
argerðarmaðurinn og stálsmiðurinn
Sighvatur Smári Steindórsson sem
stendur fyrir þessu. Að hans sögn þá
hefur hann gengið með þennan
draum í tvö ár og stokkið á þetta
núna þegar húsnæðið stóð til boða.
Sighvatur verður með ýmsar teg-
undir af ferskum fiski á boðstólum
sem og ýmsa tilbúna fiskirétti. Ekki
er búið að finna nafn á fiskbúðina en
Sighvatur íhugar alvarlega að bjóða
upp á humarsúpu á opnunardaginn.
Grágæsin Blanda sem merkt
var með gervihnattarsendi í sumar
hefur haft hljótt um sig í Skotlandi.
Hún hefur verið þögul allt frá öðrum
degi jóla en þá var hún stödd á
Straumey skammt frá landsvæði á
Katanesi sem kallast Huna eða
Húna á fornmáli Skota um landnám.
Húnasvæðið, sem undirritaður kýs
að kalla Húnavatnssýslu Skotlands,
er um tvær mílur vestan við John
O’Groat’s. Þessi langa þögn gæs-
arinnar er farin að byggja upp
kvíðahnút hjá mörgum gæsavinum
víða um land en þeir vona innst inni
að með hækkandi sól fái sól-
arrafhlaðan á hálsi Blöndu orku til
að senda frá sér skilaboð.
Langstærsti draumurinn
(LSD), þ.e.a.s. gagnaverið, lifir enn
samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum. Heyrst hefur að áhugasamir
aðilar hafi verið í sambandi við bæj-
aryfirvöld um að byggja hér upp
gagnaver á grunni fyrri vinnu sem
lögð hefur verið í þetta verkefni.
Margir bæjarbúar hafa yppt öxlum
og sagt í mesta lagi „jæja“ þegar
minnst hefur verið á LSD en máls-
metandi menn segja núna að í stað
„jæja“ geti menn í fullri alvöru sagt
„ja hérna hér“.
Þjónusta við ferðamenn er
ofarlega á baugi þessa dagana. Sem
dæmi um það þá er verið að stækka
Hótel Blönduós og nýir eigendur
eru komnir að ferðaþjónustunni
Blöndubóli á vesturbakka Blöndu.
Þar sem veitingahúsið Ljón norð-
ursins og gistiheimilið Blönduból
var, mun taka til starfa sambærileg
þjónusta undir nafninu Retró.
Einnig er í umræðunni að byggja
100 herbergja hótel við félagsheim-
ilið á Blönduósi. Samkvæmt traust-
um heimildum þá er unnið að fjár-
mögnum verkefnisins.
Félagsheimilið mun að mestu hald-
ast í núverandi mynd og nýtast sem
rástefnuhús og félagsheimili líkt og
verið hefur.
Vilko á Blönduósi flutti á dög-
unum starfsemi sína yfir götuna úr
þáverandi húsnæði að Ægisbraut 1
yfir í gömlu mjólkurstöðina að
Húnabraut 33. Unnið hefur verið að
því undanfarna mánuði að flytja
starfsemi Vilko og Prima yfir í nýja
húsnæðið. Kári Kárason fram-
kvæmdastjóri segir að mikill munur
sé að flytja úr 600 fermetra hús-
næði yfir í 1.500 fermetra. Hann
segir að búið sé að panta nýja pökk-
unarlínu fyrir Prima-kryddið og
góð og vaxandi sala sé í Ice Herbs
og Ice Prótín-hylkjunum og hefur
starfsmönnum við fyrirtækið verið
að fjölga að undanförnu og eru nú
átta.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Blönduós Matvælafyrirtækið Vilko hefur flutt starfsemi sína og Prima yfir í gömlu mjólkurstöðina.
Vilko flytur, bætir við pökk-
unarlínu og fjölgar fólki
leigusamningi, dags. 8. apríl 2016,
leigt Perlu norðursins hluta húsnæð-
isins að Varmahlíð 1, Reykjavík,
þ.m.t. heitavatnstankinn. Perla
norðursins hafi áhuga á að fá einnig
annan tank undir sýningarrými og
að leigutími fyrir núverandi tank
verði lengri en til ársins 2023.
Samkvæmt samkomulaginu
skuldbindur Reykjavíkurborg sig
einnig til að sjá til þess að Veitur fái
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Reykjavíkurborg hefur gert sam-
komulag við Veitur ohf., dótturfyr-
irtæki Orkuveitunnar, um að borgin
kaupi tvo hitaveitutanka í Öskjuhlíð.
Kaupverð tankanna er samtals 380
milljónir króna.
Borgarráð samþykkti kaupin á
fundi í fyrradag. Borgarráðs-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknar og flugvallarvina sátu
hjá við afgreiðslu málsins.
Fram kemur í bréfi skrifstofu
eigna og atvinnuþróunar borg-
arinnar til borgarráðs að með kaup-
samningi og afsali þann 20. mars
2013 keypti Reykjavíkurborg fast-
eignina að Varmahlíð 1 í Reykjavík,
Perluna, af Orkuveitu Reykjavíkur.
Orkuveitan átti áfram hitaveitu-
tankana sem Perlan stendur á. Með
leigusamningi, dags. 25. mars 2013,
leigði Orkuveita Reykjavíkur
Reykjavíkurborg einn heitavatns-
tank, þurrleigu, til starfrækslu fyrir
safnastarfsemi. Leigutími sam-
kvæmt þeim samningi var tíma-
bundinn til 10 ára frá 1. nóvember
2013 að telja.
Reykjavíkurborg hefur með húsa-
heimild til að byggja a.m.k. 7.715
rúmmetra tankarými, einn eða fleiri
tanka, í allra næsta nágrenni Perl-
unnar í Öskjuhlíð, til að tryggja
nægt miðlunarrými hitaveitu í vest-
urborginni til framtíðar.
Fáist ekki heimild til byggingar
tanka, vegna skipulags eða að ekki
verði veitt byggingarleyfi, innan
tveggja ára, þá falli samkomulag
þetta úr gildi.
Kaupir tvo hitaveitutanka
í Öskjuhlíð á 380 milljónir
Veitur ohf. fá leyfi til að reisa tanka í nágrenni Perlunnar
Morgunblaðið/Ómar
Perlan Stærsta náttúrusýning landsins verður opnuð á vormánuðum 2017.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri
Kópavogs, segir að bæjarstjórn
Kópavogs hafi ákveðið á fundi sínum
14. febrúar að fara nýja leið við
ákvörðun launa til bæjarfulltrúa
Kópavogs. Laun bæjarfulltrúa
hækki sem nemur 26% 1. mars en
hefðu hækkað um 44,3% hefðu laun
bæjarfulltrúa áfram verið tengd við
þingfararkaup.
Mánaðarlaun bæjarfulltrúa fyrir
ákvörðun kjararáðs um hækkun
þingfararkaups í nóvember voru
251.770 krónur eða 33% af þingfar-
arkaupi. Eftir breytingu verða laun-
in kr. 317.000. Ef áfram hefði verið
miðað við þingfararkaup hefðu laun
bæjarfulltrúa hækkað í 363.394
krónur, samkvæmt Ármanni.
„Við ákváðum að miða greiðslur til
bæjarfulltrúa okkar við ákveðið hlut-
fall af þingfararkaupi eins og það var
þegar kjararáð byrjaði að starfa og
tengdum það
launavísitölu,“
sagði Ármann í
samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Ármann bætti
því við að sjónar-
miðið hafi verið
hjá bæjarstjórn,
að það gæti ekki
verið andstætt
vilja fólksins í
landinu að laun bæjarfulltrúa fylgdu
almennri launavísitölu í landinu.
„Ég vil þó sérstaklega taka það
fram að ég er ekki að sjá ofsjónum
yfir þingfararkaupi alþingismanna í
dag, upp á rúma 1,1 milljón króna,
vegna þess að þingmenn sátu svo
lengi eftir. Það myndaðist bil í mjög
langan tíma og þess vegna hefur
kjararáð tekið þá ákvörðun að skutla
þeim aðeins upp fyrir launavísitöl-
una, sem mun svo leiðréttast yfir
einhvern tíma,“ sagði Ármann Kr.
Ólafsson.
Launin verða 317
þúsund 1. mars
Kjör bæjarfulltrúa með nýjum hætti
Ármann Kr.
Ólafsson