Morgunblaðið - 25.02.2017, Síða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Dekraðu við þig daglega með dýrindis
Lavender olíum.
Slakaðu á líkama og sál með Lavender líkamsvörunum frá Weleda. Lavender jurtin hefur verið
notuð um aldir vegna róandi eiginleika sinna. Njóttu þess að fá slakandi nudd með Lavender
Relaxing Body Oil eða að setja Lavender Relaxing Bath baðmjólkina út í kvöldbaðið. Taktu svo
með þér ilminn af Lavender ökrunum í sturtuna með Lavender Creamy Wash sturtusápunni
— í samhljómi við mann og náttúruwww.weleda.is
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/weledaísland
Since 1921
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Komið og skoðið úrvalið
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Opið virka dag
a
11-18
laugardaga
11-15
Áhinu árlega Norður-landamóti ungmennasem fram fór í Drammení Noregi um síðustu
helgi tefldu Íslendingar fram
ágætu liði í fimm aldursflokkum
frá 10 til 19 ára aldurs. Við vorum
með þrjá nýliða í hópnum en einn-
ig stigahæsta keppandann, Vigni
Vatnar Stefánsson, sem þurfti því
miður að kljást við slæma háls-
bólgu meðan á keppni stóð.
Aðrir liðsmenn Íslands voru
Dagur Ragnarsson, Oliver Aron
Jóhannesson, Hilmir Freyr Heim-
isson, Bárður Birkisson, Nansý
Davíðsdóttir, Óskar Víkingur Dav-
íðsson, Robert Luu, Stefán Orri
Davíðsson og Gunnar Erik Guð-
mundsson, en tveir síðastnefndu
voru nýliðar. Fararstjórar og
þjálfarar voru undirritaður og
Guðmundur Kjartansson.
Á NM ungmenna er keppt um
verðlaun í fimm aldursflokkum og
mótið er einnig keppni allra sex
Norðurlandaþjóðanna þar sem
samanlagður vinningafjöldi ræður
niðurstöðunni. Þessi keppni hefur
fengið síaukið vægi undanfarin ár.
Fyrir síðustu unferð voru Íslend-
ingar með 1 ½ vinnings forskot á
gestina, Norðmenn, og með góða
stöðu með tilliti til sigurs í tveim
flokkum. En í lokaumferðinni var
eins og hin stífa dagskrá, tvær
kappskákir á dag, kæmi loksins
niður á einbeitninni. Dagur Ragn-
arsson, Oliver Aron og Óskar Vík-
ingur voru allir með unnar stöður
en uppskeran var rýr, aðeins ½
vinningur úr þessum þrem mikil-
vægu skákum og til að bæta gráu
ofan á svart þá sigldu Norðmenn
fram úr okkur í 6-landa keppninni
þar sem íslenska liðið endaði í 2.
sæti, Svíar urðu í 3. sæti, Finnar
og Danir í 5. sæti og Færeyingar
ráku lestina. Oliver Aron fékk silf-
ur í sínum flokki og Robert Luu
brons. Þeir hlutu báðir 4 vinninga
en Dagur, Vignir, Óskar Víkingur
og Bárður fengu allir 3 ½ vinning.
Framkvæmd norsku skipuleggj-
endanna var með miklum ágætum.
Á mótinu voru tefldar fjölmarg-
ar skemmtilegar skákir en skák
Dags í 5. umferð var án efa sú fal-
legasta. Það verður aldrei nóg-
samlega brýnt fyrir ungum skák-
mönnum að peð eru líka
sóknarmenn; d- og h-peð hvíts
ruddu brautina í eftirfarandi
glæsiskák:
NM ungmenna 2017:
Dagur – Ragnarsson – Mikkel
Jakobsen
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4.
Rc3 e6 5. Bg5 h6 6. Bxf6 Dxf6 7.
e3 Rd7 8. Bd3 g6 9. O-O Bg7 10.
Hc1 dxc4 11. Bxc4 O-O 12. He1
Hd8 13. e4 e5 14. d5 Rb6 15. Bb3
Be6?!
Óvenjulegur leikur í þekktri
byrjun sem býður uppá þann at-
hyglisverða möguleika að gefa
drottninguna fyrir hrók og léttan.
En Dagur ákvað að bíða átekta.
16. He3 cxd5 17. exd5 Df5 18.
Re1 e4?!
Vafasamur leikur. Og nú voru
öll bestu skilyrði fyrir hendi til að
láta drottninguna af hendi.
19. dxe6! Hxd1 20. exf7+ Kh7
21. Hxd1 Hc8 22. Rxe4 Rc4 23.
He2 Db5 24. Hc2!
Óþægileg leppun eftir c-línunni.
24. De5 25. Bxc4 Dxe4 26. Bd3!
Dg4 27. Hxc8 Dxc8
28. Dxd1 29. Kf1 dugar skammt.
28. h4!
Loftar út og hótar 29. h5.
28. ... h5 29. Rf3 Bxb2?
Þetta peð er eitrað. Hann gat
enn barist með 29. Bf6 sem hvítur
svarar best með 30. b3 ásamt 31.
Bc4. Að endingu mun f7-peðið allt-
af ráða úrslitum.
30. Rg5+ Kg7 31. He1! Ba3 32.
He6! Dc1+ 33. Kh2 Df4+ 34. g3
Dxf2+ 35. Kh3
Vel reiknað, svartur á ekki fleiri
skákir.
35. Kf8 36. He8+ Kg7 37. Hg8+
- og svartur gafst upp. Eftir 37.
… Kf6 vinnur 38. f8(D)+ eða 38.
Re4+ Kxf7 39. Bc4+ og síðan fell-
ur drottningin.
Sókndjarfir
fótgönguliðar
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Silfurhafi Oliver Aron Jóhannesson
að tafli í Noregi.
Á ég að bera virðingu
fyrir Alþingi okkar? Nei,
get það ekki, fyrst og
fremst bera þingmenn
sjálfir ekki virðingu fyrir
störfum sínum, né að
þeir virðist skilja störf
sín. Og ekki fer mikið
fyrir stjórnmálum hjá
þeim, það er rifist, tuðað,
nöldrað, kvartað og
kveinað og svo fengin
hugljómun af orðum annarra. En nú
skal breyta þingsköpum, því að þeir
ná ekki að mæta eða senda skilaboð
klukkan átta, enda eru þá börnin að
skríða yfir höfuðið á þeim. Hvernig
fer annað fólk að? Svo er tekinn upp
tími Alþingis til að kvarta undan
„hagsýnum húsmæðrum“, vegna lík-
ingar sem sögð var úr ræðustól.
Bjarkey Olsen, lítilsvirðir þú þá hlut-
verk móður og húsmóður? Já, mikil
ert þú kona. Er ekki ætlun kvenna á
þingi að heimilis- og fjölskylduvæða
þingið? Þvílík firra, sem segir og
sannar að þið skiljið ekki störf ykkar.
Hvernig getur stjórnarandstaðan í sí-
bylju rætt um skýrslur sem Bjarni
Ben. á að hafa haldið leyndum fyrir
kosningar – hann hefði bara átt að
setja þær í hundrað ára leynd eins og
VG og Samfylkingin gerðu, og hvern-
ig fóruð þið með skýrslu Vigdísar
Hauks, og svo leggist þið svo lágt að
taka ykkur rétt til að rífast endalaust
um bara þessar skýrslur. Er nokkur
möguleiki á að taka mark á ykkur –
nei. Nýjasta tillaga VG frá Steinunni
Þóru er að skipta sér af fólki, hvernig
og hvar það giftir sig, það er nefni-
lega það hjá vinstrisinnaða fólkinu,
það vill völd til að skipa fyrir og ráða
yfir almenningi og helst koma öllum á
ríkislaun, því að það kalla þau jöfnuð.
Hvaða hringavitleysa og ofbeldi er
frá þeim konum sem þiggja störf
þeirra sem víkja þarf frá svo að þær
komist að. Ef þetta er ekki ofbeldi frá
þeirra hálfu, þá veit ég ekki hvað.
Hvar er stolt þessara kvenna?
Íslenskir þingmenn, sem ekki geta
stýrt sínu eigin landi, telja sig færa
um að blanda sér í stjórnmál annarra
ríkja, samanber Bandaríkin, og kalla
löglega kjörinn þjóðhöfðingja „fas-
ista“ úr ræðustóli Alþingis, án þess að
hafa um það hugmynd hvað felst í því
að vera fasisti. Gæti það hent sig að
lýðræðið sé misnotað?
Já, fólk hafnaði Unni
Brá í kosningum, en nei,
hún er gerð að forseta
þingsins, kona sem ætl-
ar að fjölskylduvæða
þingið og gerir sér enga
grein fyrir vinnustað
sínum, en mætir til
þings með hvítvoðung,
en hún á þó að vita að
allt á sér stað og stund í
lífinu. En nú er rétti for-
setinn til að breyta og
ruslast með þingsköpin.
Á þingi situr nú fólk sem ég hvorki
treysti né virði og vil ekki að taki
ákvarðanir fyrir mig og landið mitt,
land sem er verið að selja í bútum og
sem við munum missa vegna glanna-
skapar stjórnvalda. Glannaskapar
sem felst í innflutningi á fólki, sem
erfa mun landið og sem Íslendingum
er gert að halda uppi, en það er auð-
vitað mál komandi kynslóða að vinna
fyrir þessu.
Allt mögulegt neikvætt er að ger-
ast í landi okkar, en kemst það að á
þinginu – nei, þar er bara rifist og
þrasað og greindarvísitalan lækkar
og lækkar, svo og sýnin á lífið, þannig
að auðvitað er ekkert verið að stjórna
landinu.
Mér þykir verulega miður að Þor-
gerður Katrín sé komin á þing og hvað
þá ráðherra, og mér þykir miður að
ræðustóll Alþingis sé misnotaður í
þras, plott og tuð. Bjarkey Olsen,
Svandís Svavarsdóttir og Oddný
Harðardóttir, það er kominn tími til
þess að þið víkið af þingi og yngri þing-
konur, þið þurfið ekki að hreyta út úr
ykkur orðunum, það vantar alla yf-
irvegun.
Í lokin til Eiríks Bergmann, hrunið
og stjórnun landsins, eruð þið ekki öll
menntuð, og hvar erum við svo stödd?
Væri ekki ráð fyrir þig að hætta að tala
og kenna hægrimönnum og ómennt-
uðum um það sem miður fer. Er ekki
til vinstripopúlismi hjá þér? Nóg er til
af vitru ómenntuðu fólki eins og það er
líka til nóg af heimsku menntuðu fólki.
Þú talar út frá lestri og þekkingu, en er
nú endilega allt svo viturt sem frá þér
kemur, það má deila um það.
Alþingi og fleira
Eftir Stefaníu
Jónasdóttur
»Nóg er til af vitru
ómenntuðu fólki
eins og það er líka til
nóg af heimsku
menntuðu fólki.
Stefanía Jónasdóttir
Höfundur býr á Sauðárkróki.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU
AÐ LÁTA
GERA VIÐ?