Morgunblaðið - 25.02.2017, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Trjáklippingar
Trjáfellingar
Stubbatæting
Vandvirk og snögg þjónusta
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Gengisvísitala íslensku krónunnar
hefur ekki verið lægri síðan 14. júlí
2008 og þar af leiðandi gengi hennar
ekki verið sterkara. Gengi Banda-
ríkjadals er til að mynda komið niður
fyrir 110 krónur í fyrsta skipti síðan í
október 2008.
Bjarni Már Gylfason, hagfræðing-
ur Samtaka iðnaðarins, segir í samtali
við Morgunblaðið að krónan sé að
verða ein sterkasta mynt í heimi.
„Kaupmáttur Íslendinga í erlendri
mynt hefur vaxið mjög mikið og raun-
ar miklu meira en bein styrking krón-
unnar gefur til kynna vegna þess að
laun hér hafa vaxið miklu meira en í
samkeppnislöndum okkar,“ segir
Bjarni.
Hann bendir á að Íslendingum líði
almennt vel í svona ástandi enda sé
kaupmáttur okkar mikill. „En á sama
tíma erum við að veikja stoðir at-
vinnulífsins til lengri tíma, sem við
byggjum afkomu okkar á. Þetta er
skammgóður vermir ef við erum að
missa alþjóðlega samkeppnishæfni.“
Framtíðaráform í uppnámi
Bjarni segir að styrkur krónunnar
geri samkeppnishæfni fyrirtækja
mjög erfiða. „Þeir sem finna einna
mest fyrir þessu hjá okkur eru tækni-
og hugverkafyrirtæki, sem eru í
mannauðsfrekri starfsemi. Hlutfalls-
leg laun hér eru orðin gríðarlega há en
það sem menn eru að fá fyrir vörurnar
er að minnka í krónum talið á sama
tíma. Þá er erfitt ástand fyrir fyrir-
tæki sem keppa við innfluttar vörur.“
Bjarni segir þetta geta sett framtíð-
aráform fyrirtækja í uppnám og haml-
að vexti þeirra. Hann segir að Samtök
iðnaðarins hafi sett fram hugmyndir
til að bregðast við styrkingu krónunn-
ar. „Til dæmis mætti skoða að setja
gólf á erlendar fjárfestingar lífeyris-
sjóða frekar en þak. En það er samt
Seðlabankinn sem heldur á öflugasta
stýritækinu, vöxtunum. Þeir styðja
við styrk krónunnar. Við erum með
afar litla verðbólgu og lágar verð-
bólguvæntingar og okkur finnst sem
það séu sterkar undirliggjandi for-
sendur fyrir því að lækka vexti og
minnka vaxtamun. Þessi styrking
krónunnar hefur neysluhvetjandi
áhrif, og meiri áhrif en lækkun vaxta
hefði í för með sér.“
Styrkist til 2019
„Við gerum ráð fyrir að krónan
haldi áfram að styrkjast fram til loka
árs 2019. Vöxtur í ferðaþjónustu í des-
ember og janúar hefur verið meiri en
við gerðum ráð fyrir, sem hefur styrkt
þessa skoðun okkar. Auk þess gerðum
við ráð fyrir litlum loðnuveiðum en nú
er útlit fyrir að það veiðist heilmikil
loðna. Þannig að það er meira jákvætt
en neikvætt búið að gerast síðan í nóv-
ember hvað varðar gengi krónunnar,“
segir Daníel Svavarsson, forstöðu-
maður Hagfræðideildar Landsbank-
ans, í samtali við Morgunblaðið.
Spurður um áhrifin á atvinnulífið
segir Daníel að enn sjáist engin telj-
andi áhrif á stærstu útflutningsgrein-
inni, ferðaþjónustunni. Hvað sjávar-
útveg og orkufrekan iðnað varðar vegi
verðhækkanir á sjávarafurðum og
hækkandi álverð á móti áhrifum krón-
unnar en vissulega þyngi styrking
krónunnar róðurinn í allri útflutnings-
starfsemi.
Gengisvísitalan ekki
lægri síðan í júlí 2008
Gengisvísitala Seðlabanka Íslands
250
240
230
220
210
200
190
180
170
160
150
2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017
Heimild: Seðlabanki Íslands – Vísitala meðalgengis
14. júlí 2008 24. febrúar 2017
Dollari í 109 krónur Seðlabankinn er með öflugasta tækið
Gengisáhrif
» Atvinnuleysi er í sögulegu
lágmarki. Atvinnuþátttaka er
meiri en fyrir hrun.
» Aflétting hafta mun hafa
áhrif á gengið.
» Ferðamenn eru farnir að
eyða minna og dvelja skemur í
landinu.
Heildareignir Íslandsbanka voru
1.048 milljarðar króna um áramótin
og jukust um 0,2% á milli ára. Útlán
til viðskiptavina námu 688 millj-
örðum króna og jukust um 3,3%,
sem er undir hagvexti síðasta árs.
Útlán til viðskiptavina og lausafé
nema 93% af heildareignum bank-
ans, en Íslandsbanki var með 275
milljarða í handbæru fé og inn-
stæðum hjá Seðlabanka um áramót.
Sérstök arðgreiðsla hugsanleg
Stjórn Íslandsbanka hyggst leggja
til að tæplega 50% af hagnaði síðasta
árs verði greidd í arð til eiganda
bankans, ríkisins, eða sem nemur 10
milljörðum króna. Er það í samræmi
við langtímastefnu bankans um 40-
50% arðgreiðsluhlutfall.
Á síðasta ári greiddi bankinn 37
milljarða króna í arð til ríkisins, þar
af 27 milljarða í sérstaka arðgreiðslu
í lok árs. Birna Einarsdóttir banka-
stjóri útilokar ekki að til sérstakrar
arðgreiðslu komi síðar á árinu í
tengslum við mögulega endur-
skoðun á fjármagnsskipan bankans
og útgáfu víkjandi bréfa.
Eiginfjárhlutfall Íslandsbanka var
í lok ársins 25,2%, að nær öllu leyti
eiginfjárþáttur A. Skammtímamark-
mið bankans er hins vegar að eigin-
fjárhlutfallið sé yfir 23% og til langs
tíma stefnir bankinn að eiginfjár-
hlutfalli yfir 20%, þar sem minnsta
kosti 15% sé eiginfjárþáttur A.
Sigurður Nordal
sn@mbl.is
Hagnaður samstæðu Íslandsbanka
nam 20,2 milljónum króna á síðasta
ári, en hann var 20,6 milljarðar árið
á undan. Bókfærður hagnaður vegna
sölu Borgunar, dótturfélags Íslands-
banka, á hlut sínum í Visa Europe
nam 6,2 milljörðum í fyrra.
Arðsemi eigin fjár var 10,2% á síð-
asta ári. Ef hins vegar er litið ein-
ungis til reglulegrar starfsemi
reiknast 10,7% arðsemi á eigið fé,
miðað við 15% eiginfjárhlutfall A.
Það er nokkru minna en árið á
undan, þegar arðsemi af reglulegri
starfsemi reiknaðist 12,4%.
Eitt af fjárhagslegum mark-
miðum Íslandsbanka er að arðsemi
eigin fjár af reglulegri starfsemi sé á
bilinu 9-11% til langs tíma. Á þessu
ári áætla stjórnendur bankans hins
vegar að arðsemin verði 8-10%.
Hreinar vaxtatekjur voru 31,3
milljarðar króna á síðasta ári og juk-
ust um 14% á milli ára. Hreinar
þóknanatekjur námu 13,7 millj-
örðum og jukust um hálfan milljarð
króna frá árinu á undan.
Fram kemur í reikningum Ísland-
banka að á síðasta ári var bókaður
1,7 milljarða króna kostnaður vegna
skemmda á húsnæði bankans á
Kirkjusandi og flutninga hans í nýj-
ar höfuðstöðvar í Norðurturni
Smáralindar.
Hagnaður
Íslandsbanka 20
milljarðar króna
Greiðir ríkinu helminginn í arðgreiðslu
Morgunblaðið/Golli
Afkoma Birna Einarsdóttir segir 2016 hafa verið gott ár fyrir Íslandsbanka.
25. febrúar 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 108.14 108.66 108.4
Sterlingspund 135.74 136.4 136.07
Kanadadalur 82.57 83.05 82.81
Dönsk króna 15.397 15.487 15.442
Norsk króna 12.976 13.052 13.014
Sænsk króna 12.042 12.112 12.077
Svissn. franki 107.48 108.08 107.78
Japanskt jen 0.9624 0.968 0.9652
SDR 146.33 147.21 146.77
Evra 114.48 115.12 114.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 147.5534
Hrávöruverð
Gull 1255.35 ($/únsa)
Ál 1882.0 ($/tonn) LME
Hráolía 56.2 ($/fatið) Brent
Til að sjá
gengið eins
og það er
núna á
Skannaðu kóðann