Morgunblaðið - 25.02.2017, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogumTaktu bílin
með í ferðalagið
Færeyja og Danmerkur 2017
Bókaðu
núna og
tryggður þér
pláss
Færeyjar
2 fullprðinir með fólksbíl
Netverð á mann frá . . . . . kr. 34.500
Danmörk
2 fullprðinir með fólksbíl
Netverð á mann frá . . . . kr. 74.500
1
Bókaðusnemma ogtryggðu þér pláss
Taktu bílinnmeð í ferðalagiðFæreyjar - Danmörk - Evrópa 2017
Færeyjar2 fullorðnir
með fólksbíl
Verð á mann frá34.500
Danmörk
2 fullorðnir
með fólksbíl
Verð á mann frá
74.500
570 8600 / 470 2808 · www.smyrilline.is
Mikið er bókað nú þegar með Norrænu á næsta ári. Því er mikilvægt fyrir þá sem ætla að ferðast
með Norrænu að bóka sig sem fyrst og tryggja sér pláss á meðan enn er laust pláss.
Aðeins25% núna,eftirstöðvarmánuði fyrirbrottför
Bæklingur 2017
Nýja bæklinginn okkar
er nú hægt að sækja á
heimasíðuna,
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600
info@smyril-line.is | www.smyrilline.is
Fjarðargötu 8 | 710 Seyðisfjörður | Sími: 4702808
info@smyril-line.is | www.smyrilline.is
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Hið mikla hús Íslandsbanka á
Kirkjusandi í Reykjavík stendur nú
autt og yfirgefið og bíður örlaga
sinna. Mygla fannst í húsinu í fyrra
og í framhaldinu var ákveðið að
flytja starfsemi bankans í annað
húsnæði. Útibú bankans á Kirkju-
sandi og Suðurlandsbraut samein-
uðust síðastliðinn mánudag og þá
var Kirkjusandur kvaddur. Síðustu
starfsmenn Íslandsbanka yfirgáfu
húsið en þeir voru 450 þegar þeir
voru flestir. Höfuðstöðvar Íslands-
banka fluttu fyrir nokkru í Norð-
urturninn við Smáralind.
Íslandsbanki er eigandi hússins á
Kirkjusandi en ekki liggur ennþá
fyrir hvað verður gert við húsið, að
sögn Eddu Hermannsdóttur, sam-
skiptastjóra bankans. „Nú þegar
starfsmenn eru farnir úr húsinu
verður það skoðað betur og ákvörð-
un tekin í framhaldi. Við vonum að
þetta muni skýrast fyrir sumarið,“
segir Edda.
Komið hefur fram í fréttum að
óvíst sé að það borgi sig að gera við
húsið og það verði hreinlega rifið.
Þá kom fram þegar Íslandsbanki
birti uppgjör fyrir fyrri hluta ársins
2016 að virði húnsæðisins hafi verið
fært niður um 1,2 milljarða vegna
skemmdanna.
Sagan nær langt aftur í aldir
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er
eignin Kirkjusandur 2 alls 8.788 fer-
metrar. Skrifstofubyggingin er
7.719 fermetrar og vörugeymsla er
1.069 fermetrar. Samanlagt bruna-
bótamat er 2.267 milljónir króna.
Verði niðurstaðan sú að húsið
verði rifið verður til verðmætt
byggingaland á besta stað í borg-
inni.
Saga svæðisins sem húsið stendur
á nær langt aftur í aldir, samkvæmt
samantekt Íslandsbanka. Nafnið
Kirkjusandur kemur fyrst við sögu
árið 1379 og er heiti yfir strand-
lengjuna frá Rauðarárvík að Laug-
arnesi. Frá Kirkjusandi hefur lík-
lega verið útræði frá fornu fari og á
fyrri hluta 20. aldar var þar um-
fangsmikil fiskverkun og tvær
bryggjur. Greint var á milli Ytri-
Kirkjusands og Innri-Kirkjusands
og voru mörkin nálægt því sem
Kringlumýrarbraut gengur nú til
sjávar. Á Ytra-Kirkjusandi kom Th.
Thorsteinsson upp fiskverkunarstöð
árið 1900 og ári seinna setti Jes
Zimsen á fót fiskverkun á Innra-
Kirkjusandi ásamt bræðrunum
Birni og Þorsteini Gunnarssonum.
Félögin reistu margvíslegar bygg-
ingar og mannvirki í kringum fisk-
vinnsluna á svæðinu, þar á meðal
þurrkhús, geymsluhús, vélaskúra,
þvottahús og verbúðir. Auk þess
settu víðáttumikil stakkstæði svip á
svæðið.
Árið 1948 fluttu togaraútgerð-
arfélögin Júpíter hf. og Marz hf .til
Reykjavíkur, en þau voru upp-
haflega stofnuð í Hafnarfirði af
Tryggva Ófeigssyni og fleiri. Félög-
in ráku hraðfrystihús ásamt salt-
fisk- og skreiðarverkun á Innra-
Kirkjusandi á árunum 1950-1973.
Árið 1950 sótti félagið um leyfi að
byggja stórt, steinsteypt fiskverk-
unarhús við fjöruborðið. Húsið var
hækkað og byggt við það í nokkrum
áföngum og var á sínum tíma
stærsta frystihús landsins.
Í kjölfar eldgossins í Heimaey ár-
ið 1973 keypti Ísfélagið í Vest-
mannaeyjum frystihúsið og aðrar
eignir á Kirkjusandi og rak til árs-
ins 1975 þegar Samband íslenskra
samvinnufélaga keypti húseignirnar
við Kirkjusand. Sambandið var um-
svifamikið í Laugarnesi á 7. og 8.
áratugnum og reisti meðal annars
stórhýsi fyrir kjötvinnslu austan við
Kirkjusand. Á 9. áratugnum hóf
Sambandið umfangsmiklar breyt-
ingar á frystihúsinu við Kirkjusand
sem var stækkað, hækkað, klætt og
fyrirhugað að breyta í skrifstofuhús
undir nýjar höfuðstöðvar Sam-
bandsins. Niðurrif ýmissa mann-
virkja á svæðinu var hluti af þessum
breytingum.
Árið 1988, þegar framkvæmdir
voru komnar á gott skrið, tók að
halla undan fæti hjá Sambandinu og
um svipað leyti og skrifstofu-
húsnæðið var fullbúið þurfti Sam-
bandið að láta húsið af hendi. Ís-
landsbanki eignaðist síðar húsið og
aðrar eignir á lóðinni og flutti þang-
að höfuðstöðvar sínar árið 1995.
Ný byggð á Strætólóð
Strætisvagnar Reykjavíkur voru
með bækistöðvar sínar á Kirkju-
sandi í rúmlega hálfa öld eða fram
til ársins 2001. Á svæði Strætó hef-
ur verið skipulögð atvinnu- og
íbúðabyggð. Þarna er áformað að
reisa 300 íbúðir og alls 50.000 fer-
metra atvinnuhúsnæði. Borgarráð
samþykkti í lok ársins 2016 vilja-
yfirlýsingu sem tryggir leigufélagi
ASÍ og BSRB heimild til að reisa 63
íbúðir á Kirkjusandi. Á sama stað
munu Félagsbústaðir einnig byggja.
Stórhýsi bíður örlaga sinna
Síðustu starfsmenn Íslandsbanka yfirgáfu Kirkjusand í vikunni Voru 450 þegar flest var
Mygla fannst í húsinu í fyrra Ákvörðun um framtíð hússins verður tekin fyrir sumarið
Morgunblaðið/Golli
Íslandsbankahúsið Engin starfsemi er lengur í húsinu en aðeins nokkrir mánuðir eru síðan það iðaði af lífi.
Teikning/ASK arkitektar
Ný byggð Á Strætólóðinni, við hlið Íslandsbankahússins, mun rísa fjölbýlis-
hús með 300 íbúðum. Einnig verður atvinnustarfsemi á lóðinni.
mbl.is
Samband ís-
lenskra sveitar-
félaga efnir til
málþings um
samskipti og
tengsl sveitarfé-
laga og ferða-
þjónustu föstu-
daginn 3. mars
nk. Halldór Hall-
dórsson, formað-
ur sambandsins,
segir að með málþinginu sé verið
að svara ákalli sveitarfélaganna.
„Markmið málþingsins er að
sveitarstjórnarmenn komi saman
til þess að ræða málefni ferðaþjón-
ustu og þær áskoranir og tækifæri
sem felast í fjölgun ferðamanna
sem leggja leið sína hingað til
lands. Málþingið hefur jafnframt
verið kynnt fyrir fulltrúum ferða-
þjónustunnar og öðrum sem láta
sig málið varða og er öllum opið,“
segir Halldór en það var Sturla
Böðvarsson, bæjarstjóri í Stykk-
ishólmi, sem var hvatamaður að því
að málþingið yrði haldið þar sem
ferðaþjónustan er orðin mjög stór
málaflokkur hjá flestum sveit-
arfélögum.
Málþingið fer fram á Hótel Hil-
ton Reykjavík Nordica og hefst kl.
9 föstudaginn 3. mars. Stendur það
til kl. 16. Á málþinginu verða m.a.
nokkur ferðaþjónustufyrirtæki með
kynningu á starfsemi sinni.
Ræða um
ferðaþjónustu
Halldór
Halldórsson